Morgunblaðið - 10.09.2015, Síða 15

Morgunblaðið - 10.09.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015 Þar sem úrvalið er af umgjörðum Fagmennska fyrst og fremst www.opticalstudio.is www.facebook.com/OpticalStudio OPTICAL STUDIO – FRÍHÖFN Módel: Kristín Birgisdóttir. Umgjörð: Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Stjarna Óðins Valdimarssonar hefur skyndilega tekið að skína á ný en lagið hans Ég er kominn heim hefur gengið í endurnýjun lífdaga und- anfarin ár. Lagið, sem heitir upp- runalega Heut’ nacht hab’ ich get- räumt von dir, úr óperunni Das Veilchen vom Montmartre og er eft- ir Emmerich Kálmán, hefur verið sungið oft og innilega undanfarin ár en á sunnudag var ákveðnum há- punkti náð þegar tíu þúsund áhorf- endur á landsleik Íslands og Ka- sakstan sungu lagið. Stemningin var rafmögnuð þegar lækkað var í tón- listinni og hver einn og einasti kunni íslenska texta Jóns Sigurðssonar. Árið 1998 var viðtal tekið við Óð- inn í Morgunblaðinu og hafði blaða- maður ekki hugmynd um hvaða lag Óðinn væri þekktur fyrir en þá var verið að setja upp sýninguna Rokk- stjörnur Íslands: „Mörg lög eru orð- in sígild í flutningi Óðins á borð við „Í kjallaranum“ og „Útlaginn“. En hvað ætlar hann að syngja í rokk- sýningunni? „Ég tek lögin Magga og Ég er kominn heim,“ segir hann. Hvaða lag er það aftur? verður blaðamanni á að spyrja,“ stóð í blaðinu þannig að ekki er langt síð- an að lagið varð á ný almannaeign. Þáttur Tólfunnar Tólfan, stuðningsmannasveit ís- lenska landsliðsins, hefur gert lagið að sínu og sungið hástöfum fyrir og eftir landsleiki. Benjamín Hall- björnsson, varaformaður Tólf- unnar, tekur undir að lagið sé óop- inbert lag Tólfunnar. Benjamín bjó úti á Spáni og þegar hann flutti heim til Íslands 2011 fór hann að syngja lagið ótt og títt. „Ég fór að taka eftir laginu þá. Síðan þá hefur þetta lag dúkkað upp á ýmsum viðburðum, ekki bara í tengslum við íþróttir. Það er eins og það sé einhver vakning í tengslum við þetta lag sem ég kann ekkert að útskýra. Ég bjó smástund úti á Spáni og þegar ég flutti heim söng ég þetta lag oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Eftir landsleiki hittumst við Tólfufólk alltaf á Ölver og þar fór ég að syngja þetta og jú, fólk tók aðeins undir. En í Pilzen, fyrstu alvöru ferð Tólfunnar þá kom lagið rosalega sterkt inn. Við sátum á bar úti í Tékklandi og vorum búnir að ræða það að syngja þetta lag, því það virðast allir kunna það. Það er góð- ur taktur í því og auðsungið fyrir hóp, svo má ekki gleyma því að lag- ið er gott.“ Benjamín segir að 2+2 verði oft fjórir og hann viti ekki í raun hvernig þetta byrjaði. Allt í einu voru allir farnir að taka undir. „Ég var hrærður og glaður þegar ég heyrði að þetta lag var tekið á und- an þjóðsöngnum í leiknum gegn Kasakstan. Við hlupum bara beint af flugvellinum í Keflavík og á völl- inn í Laugardal og allt í einu kom þetta lag. Það var frábær stund,“ segir hann. Allt er bjart fyrir okkur tveim  Lagið Ég er kominn heim óopinbert lag Tólfunnar  Tíu þúsund manns sungu með á sunnudag fyrir landsleikinn gegn Kasakstan  Í endurnýjun lífdaga  Lagið auðsungið fyrir hóp Morgunblaðið/Golli Tólfan Stuðningsmannasveitin Tólfan hefur gert lag Óðins Valdimarssonar að sínu og syngur það ótt og títt. Óðinn Valdi- marsson söng með Atlantica, með hljómsveit Ingimars Eydal og KK auk þess að gefa út plöt- ur sjálfur. Óðinn var orðinn nokkuð þekktur á Norðurlandi þegar hann hóf að syngja með Atlantic kvartett- inum við stofnun hans í byrjun júní 1958. Árið 1960 yfirgaf Óð- inn sveitina og hélt suður til Reykjavíkur og hóf að syngja með KK sextettinum. Þótti mikil upphefð í því að vera ráðinn í KK sextettinn á þessum tíma. Í umfjöllum Morgunblaðsins um Óðin árið 2001 segir að hann hafi verið einn þeirra söngvara sem tóku þátt í innreið rokksins í íslenskt tónlistarlíf við lok sjötta áratugarins og rödd hans, skýr og strákslegur barítón, féll einkar vel að glúrnum textum um æskufjör og unglingamenn- ingu þessa tíma. Strákslegur barítón EINN FYRSTI ROKKARINN Óðinn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.