Morgunblaðið - 10.09.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Skemmtiferðaskip með um 2000
farþega varð að snúa frá höfuðstað
Norðurlands í gærmorgun vegna
veðurs. Stíf sunnanátt gerði það að
verkum ekki var hægt að leggjast að
Oddeyrarbryggju. Slíkt er fátítt.
Síðasta skemmtiferðaskip sum-
arsins er væntanlegt til Akureyrar
með morgninum og spáin er þannig
að túristarnir ættu að komast í land.
Mismunandi er milli ára hvort
snjór hverfur alveg úr Vaðlaheið-
inni. Ekki voru menn bjartýnir á það
í sumar vegna kulda, en mikil hlýindi
og sterk sunnanátt síðustu daga
hafa orðið til þess að nú allt er horfið
nema skafl á stærð við frímerki (frá
Akureyri séð). Spurning hvort hann
verður ekki horfinn þegar blað dags-
ins berst lesendum.
Íslandsmótið í handbolta karla
er að hefjast og af því tilefni til-
kynnti stjórn Akureyrar - hand-
boltafélags í gær að í vetur yrðu
heimaleikir liðsins í KA-heimilinu.
„Þessi ákvörðun er einfaldlega
tekin með hagsmuni handboltans á
Akureyri í huga. Undanfarin tímabil
hefur þótt skorta nokkuð upp á að
Íþróttahöllin væri sú „gryfja“ sem
handboltinn á Akureyri þarfnast.
Áhorfendastúkan er stór, áhorf-
endur sitja dreift og fjarri vellinum
þannig að leikmenn eiga erfitt með
að skynja nálægð áhorfenda,“ segir í
tilkynningu frá handboltafélaginu.
Endurbætt bráðamóttaka og
sameiginleg móttaka með mynd-
greiningadeild var nýverið tekin í
notkun á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Jafnframt hefur verið tekið í notkun
nýtt forgangsröðunarkerfi sem mið-
ar að bættu flæði og auknu öryggi
sjúklinga og nýtt sjúklingavökt-
unarkerfi inni á bráðamóttöku.
Að sögn forsvarsmanna SAk má
halda fram að um byltingu sé að
ræða, bæði hvað varðar aðkomu og
öryggi skjólstæðinga og ekki síður
vinnuaðstöðu starfsfólks. Miklar
vonir eru bundnar við að hið nýja
fyrirkomulag auki skilvirkni í starf-
seminni og stytti biðtíma skjólstæð-
inga bráðamóttöku.
„Sameinuð móttaka mynd-
greiningadeildar og bráðamóttöku
tekur á móti um 200 sjúklingum á
dag auk þess sem starfsmenn henn-
ar svara fjölda fyrirspurna í síma,“
segir Hildigunnur Svavarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar og
bráða-, fræðslu- og gæðasviðs.
Nýja sjúklingavöktunarkerfið er
gjöf frá Styrktar- og líknarsjóði
Oddfellow. Það samanstendur af
átta vaktskjáum og einni móðurstöð.
„Eitt tæki er við hvert rúm á bráða-
móttökunni og getur það mælt hjart-
slátt, súrefnismettun og önd-
unartíðni, sýnt hjartalínurit svo
eitthvað sé nefnt. Hægt er að taka
lítið stykki úr tækinu og láta það
fylgja sjúklingnum ef hann þarf að
fara á aðrar deildir. Þannig getur
starfsfólk bráðamóttöku fylgst
áfram með lífsmörkum hans úr vakt-
herberginu. Kerfið er mjög not-
endavænt og allt viðmót mjög gott.
Sams konar kerfi er notað á gjör-
gæsludeild og barnadeild.“
Sýning á verkum Bergþórs
Morthens myndlistarmanns, Við af-
tökustaðinn, verður opnuð í Komp-
unni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði á
laugardaginn. Bergþór, sem er
fæddur 1979, stundaði nám í Mynd-
listaskólanum á Akureyri og mast-
ersnám við Valand listaakademíuna í
Gautaborg. „Verk Bergþórs ögra
viðmiðum portrett-hefðarinnar og
daðra við hið gróteska. Viðfangs-
efnin eru í mörgum tilfellum, stjórn-
málamenn og fólk í valdastöðum,
máluð á „hefðbundinn“ máta en í
stað þess að upphefja viðfangsefnið
er samhenginu breytt með miðlun
listamannsins,“ segir Aðalheiður S.
Eysteinsson í Alþýðuhúsinu.
Boðið verður upp á leiðsögn um
samsýninguna Haust í Listasafninu
á Akureyri í dag kl. 12.15 til 12.45.
Þar sýna 30 norðlenskir listamenn
og taka tveir þeirra, Bergþór Mort-
hens og Þórgunnur Oddsdóttir, á
móti gestum ásamt Hlyni Hallsyni
safnstjóra.
Ljósmynd/BB
Sjúkrahúsið Hluti starfsfólks deildanna þar sem breytingar hafa orðið, bráðamóttöku og myndgreiningadeildar.
Akureyri í KA-heimilið
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Frysting eigna hefur verið talsvert
íþyngjandi og haft mikil áhrif. Þetta
sagði Katrín Þorvaldsdóttir, systir
Skúla Þorvaldssonar, eins hinna
ákærðu í Marple-málinu, en eignir
félaga Skúla voru kyrrsettar og farið
fram á upptöku þeirra. Katrín var
meðal vitna í gær, þriðja og síðasta
dag skýrslutöku í málinu.
Kristín og Skúli, auk systur
þeirra, stofnuðu félagið Holt holding
í Lúxemborg árið 1999, eftir að þau
seldu fyrirtækið Síld og fisk. Seinna
urðu þau tvö einu eigendur þess.
Kristín segir að fjárhagsstaða fé-
lagsins um áramótin 2007-8 hafi ver-
ið um 60 milljónir evra, eða tæplegar
900 milljónir á gengi dagsins í dag.
Við yfirheyrslur sagði hún að á þess-
um fimm árum sem eignarhluturinn
hefur verið kyrrsettur hefði það haft
gríðarleg áhrif á hana.
Félögin rekin úr eigin vasa
Sagðist hún hafa þurft að greiða
auðlegðarskatt hér á landi vegna
eignanna sem hún kæmist ekki í og
þá hefðu félögin þessi ár verið rekin
úr vasa þeirra systkina, án þess að
þau hefðu neinn aðgang að fjármun-
unum til að standa undir rekstrinum.
Sagði hún þetta óskiljanlegt með
öllu, enda væri um arð að ræða af
fjármunum sem hefðu komið inn í
kringum síðustu aldamót.
Þá bar einnig Jón Óttar Ólafsson,
fyrrverandi starfsmaður hjá sér-
stökum saksóknara, vitni í dómsal.
Er hann eitt af fáum vitnum sem
verjendur ákærðu boðuðu til
skýrslutöku. Verjandi Hreiðars Más
leiddi skýrslutökuna yfir honum þar
sem Jón Óttar bar embætti sérstaks
saksóknara þungum sökum, en í
fyrri málum sérstaks saksóknara
hafði dómurinn ekki fallist á að hann
bæri vitni.
Gagnrýndi embætti saksóknara
Gagnrýndi hann meðal annars að
starfsmenn embættisins hefðu, á
þeim tíma sem hann vann þar, hlust-
að á símtöl við verjendur sem hefðu
getað hjálpað mikið við og verið upp-
lýsandi til að vita stefnu verjenda.
Sagði hann frá því hvernig lög-
reglumenn hefðu fengið aðgang að
tölvudrifi þar sem öll símtöl sem tek-
in voru upp voru aðgengileg. Ekkert
væri gert til að sigta út símtöl verj-
anda, annað en að þeir lögreglumenn
sem hlustuðu þurftu að gera sér
grein fyrir hver væri viðmælandinn.
Það gat oft tekið langan tíma, sagði
hann, þó að sumar raddir væru
kunnuglegri en aðrar.
Brýnt fyrir öllum að hætta að
hlusta
Verjendur kölluðu til tvo lögreglu-
menn og báru þeir vitni. Saksóknari
nýtti tækifærið og spurði lögreglu-
mennina, sem báðir höfðu stýrt
rannsóknum hjá sérstökum sak-
sóknara, út í ummæli Jóns Óttars.
Sögðu þeir báðir að ekki væri
hægt að vita fyrir fram hvort um
verjanda væri að ræða eða ekki, en
fyrir öllum starfsmönnum hefði ver-
ið brýnt fyrir rannsóknina að hætta
að hlusta ef um væri að ræða samtal
ákærðu við verjendur. Í dag hefst
málflutningur saksóknara og verj-
enda og er gert ráð fyrir því að hon-
um ljúki á föstudag.
Íþyngjandi
eignafrysting
Sérstakur saksóknari gagnrýndur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Héraðsdómur Skúli Þorvaldsson
segist ekki hafa átt félagið Marple.
Marple-málið
» Málið snýst um greiðslur til
félagsins Marple, sem Skúli
átti, þótt deilt sé fyrir dómi um
hvort hann hafi átt það í raun.
» Um er að ræða millifærslur
fyrir sex milljarða króna.
» Ákærðu segja þær hafa ver-
ið gerðar vegna uppgjörs á af-
leiðuviðskiptum og gjald-
miðlaskiptum. Samningar þar
að lútandi hafa þó ekki fundist.
Bæjarstjórn Akraness samþykkti á
fundi sínum 8. september að lýsa
yfir vilja til að hefja viðræður við
velferðarráðuneytið um aðkomu
sveitarfélagsins að móttöku flótta-
fólks frá Sýrlandi. Á fundinum var
bæjarstjóra falið að upplýsa ráðu-
neytið um vilja sveitarfélagsins.
Í frétt frá Akraneskaupstað seg-
ir að bærinn hafi talsverða,
reynslu af móttöku flóttamanna en
fyrir nákvæmlega sjö árum, hinn
8. september árið 2008, tók kaup-
staðurinn á móti 29 palestínskum
flóttamönnum frá Al
Waleed-flóttamannabúðunum í
Írak. Regína Ásvaldsdóttir bæjar-
stjóri segir að bærinn vilji gjarnan
miðla reynslu sinni af verkefninu
og að bæjaryfirvöld telji það sam-
félagslega skyldu Íslendinga að
axla ábyrgð í þeim erfiðu að-
stæðum sem milljónir Sýrlendinga
búa við núna. Bæjaryfirvöld geri
sér grein fyrir að móttaka flótta-
manna krefjist vandaðs undirbún-
ings og eftirfylgni og hafi komið
þeirri skoðun á framfæri opin-
berlega.
Akranes vill taka
við flóttafólki