Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
BAKSVIÐ
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Grímuklæddir menn í her-
mannafötum námu á brott að
minnsta kosti átján tyrkneska og
íraska verkamenn, endurskoðanda
og verkfræðinga í Bagdad, höf-
uðborg Íraks, í gærmorgun.
Að sögn íraskra og tyrkneskra
yfirvalda var mönnunum ýtt inn í
stóra jeppa sem var svo ekið í
burtu á miklum hraða. Segja yf-
irvöld mennina starfa fyrir bygg-
ingafyrirtækið Nurol Insaat, sem
staðsett er í Ankara í Tyrklandi.
Fyrirtækið vinnur nú að byggingu
íþróttamannvirkis í Shiite sýslu í
Sadr, sem er í úthverfi Bagdads.
Mannræningjarnir grímu-
klæddu munu hafa komið inn á
vinnusvæðið á meðan starfsmenn-
irnir voru í fasta svefni, afvopnað
alla verði og svo rænt starfsmönn-
unum, eftir því sem kemur fram í
frétt Fox News um málið. Engin
gögn sem benda til ofbeldis liggja
fyrir.
Óvíst hvað vakti fyrir þeim
Talsmaður tyrkneska utanrík-
isráðuneytisins, Tanju Bilgic, sagði
að meðal þeirra horfnu væru 14
verkamenn, þrír verkfræðingar og
einn endurskoðandi.
Saad Maan, talsmaður innan-
ríkisráðuneytis landsins, sagði
mannránið í rannsókn og að mann-
ræningjanna væri leitað. Þá væri
hvorki vitað hverjir þeir væru né
hvað hefði vakað fyrir þeim.
Tyrkir hófu nýlega loft-
árárásir á Íslamska ríkið í Norður-
Írak og hófu að leyfa bandarískum
herþotum að notast við herstöðvar
í suðausturhluta Tyrklands, til að
ráðast á öfgamenn úr hópi sunni-
múslima. Á sama tíma hóf Tyrk-
land loftárásir í Norður-Írak á
PKK, Kúrdíska verkamannaflokk-
inn, sem hefur lengi verið þyrnir í
auga tyrkneska hersins.
Mannránið í gær felur í sér
afturhvarf til áranna 2006 og 2007
þegar herdeildir sunni- og sjíta-
múslímar rændu hvorir um sig
fylgismönnum hinnar fylking-
arinnar. Í þeim tilvikum fundust
yfirleitt lík þeirra sem rænt var
degi eða tveimur dögum síðar. Yf-
irleitt báru þau merki þess að
mennirnir hefðu verið pyntaðir fyr-
ir andlátið og voru með byssukúlu í
höfðinu.
Ofbeldi hefur verið daglegt
brauð í Bagdad í yfir áratug, á borð
við vegasprengjur, sjálfsmorðs-
árásirog launmorð.
AFP
Mannrán Mennirnir átján unnu að byggingu íþróttamannvirkis.
Átján numdir á
brott í Bagdad
Starfsmönnum rænt á vinnusvæði
Brynja B. Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Frans páfi samþykkti í vikubyrjun
að gera konum, sem hafa undirgeng-
ist fóstureyðingu, auðveldara fyrir
að fá fyrirgefningu frá kirkjunni.
Þetta einstaka tilboð páfa mun
þó aðeins gilda í eitt ár en þessi við-
leitni hann er hluti af Ári miskun-
arinnar (e. Year of Mercy). Um er að
ræða forna kaþólska hefð sem veitir
trúuðum tækifæri til syndaaflausn-
ar. Árið hefst þann 8. desember
næstkomandi og stendur yfir til 26.
nóvember 2016.
Páfinn tilkynnti um þetta í Vati-
kaninu í fyrradag, örfáum vikum áð-
ur en hann heldur í opinbera heim-
sókn til Kúbu og Bandaríkjanna, þar
sem tíðni fóstureyðinga er nokkuð
hærri en í Vestur-Evrópu.
Í stað þess að biðjast syndaaf-
lausnar frá biskupi, eins og konur
þurfa að gera í dag, hefur páfi heim-
ilað að sérhver kaþólsk kona sem
farið hefur í fóstureyðingu, geti ósk-
að eftir fyrirgefningu synda sinna
hjá presti. Þetta fyrirkomulag er nú
þegar við lýði í Englandi, Wales og
Skotlandi, ef marka má fréttir Tele-
graph um málið.
Kaþólikkar trúa því að líf hefjist
við getnað og þar af leiðandi sé fóst-
ureyðing synd. Samkvæmt lögum
kirkjunnar, kanónískum rétti, eru
þær sem undirgangast fóstureyð-
ingu sjálfviljugar og þeir sem að-
stoða við fóstureyðingu, bannfærðir
en prestar geta aflétt bannfæring-
unni. Þetta kemur m.a. fram í frétt
Wall Street Journal um málið.
Einstakt tækifæri
Frans páfi gefur konum sem hafa undirgengist fóstureyð-
ingu tækifæri í ár til að óska eftir fyrirgefningu hjá presti
AFP
Páfi Frans vill sýna konum, sem
hafa farið í fóstureyðingu, skilning.
Átta mann-
eskjur, þar af
drengur og
stúlka, létu lífið í
gærmorgun í
eldsvoða í íbúð í
átjánda hverfi
Parísar. Fimm
aðrir eru lítillega
slasaðir en sjö
manns mun hafa
verið bjargað úr húsinu. Talið er að
kveikt hafi verið í íbúðinni og einn
maður á fertugsaldri hefur verið
handtekinn vegna málsins.
Slökkvilið Parísar fékk tvö neyð-
arsímtöl frá sama heimilisfangi á
Myrha-götu aðfararnótt miðviku-
dags, fyrst klukkan tvö um nóttina
og svo tveimur og hálfri klukku-
stund síðar. Enn er óvíst hvernig
þessi tvö símtöl tengjast.
Anne Hidalgo, borgarstjóri
Parísar, sagði málið vera í rann-
sókn og vottaði aðstandendum sam-
úð sína.
FRAKKLAND
Húsbruni grandar
átta manns í París
Anne Hidalgo
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.
fi p y j g p
C p iar acc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam
með hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté prikmeð pa
mauki Bruchetta íreymeð tv
ðlatu hangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu heBruc
ta með hráskinku, balsam
rægrill uðu Miðjarðar- h a f s g
meti Krabba a- s a l
ðboferskum kryddjurtum í brau
Bruchetta rðameð Miðja
hafs-tapende aRisa- rækj
spjóti með peppadew Silunga hrogn i simeð japönsku majónes
nepsrjóma-osti á bruchettu Birkireykt-ur lax alioá bruchettu með
grillaðri papriku og fetaosti Hörpuskeljar ddju, 3 smáar á spjóti m/kry
taídýfu Frönsk súkkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum ufyVanill
tar vatnsdeigsbollur Súkkulaðiskeljar með jarðarberjum nguKjúkli
satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti RisahörpuskSími 511 8090 • www.yndisauki.is
Möndlu Mix og Kasjú Kurl
er ekki bara hollt snakk. Líka
gott í salatið. Hollt og gott
frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup,
Þín verslun Seljabraut, Kjöthöllinni,
Hreyfingu, Garðheimum, Mosfellsbakaríi
og Bakaríinu við brúna Akureyri.