Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
Smáauglýsingar
Iðnaðarmenn
FASTEIGNA-
VIÐHALD
Við þjónustum þig með
lítil sem stór verk.
Tímavinna eða tilboð.
johann@jaidnadarmenn.is
S. 544-4444/777-3600
www.jáiðnaðarmenn.is
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine
í Slóvakíu
býður upp á 6 ára viðurkennt nám í
læknisfræði. Kennt er á ensku.
Hagstæð skólagjöld. Margir
íslendingar eru í námi við skólann.
www.jfmed.uniba.sk/en.
Uppl. í s. 5444333 og fs 8201071
kaldasel@islandia.is
Bílar
Renault Megane Classic RT S/D
til sölu. Árgerð 1999, ek. 178.000 km.
Beinskiptur. Nýskoðaður og í góðu
standi. Eyðslugrannur og hentar vel
sem snattari eða skólabíll.
Verð: Tilboð.
Upplýsingar veitir Bjarni í
síma 691-9170.
Baldursnesi 1, 603 Akureyri,
s. 460-4300
LEXUS Rx450h F Sport
2/2015, 9þ.km, sjálfskiptur,
sóllúga. Verð 13.190.000.
Skipti ód. Rnr.200719.
Range Rover Sport SE
7/2006, 79þ.km, dísel,
sjálfskiptur, krókur, vetrar-
dekk. Verð 4.790.000.
Skipti ód. Rnr.118892.
Range Rover Sport HSE
tdv8. 5/2008, 68þ.km,
dísel, sjálfskiptur, krókur,
nagladekk á felgum.
Verð 7.780.000.
Skipti ód. Rnr.200717.
TOYOTA Land Cruiser 150
VX. 5/2013, 49þ.km,
dísel, sjálfskiptur.
Verð 9.790.000.
Skipti ód. Rnr.122981.
TOYOTA Land Cruiser
150 VX. 12/2012, 31þ.
km,dísel, sjálfskiptur.
Verð 9.690.000. Skipti ód.
Rnr.123000.
TOYOTA Land Cruiser
150 VX. 6/2013, 44þ.km,
dísel, sjálfskiptur.
Verð 9.850.000.
Skipti ód. Rnr.118777.
TOYOTA Land Cruiser
150 GX. 6/2010, 102þ.km,
dísel, sjálfskiptur.
Verð 6.680.000.
Skipti ód. Rnr.118683.
TOYOTA Rav4 GX Plus.
6/2014, 34þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð 5.390.000.
Skipti ód. Rnr.122987.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
✝ Ahmed HafezAwad (Ómar)
fæddist 26. febrúar
1942 í Kaíró,
Egyptalandi. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans
þann 15. apríl síð-
astliðinn.
Foreldrar hans
voru Salaheldin
Hafez Awad, lækn-
ir, f. 9. júlí 1910, d.
1991 og Afaf Abdel Azeem
Lotfy, húsmóðir, f. 25. júlí
1930, d. 2001. Bróðir hans var
Samir Salaheldin Awad, f. 15.
mars 1946, d. 2000. Ahmed
flutti til Íslands árið 1965 og
bjó hér til æviloka. Hann vann
við ýmis sölustörf en lengst af
hjá Osta- og Smjörsölunni og
Mjólkursamsölunni en hann
vann einnig sem stuðnings-
fulltrúi í Hafnarfjarðarbæ og
sem túlkur á efri
árum. Ahmed
stundaði stangveiði
af kappi og var
þekktur fyrir hæfni
sína með flugu-
stöng.
Ahmed lætur
eftir sig fjögur
börn 1) Samy
Awad, f. 20. sept-
ember 1963 í
Stokkhólmi, börn
hans eru Isac Fogelström og
Linnea Fogelström 2) Laila
Awad f. 5. október 1966, börn
hennar eru Arnar Breki Elfar,
Bríet Ísis Elfar og Hildur Laila
Hákonardóttir 3) Ómar Awad
Green, f. 17. október 1974, son-
ur hans Daníel Awad Ómarsson
4) Miriam Petra Ó. Awad, f. 10.
júlí 1990.
Útför hans fór fram frá
Seljakirkju.
Regnið bylur á rúðunni og ég
reyni í enn eitt skiptið að átta
mig á tilverunni án þín. Maður
fullorðnast svo hratt og gerir sér
ekki alltaf grein fyrir því stóra
hlutverki sem foreldrar manns
gegna. Ég reyni að finna styrk í
síðustu orðunum sem þú sagðir
við mig, að halda áfram og vera
hamingjusöm, en það er erfitt.
Ég sakna þín og þeirra stunda
sem við áttum saman, oftar en
ekki rúntandi um bæinn þar sem
við töluðum um heima og geima,
Ísland og Egyptaland, ferðalög,
mat og nöldruðum um hitt og
þetta. Og stoppuðum svo og
fengum okkur pylsu á leiðinni.
Eftir um það bil hálfa öld á
þessari eyju varstu orðinn ýmsu
vanur, lést veðrið ekki á þig fá.
Þegar vorar og ég vakna við
fuglasöng þá sendi ég þig af stað
í veiðiferð í huganum, með veiði-
stangirnar tilbúnar. Þar naustu
þín svo sannarlega – aðeins þú,
náttúran og guð.
Þú varst mikill heimsborgari
og ég mun seint gleyma síðustu
ferðinni okkar til Egyptalands.
Þú fékkst ófáan leigubílstjórann
til að skella upp úr, snerir við og
gekkst til baka heilu göturnar til
að gefa betlaranum smápening
sem þú fannst loksins í jakkavas-
anum og reyttir af þér brandara
í röðinni við flugvallareftirlitið.
Með árunum komst ég að því,
elsku pabbi, að þrátt fyrir
menntunarleysið sem þú kvart-
aðir stundum yfir, þá varstu nú
samt afar laginn við þitt.
Handlaginn með meiru, en
einnig ótrúlegur tungumálamað-
ur sem bjó yfir gífurlegri þekk-
ingu á þessu, hinu og heiminum.
Þú hafðir líka lifað og hrærst í
tveimur ólíkum menningarheim-
um og gast tvinnað þá svo fal-
lega saman. Svo varstu líka rosa-
lega duglegur að spjalla við fólk,
hvort sem þú þekktir það eða
ekki, og varst oftar en ekki bú-
inn að heilla það upp úr skónum.
Þegar þú féllst frá, þá held ég
að þú hafir loksins verið orðinn
sáttur við allt. Á einhverjum
tímapunkti í Kaíró nefndirðu að
þú hefðir stundum velt því fyrir
þér hvernig líf þitt hefði orðið
hefðirðu aldrei farið frá Egypta-
landi. Þá hefðirðu kannski náð
lengra í einhverjum viðskiptum
eins og margir skólafélaganna.
En einn sólríkan dag á svölunum
í Heliopolis sagðirðu mér að
sama hvað lífið í Egyptalandi
hefði getað boðið þér upp á, hefði
það aldrei fært þér börnin þín
fjögur og barnabörnin öll, sem
þú varst óhemju stoltur af.
Hið fallega Ísland var óneit-
anlega þitt heimaland líka en þú
sýndir öllum sem vildu myndir
héðan, til að sýna hvers vegna
Egypti frá Kaíró hefði sest að á
eyju í miðju Norður-Atlantshafi.
Ég skil svo margt núna eftir
að þú ert farinn, ég sé lífið í öðru
ljósi og reyni að læra af þér. Ég
veit þú ert á betri stað, laus við
hræðilegu veikindin sem hrjáðu
þig. Þess vegna er það erfiðasta
við þetta allt kannski ekki að þú
sért farinn, heldur að þurfa að
átta sig á því, og sætta sig við, að
samverustundir okkar í þessu
lífi verða ekki fleiri. Ég hlæ þá
bara fyrir okkur bæði og geymi
þig í hjarta mínu þar til við
sjáumst næst. Alltaf þín litla
dóttir, elsku pabbi, sem saknar
þín svo mikið.
Miriam Petra.
Ahmed Hafez
Awad
Kæri vinur, ég á
ennþá mjög bágt
með að trúa því að
þú sért í alvörunni
farinn, virkilega dapurt hérna án
þín.
Þú varst fyrsti vinur minn í
leikskólanum, besti vinur minn í
28 ár, og án efa sú manneskja
sem hefur haft mest áhrif á mig í
lífinu.
Þú varst nokkurs konar eldri
bróðir sem ég elti bara blint
hvert sem er. Þegar þú vildir
vera markmaður í fótbolta varð
ég líka að vera það. Þegar þú
vildir svíkja lit og fara yfir í FH
kom ekkert annað til greina.
Þórólfur
Sverrisson
✝ ÞórólfurSverrisson,
Þóró, fæddist 4.
janúar 1983. Hann
lést 17. desember
2014. Útför hans
fór fram 23. janúar
2015.
Þegar þú ákvaðst
að rap og hip hop
væri ömurleg tón-
listarstefna, þá var
það bara þannig.
Fyrstu tónlistar-
áhrifin beint í æð
voru að sjálfsögðu
„Fólk er fífl“ með
Botnleðju, Bubbi,
Prodigy, Jethro
Tull, Moody Blues,
Jimmy Hendrix,
o.fl. snillingar, frekar háþróaður
tónlistarsmekkur hjá 11 ára
gutta.
Þú varst ekki hræddur við
neitt, sem var alltaf pínu ógn-
vekjandi, held samt að það hafi
gert mig harðari fyrir vikið.
Áramótin ’94 sprengdum við
fullt af froskum við alla gluggana
í umsjónarstofunni okkar í Álfta-
nesskóla.
Einn glugginn brotnaði og við
(ég) vorum geðveikt hræddir um
að við yrðum reknir úr skólanum
ef það kæmist upp um okkur. Þú
róaðir mig niður með því að út-
skýra fyrir mér hvernig atvinnu-
menn í fótbolta þyrftu ekki skóla
og ef við yrðum reknir þá gætum
við bara æft meira sem myndi
hvort eð er auka líkur okkar á at-
vinnumennsku. Mjög öflug rök-
semdafærsla.
Tvisvar á okkar lífsleið lentum
við í alvöru slagsmálum við
hvorn annan.
Bæði skiptin snérust um hvort
boltinn hefði farið í stöngina eða
í markið í vítakeppni milli okk-
ar… þar sem markið var gert úr
yfirhöfnum.
Ég hef ávallt talað um jafntefli
öll þessi ár, sem þér fannst alltaf
mjög fyndið en nenntir samt ein-
hverra hluta vegna aldrei að
mótmæla… takk fyrir það bróð-
ir.
Hefði Bubbi fengið að lýsa
þessum bardögum hefði þetta
verið B-O-B-A! „Rothögg Þóró“,
enda hljóp ég grenjandi heim í
bæði skiptin.
Þú varst aldrei smeykur við að
láta mig heyra það ef ég var ekki
að standa mig, allt frá asnalegum
klæðnaði, matarvenjum, aðdáun
minni á Sigurrós, til alvarlegra
lífsákvarðana.
Enginn var jafn hreinskilinn
og beinskeyttur og þú. Óhrædd-
ur við að hrauna yfir mig hvenær
sem er, hvar sem er. Þetta hélt
mér á tánum, gerði mig sterkan.
Þú hafðir þó ekki alltaf rétt fyrir
þér en svona okkar á milli þá var
það miklu oftar en ég vildi við-
urkenna.
Hvern hefði grunað hversu
mikið ég myndi sakna alls skít-
kastsins frá þér sem ég þurfti að
líða fyrir að halda með Liver-
pool! Óendanlegt hatur þitt
gagnvart uppáhalds knatt-
spyrnuliði mínu er eitthvað sem
ég og strákarnir munum sakna
mikið, klassískt stuff.
Ég gat alltaf treyst á þig þeg-
ar ég þurfti hjálp, sem var all-
svakalega oft þegar ég lít til
baka. Traustari vin er ekki hægt
að finna neins staðar.
Takk fyrir allt Þóró minn, þú
ert goðsögn í hæsta gæðaflokki
alveg eins Baron Munchausen!
Eina leiðin til að þú myndir
samþykkja þetta væl, sem þú
myndir að sjálfsögðu kalla þetta
hjá mér, er að enda með vitnun í
meistarann sjálfan.
„Gott fólk drekkur góðan
bjór.“ –Hunter S. Thompson
Jón Axel Jónsson.
Maður kynnist
mörgu fólki á lífs-
ins leið. Einn ætt-
ingja minna
ágætra þekkti ég alla ævi. Það
var Nanna móðursystir mín,
Kristjana Pétursdóttir, fædd á
Laugum í Súgandafirði.
Þannig réðst á árum áður að
þrjár Laugasystra áttu heima á
sömu torfunni á Hvaleyrarholt-
inu í Hafnarfirði um áratuga
skeið. Munda á Mosabarði,
Beta á Þúfubarði og Nanna á
Móabarði. Af eðlilegum ástæð-
um var mikill samgangur þarna
á milli alla tíð. Nú eru þær
fallnar frá, nú síðast Nanna, 95
Kristjana Petrína
Pétursdóttir
✝ Kristjana Petrína Péturs-
dóttir fæddist 16.
apríl 1920. Hún lést
12. ágúst 2015. Út-
för Kristjönu fór
fram 24. ágúst
2015.
ára gömul. Af
Laugasystkinum er
nú aðeins eftir á
lífi Sveina á Akur-
eyri sem hélt á
mér í fangi sínu frá
fyrsta degi – ynd-
isleg manneskja,
sem nú ein systk-
inanna hefur tekið
við lífskeflinu.
Í 12 barna hópi
voru afar heil-
steyptar manneskjur. Þau voru
samhent, yndisleg og hvert
öðru betur gefið. Þau eru mér
öll nákomin – hvort sem þau
bjuggu í Súgandafirði, Hafnar-
firði, Reykjavík eða Akureyri.
Yndislegar manneskjur, með
afar hlýtt hjartalag.
Það var alltaf ánægjulegt að
heimsækja Nönnu og Grím,
eiginmann hennar, sem lést
fyrir allmörgum árum.
Síðast heimsótti ég Nönnu í
síðasta dvalarstað hennar í
þessu jarðlífi, á Sólvangi í
Hafnarfirði, fyrir nokkrum vik-
um. Hún var ótrúlega hress þó
að síðustu lífsdagar væru
gengnir í garð. Hún var eins og
tölva, hún Nanna, spurðist fyrir
um allt og alla í Súgandafirði.
Nánast eina sem merkti að hún
væri farin að eldast var að hún
var aðeins farin að missa heyrn.
En þá hváði hún bara. Vildi
vera viss um að það sem sagt
var væri rétt. Söm við sig. Það
voru ekki margar vikur liðnar
frá fráfalli náfrænku Nönnu og
nánast jafnöldru, Ásdísar Frið-
bertsdóttur frá Suðureyri. Þær
voru nánar.
Þau hjónin Nanna og Grímur
gengu götur Hafnarfjarðar alla
tíð, utan spora hennar á Laug-
um og eitthvað á annan áratug
þeirra hjóna sem bændur í Sel-
skarði á Álftanesi. Nanna var
mikill Súgfirðingur alla tíð –
sama má segja um tilfinningar
hennar til Álftaness og Hafnar-
fjarðar.
En fyrst og fremst var
Nanna alla tíð mikill Íslend-
ingur. „Íslandi allt“ var ríkt í
hennar hjarta. Stundum er sagt
að dauðinn sé hluti lífsins. Það
getur vel verið.
En það tekur samt alltaf á.
„Það syrtir að er sumir
kveðja.“ Og 95 ára gamla
Nannan okkar kvaddi með
reisn.
Þannig reyndi hún alla tíð að
hafa reisn yfir sínu lífi. Hún
bognaði sjálfsagt stundum – en
brotnaði aldrei. Sjálfsagt komst
hún næst því að brotna þegar
hún missti son sinn óskírðan
nokkurra vikna gamlan.
Sat það alla tíð í henni. Einn-
ig var henni sárt að kveðja eig-
inmann sinn, Ásgrím Jónsson.
Þau voru mjög samstiga og
samhent alla tíð og áttu saman
langa ævi.
Stundin er komin hérna
megin. Henni verður vel tekið á
grænum grundum sumarlands-
ins. Þar fagna henni margir
þeir sem á undan eru farnir.
Þar hittast vinir í varpa. Ég
þakka Nönnu samfylgdina sem
ég á aðeins jákvæðar minning-
ar um. Ég votta afkomendum
Nönnu og Gríms samúð mína.
Guð blessi Kristjönu Petrínu
Pétursdóttur. Svo sannarlega
reyndi hún alla tíð að vísa sér
og sínum réttan veg. Takk fyrir
allt.
Ævar Harðarson.