Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
Óðinn Bragi Valdemarsson, flugvirki hjá Flugfélagi Íslands,fagnar 41 árs afmælinu sínu í dag. Óðinn er mikill útivistar-maður og bíður spenntur eftir vetrinum enda eyðir hann tölu-
verðum tíma á baki Arctic Cat-vélsleðanum sínum.
„Ég er að vinna frá sex að morgni til sex að kvöldi á afmælisdaginn
þannig að ég veit ekki hvort það verður einhver veisla. Kannski baka
ég köku og kem með fyrir vinnufélaganna,“ segir hann, en þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans var hann nýbúinn að sinna upp-
keyrslu á flugvél. „Uppkeyrsla virkar þannig að þá þarf að athuga
hvort allt er í lagi hjá flugvél sem var að koma úr skoðun hjá okkur.
Setja vélina í gang, fara út á braut og gera nokkur próf á hinum og
þessum kerfum. Tryggja að allt sé í lagi.“
Óðinn Bragi er ógiftur og á þrjár stelpur, Valdísi Mist sem er 17
ára, Heiðrúnu Jónu 10 ára og Þórunni Lilju þriggja ára.
„Áhugamálin snúast að mestu um útivist og flakk. Ég er á kafi í
snjósleðunum og bíð spenntur eftir vetrinum. Ég á Arctic Cat-sleða og
það snýst svolítið um að skoða veðurspá á fimmtudegi og athuga
hvort helgarspáin sé góð svo það sé hægt að fara út að leika. Maður
reynir að grípa góðu dagana. Ég á von á að það verði farinn alveg
haugur af ferðum,“ segir hann og tilhlökkunin leynir sér ekki. „Ég
var á kafi í jeppamennsku áður en sleðamennskan tók yfir. Núna á ég
Toyota LandCruiser á 35 tommu dekkjum þannig að útivist og náttúr-
an eiga hug minn allan.“ benedikt@mbl.is
Úti Óðinn í stuði þar sem honum líður best, úti í náttúrunni.
Reynir að grípa góðu
dagana á fjöllum
Óðinn Bragi Valdemarsson er 41 árs í dag
B
arði Jóhannsson fædd-
ist í Reykjavík 10.
september 1975. Hann
ólst þar upp í Hlíð-
unum og gekk í Æf-
ingadeild Kennaraháskólans (nú
Háteigsskóli). Á yngri árum fór
Barði í nokkrar vikur á sumrin til
afa síns og ömmu í Neskaupstað.
Barði varð stúdent úr Nýmála-
deild Menntaskólans í Reykjavík
1995 og tók 15 einingar í íslensku
við Háskóla Íslands árið 1997.
Hann útskrifaðist af handíðabraut í
fatahönnun frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti 1998.
Tónlistarferillinn
Barði hefur fengist við tónlist frá
unga aldri. Hann hefur gefið út
fjölmargar plötur undir eigin nafni,
Bang Gang og Lady & Bird og hafa
þær fengið frábæra dóma um allan
heim.
Bang Gang hefur leikið á mörg-
um menningarviðburðum, tón-
leikum og tónlistarhátíðum á Ítalíu,
Sviss, Belgíu, Kína, Japan, Banda-
ríkjunum, Frakklandi, Póllandi og
víðar. Af stærri tónleikum má
nefna tónleika Lady & Bird í amer-
ísku kirkjunni í París með 10
manna kór og hörpu árið 2004,
verkið Black Garden fyrir strengja-
kvartett og sembal sem var frum-
flutt á óperuhátíðinni Festival Aix-
en-Provence 2005; tónleika í ,For-
um des images í París, þar sem
frumsamin tónlist hans við kvik-
myndina Häxan var frumflutt.
Sama verk var svo útsett fyrir Sin-
fóníuhljómsveit Íslands og flutt af
Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu og gef-
ið út í flutningi hennar árið 2006;
Lady & Bird ásamt Bang Gang,
Keren Ann og Sinfóníuhljómsveit
Íslands á Listahátíð árið 2008 sem
síðar var flutt ásamt Orchestre La-
moureux og kór í Salle Pleyel París
árið 2009,
Barði hefur samið tónlist fyrir
flest listform. Hann var meðhöf-
undur óperunnar Red Waters sem
var frumsýnd í óperunni í Rúðu-
borg í Frakklandi og í kjölfarið
sýnd í nokkrum óperuhúsum í
Frakklandi. Hann hefur einnig
samið tónlist fyrir þrjú leikveik fyr-
ir Þjóðleikhúsið: Heddu Gabler,
Brennuvargana og Sædýrasafnið.
Barði hefur verið upptökustjóri,
meðhöfundur og hljóðfæraleikari
hjá fjölmörgum íslenskum og er-
Barði Jóhannsson, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri – 40 ára
Við upptökur Barði að leika á slide gítar á plötu Bang Gang, „Something Wrong“.
Hefur samið tónlist
fyrir flest listform
Marta Aðalsteins-
dóttir og Kolfinna
Jóhannesdóttir
héldu tombólu á
Akureyri og söfnuðu
1.847 krónum fyrir
mannúðarverkefni
Rauða krossins.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.