Morgunblaðið - 10.09.2015, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015
– Ert þú utan höfuðborgarsvæðisins?
– Langar þig að ná fastari tökum á heilsunni með hjálp fagfólks?
– Getur þúæft sjálfstætt en vantar stuðning til að komast af stað?
–Viltu laga til í mataræðinu?
- Þín brú til betri heilsu
www.heilsuborg.is Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Nánari upplýsingar í síma 5601010
Fjarnám
með stuðningi fagaðila - þrír mánuðir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ef þú þarft að einbeita þér að einu
takmarki skaltu gera það að þínu. Ráð-
stefnur, fundir og samræður við aðra ein-
kennast af hressleika, bjartsýni og jákvæðni.
20. apríl - 20. maí
Naut Það þýðir lítið að stinga við fótum þeg-
ar allt er á fleygiferð í kringum þig. Ekki gef-
ast upp fyrr en þú hefur fengið svör við þeim
spurningum sem brenna á þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ef þú eyðir tímanum með ein-
hverjum sem þú vilt alls ekki vera með þá
ertu í raun að eyða allra tíma til einskis. Oft
sjá tveir hlutina í skýrara ljósi en einn.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Misstu ekki sjónar á takmarkinu, þótt
einhverjir smámunir séu að vefjast fyrir þér.
Reyndu að vinna sem mest ein/n. Vertu var-
kár í dag því þú kynnir ella að þurfa að greiða
háan reikning.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú kemst ekki lengur upp með það að
flýja hlutina. Leitaðu leiða til að koma hug-
myndum þínum á framfæri við áhrifamikið
fólk.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki láta þér bregða þótt þér finnist
þú verða að leysa upp margt af því sem þú
hefur byggt upp síðustu árin. Ef þú ert í at-
vinnuleit ættirðu því að íhuga að leita á forn-
ar slóðir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Í dag er sérlega góður dagur fyrir þitt
merki. Kannski er erfitt að sjá fram úr óreið-
unni á skrifborðinu en heiður himinn (og gott
vinnupláss) eru framundan ásamt fjölda
tækifæra.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þið getið dregið lærdóm af
óvæntum fréttum sem tengjast heilsu ykkar
með einhverjum hætti. Ekki rugla saman að-
gerðaleysi og bið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Einhver fálátur er kannski að
tryllast úr ástríðum, en of feiminn til að sýna
það. Gættu þess að hreyfa þig nóg.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Í dag er upplagt að einbeita sér að
starfsferlinum. Talaðu hreint út og láttu eng-
an fara í grafgötur um tilgang þinn.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hæfileikar þínir til hvers konar
listsköpunar eru með mesta móti þessa dag-
ana. Þér tekst að koma umkvörtunarefnum
áleiðis.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er engin ástæða til afskiptaleysis,
þegar samskiptatæknin er orðin svona full-
komin. Fals er þér ekki að skapi.
Einstaka sinnum læt ég það eftirmér að að eiga góða stund með
gömlum ljóðabókum, sem ég tíni
fram úr skápnum hverja af annarri.
Að þessu sinni voru Hraðkveðlingar
Jakobs Thorarensen nærtækastir
og opnuðust á síðu 6, þar sem stóð
„Ekki er allt sem sýnist“:
Jörðin virðist rorra í ró
rétt sem annar hnykill,
hendist fram og hringsnýst þó –
hlaupagikkur mikill.
Og það er eins gott að fara gæti-
lega á „hálku gleðinnar“:
Víða er manni á vegum hætt
vorrar hálu borgar;
öll á gleðin ótvírætt
afturkast til sorgar.
Og það er „veðrahrollur“ í mönn-
um þá eins og nú:
Hríðarkrepja er úti enn,
– ugglaust nepja um Kjalveg;
en fjöldi er þrepa fyrr en menn
fá að drepast alveg.
Og að síðustu eftir Jakob – „allt
víkur að einum púnkt“:
Myndu ei stefin mín og þín
mjókka skjótt og hverfa sýn
fyrst Hallgrímsljóð nú henta í grín
og hætt að prenta Vídalín?
Næst urðu Hunangsflugur Gutt-
orms J. Guttormssonar fyrir valinu
og opnuðust við „Missmíði“
Að reyndi Guð að gera úr honum mann
það getur ekki dulist þeim sem
skoða’ann;
af leirnum hefur lagt til nóg í hann
en líklega ekki gengið vel að hnoða’ann.
Oft er vitnað í þessar hendingar
Stephans G.:
„Að lepja upp mola um lífsins stig,
en láta ekki baslið smækka sig.“
Guttormur leggur út af þeim
þannig:
Þeir kúguðu þurfa’ yfir sjálfa sig helst
að hækka sig,
því hitt er ei nóg að láta’ ekki baslið
smækka sig;
að rísa upp á móti’inu ranga en ekki
lækka sig
er ráðið til þess að láta sjálft baslið
stækka sig.
„Hugsjónin“ kallast þetta erindi:
Hann berst með hugsjón að hækka.
Með hæð sinni aðra að lækka,
en enginn annar má stækka
því annars vill munurinn smækka.
Síðan kemur „Keppinauturinn“:
Eftir því sem hann er hærri
hygg ég vera meiri og stærri
sigur yfir hann að hækka
hann má þess vegna ekki smækka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Jakob og Guttormi
Í klípu
„ÉG MYNDI HELST VILJA STÖÐU ÞAR
SEM ALLIR VINNA – EN ÉG GET SÆTT
MIG VIÐ AÐ BARA ÉG VINNI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, JÆJA... LEYNISKÝRSLA MÍN SEGIR
MÉR AÐ ÞETTA SÉ SJÖUNDA JARÐARFÖR
ÖMMU ÞINNAR FRÁ ÁRINU 1998.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
ÉG ER
FLJÓTASTI
SNIGILL Í
HEIMI!
SANNAÐU
ÞAÐ
VERÐ AÐ
TEYGJA
FYRST
AH
HVERT ER
VANDAMÁLIÐ?!
ÉG ER ÞREYTTUR Á
AÐ STARA Á SAMA
ÞREYTTA ÚTSÝNIÐ
DAG EFTIR DAG!!
ÞEIR
FISKA
SEM RÓA...
... að þurfa bara að kalla
á hann einu sinni í mat.
Víkverji var í Vestmannaeyjumum helgina og naut verunnar
þar. Þetta var sjötta heimsókn hans
til eyjunnar fögru, og sú fjórða sem
tengdist ekki ónefndri útihátíð. Vík-
verji játar það, að honum hefur alltaf
þótt gaman í Eyjum og getur alls
ekki samþykkt ummæli sem féllu í
Kastljósi RÚV, þar sem einn við-
mælandinn gekk svo langt að segja
að Eyjamenn hefðu lægri siðferð-
isstuðul en aðrir. Er forkastanlegt
að slíkum ranghugmyndum hafi ver-
ið sjónvarpað yfir landsmenn.
x x x
Einn er þó gallinn við það að komatil Eyja. Nefnilega sá að Víkverji
er þeim genetíska kosti eða galla
gæddur að vera gallharður stuðn-
ingsmaður Vesturbæjarstórveld-
isins í knattspyrnu. Það er nefnilega
alþekkt að það félag er ekkert sér-
staklega vinsælt, en einhverra hluta
vegna eru Eyjamenn Íslandsmeist-
arar án atrennu í þeirri íþrótt að
hata KR. Víkverji hélt því knatt-
spyrnuhneigð sinni svona að mestu
fyrir sjálfan sig og þakkaði sínum
sæla fyrir að um landsleikjahelgi var
að ræða.
x x x
Víkverji er að sjálfsögðu í skýj-unum yfir þessum mikla árangri
landsliðsins, að ná að komast í fyrsta
sinn á EM í knattspyrnu karla.
Hann er þó ekki farinn að hugsa svo
langt að hann ætti að fara að bóka
sumarfríið sitt í Frakklandi. Gangi
allt að óskum mun hann þó eiga eitt-
hvert orlof inni á vinnustaðnum, og
þá gæti reynst freistandi að sjá
hvort ekki sé hægt að sjá allavegana
einn leik með landsliðinu. Líklega
verður hann þó að gera sér það að
góðu að horfa á leikina í sjónvarpinu
heima.
x x x
Víkverja varð nokkuð skemmt viðþingsetninguna, þegar forseti
vor tilkynnti, og tilkynnti ekki á
sama tíma að þetta yrði í síðasta sinn
sem hann setti þing, allavegana sam-
kvæmt því umboði sem hann hefði.
Víkverji styður forsetann í því að
sitja sem lengst, allavegana þangað
til Lars landsliðsþjálfari fær ís-
lenska ríkisborgararéttinn og kjör-
gengi til Bessastaða. víkverji@mbl.is
Víkverji
Varpa áhyggjum þínum á Drottin,
hann mun bera umhyggju fyrir þér.
(Sl. 55:23)