Morgunblaðið - 10.09.2015, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Í fyrrinótt mátti finna trampólín
uppi í trjám, á bílum og ljósastaur-
um, svo eitthvað sé nefnt. Einnig
fuku stillansar, þakkantar og plötur,
ferðavagnar og skjólveggir. Um 50
björgunarsveita-
menn voru við
störf í fyrrinótt í
fyrstu alvöru
haustlægðinni.
Smári Sigurðs-
son, formaður
Slysavarna-
félagsins Lands-
bjargar, segir að
litlum og einföld-
um verkefnum sé
að fjölga.
„Ég er búinn að flytja margar
ræður um hegðun Íslendinga og að
það sé búið að ala okkur upp í að
vera svolitlir aumingjar. Fólk stend-
ur í glugganum heima hjá sér og sér
ruslatunnu nágrannans takast á loft
og stefna á bíla. Hvers vegna í
ósköpunum er ekki farið af stað, náð
í tunnuna og komið í veg fyrir tjón.
Af hverju er það fyrsta sem fólk ger-
ir að hringja í 112 og bíða eftir að
aðrir geri hlutina. Að gera eitthvað í
þessu sjálfur? Nei, það er beðið eftir
einhverjum sjálfboðaliðum sem eru í
önnum einhvers staðar annars stað-
ar,“ segir Smári.
Mæta í öll útköll
Hann ítrekar að Björgunarsveitir
mæti að sjálfsögðu í öll þau útköll
sem þær séu boðaðar í.
„Þetta er sem betur fer minnihluti
fólks sem hagar sér svona. Meiri-
hlutinn er ábyrgur í sínu umhverfi
og tekur tillit til veðurspár. En við
getum gert miklu meira til að af-
stýra þessum litlu verkefnum sem
ég kalla óþarfa útköll. Auðvitað för-
um við í öll útköll ef þess þarf en það
má koma í veg fyrir mörg þeirra.“
Smári segir að líkindin með út-
köllum í haustlægðum séu mjög
mikil. Þetta snúist oft um trampólín,
ruslatunnur og skjólveggi sem séu
ekki föst þrátt fyrir viðvaranir.
„Þegar Björgunarsveitir eru farn-
ar að fara þrisvar sinnum í sama
garðinn að reyna að binda sama
skjólvegg niður sem fauk líka í síð-
ustu lægð og eigandinn hefur ekkert
gert í millitíðinni þá veltir maður
fyrir sér hvort það sé eðlilegt að
hringja bara í 112 og biðja einhvern
annan að festa skjólvegginn.
Þetta eru nefnilega nánast alltaf
sömu útköllin. Þessi meðvitund um
okkar eigin umhverfi, hún hefur dal-
að og dvínað.“
Var búið að vara við vindi
Hann bendir á að þessi fyrsta
haustlægð hafi ekki komið óvænt,
Veðurstofan hafi verið búin að vara
við henni í marga daga.
„Það var aldeilis búið að tala um
þessa lægð og það koma haustlægðir
á Íslandi. Það er of mikið um óá-
byrga hegðun gagnvart einföldum
hlutum sem þyrfti að breytast,“ seg-
ir hann og tekur dæmi um rusla-
tunnu upp við hús.
„Ruslatunnan stendur við húsið
365 daga á ári og á Íslandi eru þessir
7-10 dagar þar sem er vesen vegna
veðurs. Af hverju er þá ruslatunnan
ekki fest niður? Af hverju er rusla-
tunnan enn laus?
Það er búið að vera byggð í þessu
landi í meira en þúsund ár og eftir að
öskutunnur voru fundnar upp hafa
þær yfirleitt farið á loft þegar haust-
lægðirnar koma. Þó ruslatunnur og
trampólín séu ekki búin að vera til í
öll þessi ár þá hafa þau verið hér á
landi í allavega 10 ár og það getur
ekki verið að það komi fólki enn á
óvart að það þurfi að festa hluti nið-
ur.“
Óþarfa útköllum fer fjölgandi
Björgunarsveitir sinna yfirleitt sömu verkefnunum í haustlægðum Trampólín og ruslatunnur tak-
ast á loft og valda tjóni Þrisvar í sama garð að festa sama skjólvegginn Sama ræðan ár eftir ár
Morgunblaðið/Eggert
Haustlægð Litlu mátti muna að illa færi þegar tjald sem ætlað var fyrir Októberfest Stúdentaráðs HÍ féll í rokinu
en björgunarsveitarmenn sem voru inni í tjaldinu náðu að forða sér áður en tjaldið féll. Bíll sveitarinnar skemmdist.
Smári
Sigurðsson
Leiðindaveður var víða um land
í gær og í Ólafsvík fór vindur í
40 metra á sekúndu í hviðum. Á
þremur stöðum féllu tré á götur
og lokuðu þeim; við Strandgötu
í Hafnarfirði, Hlíðarveg í Kópa-
vogi og Höfðabakka í Reykjavík.
Tilkynnt var um a.m.k. 22 laus
trampólín í fyrrinótt en í nokkr-
um tilvikum höfðu þau valdið
tjóni, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu, en alls voru veð-
urtengd útköll lögreglu um sjö-
tíu talsins. Björgunarsveitarfólk
fór í yfir 40 útköll á höfuðborg-
arsvæðinu í fyrrinótt en um 35-
40 björgunarsveitarmenn voru
að störfum.
Dúkur með áprentaðri mynd
af Fríkirkjuvegi 11 og vinnupall-
ar sem stóðu við húsið vegna
framkvæmda voru meðal þess
sem fékk að kenna á lægðinni,
skemmtiferðaskip sem átti
að leggjast við Oddeyrarbryggju
á Akureyri í gærmorgun þurfti
frá að hverfa vegna veðurs og
litlu mátti muna að illa færi
þegar tjaldið, sem ætlað var fyr-
ir Októberfest Stúdentaráðs HÍ,
féll í rokinu en björgunarsveit-
armenn sem voru inni í tjaldinu
áttu fótum sínum fjör að launa.
Bíll björgunarsveitarinnar
skemmdist þegar tjaldið féll á
hann
Laus tramp-
ólín svifu um
loftin blá
40 ÚTKÖLL Á HÖFUÐBORG-
ARSVÆÐINU Í FYRRINÓTT
Í DAG ER SÍÐASTI DAGURINN TIL AÐ NÝTA ALLT AÐ 20.000 KR.
BÓKUNARAFSLÁTT AF FERÐUM TIL TENERIFE OG KANARÍ Í VETUR.
Flogið frá 20. október með Icelandair.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
SÍÐASTI
DAGURINN!
20.000 KR.
BÓKUNARAFS
LÁTTUR
TIL 10. SEPT.
NÁNAR Á UU.IS
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Kjaraviðræður Sjúkraliðafélags Ís-
lands (SLFÍ), Landssambands lög-
reglumanna (LL) og Stéttarfélags í
almannaþjónustu (SFR) við ríkið
virðast vera strandaðar. SFR mun á
næstu dögum ráðfæra sig við fé-
lagsmenn og ræða möguleikann á
verkfallsaðgerðum, en SLFÍ ætlar
að funda með félagsmönnum og at-
huga hvernig landið liggur áður en
ákvarðanir verða teknar um fram-
haldið.
Launakröfur félaganna, sem eru í
samfloti í viðræðunum, byggjast á
niðurstöðum gerðardóms í deilum
ríkisins við BHM og hjúkrunarfræð-
inga, auk þeirra kjarasamninga sem
ríkið hefur gert við aðra ríkisstarfs-
menn, svo sem lækna og framhalds-
skólakennara. Félögin segja í frétta-
tilkynningu að ríkið hafi ekki sýnt
neinn vilja til að ræða kröfur félag-
anna. Þegar hafa verið haldnir sex
fundir hjá ríkissáttasemjara og ekki
hefur verið boðaður annar fundur.
Vilja elta hjúkrunarfræðingana
Þegar blaðamaður náði sambandi
við Kristínu Á. Guðmundsdóttur,
formann SLFÍ, var hún á fundi með
sjúkraliðum á Landspítalanum við
Hringbraut, að gera þeim grein fyrir
stöðu mála í kjaraviðræðunum. Hún
segir að það hafi tíðkast í 14 ár að
sjúkraliðar hefðu ákveðið hlutfall,
nánar til tekið 80%, af launum hjúkr-
unarfræðinga, sem fengu umtals-
verðar launahækkanir í síðustu
kjarasamningum.
„Þetta eru einstaklingar sem
vinna saman, í sama álaginu inn á
sjúkrahúsunum. Það er búið að
semja um hvert hlutfall eigi að vera á
milli stétta. Við erum ekki að biðja
um sömu laun, en við erum aftur á
móti að krefjast þess að fá sömu pró-
sentu,“ segir Kristín og bætir við að
mikil reiði hafi verið í félagsmönnum
SLFÍ á Landspítalanum við Hring-
braut.
Skoða verkfallsaðgerðir
Næsta þriðjudag verður haldinn
stór kjaramálafundur í Háskólabíói
hjá félagsmönnum SFR, þar sem
næstu skref verða rædd í kjaradeil-
unum. „Við munum stilla málinu
þannig upp að við virðumst ekki
komast lengra í þessari samninga-
gerð nema að við beitum einhvers
konar aðgerðum og við munum
spyrja okkar félagsmenn að því
hvort það eigi að vera næsta skref-
ið,“ segir Árni Stefán Jónsson, for-
maður SFR.
Hann segir niðurstöðu gerðar-
dóms mjög svipaða þeim kjarasamn-
ingum sem ríkið hafði gert áður og
það hljóti að gilda um aðra ríkis-
starfsmenn líka. Spurður hvort for-
sendur niðurstöðu gerðardóms ættu
við um félagsmenn SFR, þá sérstak-
lega hvað varðar menntun, segir
Árni félagsmenn verkalýðsfélaganna
þriggja vera með lág laun miðað við
laun ríkisstarfsmanna almennt séð.
Það væri ósanngjarnt að „efri lögin“
fengju töluverðar launahækkanir á
sama tíma og það eigi að skilja þá
eftir sem eru með lægri launin.
Með 16-17% lægri laun
Þá bendir Árni einnig á að jafna
þurfi launabilið milli ríkisstarfs-
manna og starfsmanna á hinum al-
menna launamarkaði. Samkvæmt
launakönnunum séu ríkisstarfsmenn
með 16-17% lægri laun en þeir sem
vinna sambærileg störf á hinum al-
menna vinnumarkaði.
Lögreglumenn geta ekki farið í
verkfall, en verkfallsréttur þeirra
var afnuminn árið 1986. Síðan þá
hafa ávallt staðið langar deilur þegar
kjarasamningar lögreglumanna eru
lausir. Ein af kröfum þeirra í kjara-
viðræðunum er að fá verkfallsréttinn
aftur.
Kjaraviðræður við
ríkið árangurslausar
SFR ræðir við félagsmenn um að beita aðgerðum
Kristín Á.
Guðmundsdóttir
Árni Stefán
Jónsson
Spáð er betri tíð um helgina en síð-
ustu tvo daga, en stormur hefur
geisað um landið og valdið erfið-
leikum. Storminum mun þó slota er
líða tekur á daginn og vindur fara í
5-10 metra á sekúndu.
Á morgun er spáð talsverðri
rigningu suðaustan- og austanlands
en litlum vindi. Um helgina er spáð
hægum vindi, en úrkomu í öllum
landshlutum sem mun teygja sig yf-
ir til mánudags. Í byrjun næstu viku
er gert ráð fyrir norðanátt með
rigningu á Norðurlandi og kólnandi
veðri. Þó verður nokkuð þurrt og
bjart sunnanlands.
„Þau sem eru eftir munu líklega
Vindur gengur niður en víða væta
haldast á sínum stað,“ segir Birta
Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur,
spurð hvort fólk eigi að koma tram-
pólínum tryggilega fyrir um
helgina.
Morgunblaðið/Eggert