Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Vestur-Íslendingurinn
Christine Geir Hall,
„Stína litla“, andaðist í
Grafton í Norður-
Dakóta í Bandaríkj-
unum 6. september síð-
ast liðinn, 106 ára að
aldri.
Christine fæddist í
Mountain í Norður-
Dakóta, 5. júní 1909.
Foreldrar hennar voru
Kristján Einar Geir og
Sólveig Guðrún Þor-
gilsdóttir (Halldorson).
Föðurafi hennar og
amma, Jóhann Geir Jóhannesson og
Anna Kristín Jónsdóttir, fluttu frá
Íslandi til Gimli í Manitoba, Kanada,
og þaðan til Mountain 1880. Jóhann
Geir var frá Snorrastöðum í Kol-
beinsstaðahreppi í Hnappadals-
sýslu. Anna Kristín var frá Fjarð-
arhorni í Staðarsókn í
Vestur-Húnavatnssýslu. Þau voru
samferða frá Íslandi 1876, kynntust
á skipinu og gengu í hjónaband 1878.
Móðurafi Christine og amma voru
Þorgils Halldórsson frá Hundadal í
Miðdalahreppi í Dalasýslu og Krist-
ín Jónsdóttir frá Arnarvatni í Mý-
vatnssveit. Hann flutti til Vest-
urheims 1876 en hún 1873.
Christine var elst ellefu systkina.
Eiginmaður hennar var Joseph W.
Hall. Hann fæddist 4.
apríl 1905 og andaðist
3. febrúar 1990. Hann
var sonur Jóhanns
Gunnars Hall og Hosi-
anna Guðbjargar Wal-
ter, sem stofnuðu fjöl-
skyldufyrirtækið J. G.
Hall & Sons 1915 er
seldi kartöflur vítt og
breitt um Bandaríkin.
Skáldið Kristján
Níels Jónsson, KN,
flutti í íslensku byggð-
ina í Pembina 1893.
KN var vinnumaður
hjá fjölskyldu Christine í áratugi,
hændist að ungu stúlkunni og samdi
mörg ljóð til hennar, m.a. ljóðið „Til
Stínu litlu Geir“.
Christine tók kennarapróf í des-
ember 1931 og kenndi næstu ár í
Þingvallasveit eða þar til hún giftist
1936. Christine og Joseph eignuðust
fjóra syni.
Hjónin bjuggu skammt sunnan
við Garðar. Christine var virk í safn-
aðarstarfinu og var virt í sveitinni.
Hún afhjúpaði endurbætt minn-
ismerki um KN við Þingvallakirkju í
Eyford 2. ágúst 1999.
Útför Christine Hall Geir verður í
Edinburg, Norður-Dakóta, laug-
ardaginn 12. september næst kom-
andi.
Andlát
Christine Geir Hall
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Full búð
af nýjum
vörum
Verið velkomin
Túnikur
Peysur
Bolir
Pils
Kjólar o.fl.
Vinsælu velúrgallarnir
alltaf til í mörgum litum
Stærðir S-XXXXL
Ný sending
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Skoðið laxdal.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
20%
afsláttur
ALLRAVEÐRA-
KÁPUR
Vind- og vatnsþéttar
St. 38-52
Mennta- og
menningar-
málaráðherra
hefur skipað dr.
Sigurbjörn Árna
Arngrímsson
skólameistara
Framhaldsskól-
ans á Laugum til
fimm ára.
Sigurbjörn
Árni Arngríms-
son hefur B.S. Ed. gráðu frá Uni-
versity of Georgia í íþrótta- og
heilsufræði, M.A. gráðu í íþrótta-
fræði og Ph. D í íþróttafræði frá
sama skóla. Hann hefur gegnt
stöðu prófessors og varadeild-
arforseta Íþrótta- og tómstunda- og
þroskaþjálfadeildar við Háskóla Ís-
lands frá 2014.
Dr. Sigurbjörn Árni
Arngrímsson
Sigurbjörn skóla-
meistari á Laugum
Ferðamálastofa, Íslandsstofa og
Samtök ferðaþjónustunnar efna í
dag til umræðufundar ferðaþjón-
ustuaðila um umhverfislæsi í
tengslum við kynningar- og upplýs-
ingaefni fyrir erlenda markaði.
Fundurinn fer fram á Grand Hótel
og stendur frá 10.30-12.00.
Andrés Arnalds, fagstjóri Land-
græðslunnar, flytur erindi um hlut-
verk ferðaþjónustunnar í verndun
náttúruauðlinda og erindi Jóns
Gests Ólafssonar, Bílaleigu Ak-
ureyrar, nefnist: Að halda sér á
veginum – hvernig er ferðamað-
urinn upplýstur? Umræðustjóri
er Inga Hlín Pálsdóttir, Íslands-
stofu.
Umhverfislæsi
og upplýsingar