Morgunblaðið - 10.09.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 10.09.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 2015 Myndlistakonan Ásdís Kalman opn- ar málverkasýningu sína Spektrum í sal Íslenskrar grafíkur, Tryggva- götu 17, í dag kl. 15. Sýningin er tí- unda einkasýning Ásdísar en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda sam- sýninga á Íslandi og erlendis. Ásdís hefur að mestu notast við olíu og striga í sköpun sinni, en í lýsingu á sýningunni Spektrum segir að í verkum sínum leitist hún við að fanga og festa á mynd orku- flæði og ljósaminningar. Spektrum opnuð í Íslenskri grafík Myndlist Tíunda einkasýning Ásdísar Kalman verður opnuð í dag. Stærsta glæpasagnahátíð Skotlands, Bloody Scotland, fer fram um helgina og hefur rithöfundinum Ragnari Jónssyni hlotnast sá heiður að flytja opnunarræðu á hátíðinni. Borg- arstjórinn í Stirling er gestgjafi opn- unarhátíðarinnar og má segja að Ragnar sé kominn í nokkuð öfundsverðan hóp rithöfunda því að aðrir sem hlotnast hefur sá heiður að flytja opnunarræðu á hátíðinni eru glæpasagnahöfund- arnir Val McDer- mid, Peter May og Ian Rankin. Ragnar kemur fram á tveimur viðburðum á hátíðinni og er uppselt á þá báða. Snjóblinda Ragnars var fyrr á þessu ári mest selda bókin á kyndli hjá Amazon í Bretlandi og Ástralíu. Heiður Rithöfundurinn Ragnar Jónsson hefur heldur betur slegið í gegn, en honum hefur hlotnast sá heiður að flytja opnunarræðu á stærstu glæpasagnahátíð Skotlands. Flytur opnunarræðu á Bloody Scotland Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Rússnesk kvikmyndagerð er á mikilli siglingu og á undanförnum árum hafa rússneskar myndir unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna,“ segir Artem Bogomolov, starfs- maður rússneska sendiráðsins á Ís- landi, en Bíó Paradís frumsýnir í dag myndina Test (Ispytanie), sem er ein af fjórum myndum sem sýnd- ar verða á Rússneskum kvikmynda- dögum. „Kvikmyndirnar fjórar sem við höfum valið á hátíðina voru teknar upp á ólíkum stöðum víðs vegar um Rússland. Þannig vildum við kynna áhorfendum rússneska kvikmynda- gerð um leið og við sýnum fjöl- breytileikann sem Rússland hefur upp á að bjóða.“ Hátíðin hefst í dag og stendur til 13. september í Bíó Paradís en eftir það verður farið út á land. „Hátíðin er ekki takmörkuð við Reykjavík því að við ætlum að vera með sýningar á Ísafirði og Sauðár- króki. Þannig verðum við 16. september á Ísafirði og 17. sept- ember á Sauðárkróki.“ Allt verðlaunamyndir Rússneskir kvikmyndadagar eru í boði Sendiráðs Rússlands á Íslandi og segir Bogomolov tilgang hátíð- arinnar m.a. að kynna rússneska kvikmyndagerð fyrir Íslendingum en einnig að styrkja samstarf þjóð- anna í kvikmyndagerð. „Þetta er í þriðja sinn sem við höldum hátíðina hér á Íslandi og hún hefur vaxið með hverju skipt- inu. Allar myndirnar sem við höfum valið á hátíðina eru verðlaunamynd- ir og ættu því að gefa áhorfendum innsýn í rússneska kvikmyndagerð.“ Gestur hátíðarinnar í ár verður leikarinn og framleiðandinn Igor Ugolnikov og munu kvikmynda- húsagestum gefast tækifæri til að spyrja hann eftir sýningu myndar- innar Batalion, sem sýnd verður á sunnudaginn klukkan 20.00. Kvikmyndir Fjórar kvikmyndir verða á hátíðinni m.a. Nebesnye zheny lugovykh mari sem hér sést brot úr. Fjölbreyttar kvik- myndir frá Rússlandi  Rússneskir kvikmyndadagar 10. til 13. september 10. september – Opnun – kvik- myndin Test (Ispytanie, 2014) sýnd, frítt inn og allir velkomnir. Léttar veitingar í boði. 11. september – Sýning á mynd- inni Celestial Wives of the Meadow Mari (Nebesnye zheny lugovykh mari, 2014). Frítt inn og allir velkomnir. 12. september – Sýning á mynd- inni Territory (Territoriya, 2015). Frítt inn og allir velkomnir. 13. september – Sýning á mynd- inni Batalion (2015) ásamt spurt og svarað eftir myndina með framleiðanda hennar, Igor Ugolnikov. Frítt inn og allir vel- komnir. Allar sýningarnar eru kl. 20.00, myndirnar eru á rússnesku með enskum texta. Dagskrá hátíðarinnar RÚSSNESKAR KVIKMYNDIR Bíó Úr kvikmyndinni Territory sem sýnd verður á laugardag. Drengirnir í Baggalúti eru komnir í jólaskap, eru að leggja lokahönd á níundu breiðskífu sína sem er þriðja jólaplata hljómsveitarinnar og heitir Jólaland. Er það eflaust góð upphitun fyrir jólatónleika Baggalúts, sem haldnir verða tí- unda árið í röð um jólin í Há- skólabíói. Á tónleikunum hafa verið leikin lög af hljómplötunum Jól og blíða og Næstu jól – í bland við þau ójólalög sem sveitin hefur séð ástæðu til að flytja hverju sinni, eins og sveitin orðar það. Baggalútur kominn í jólaskap Jólasveinar Baggalútsmenn eru komnir í jólaskap, eins og sjá má. Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Lau 12/9 kl. 19:00 3.k. Fim 24/9 kl. 19:00 7.k. Sun 4/10 kl. 19:00 11.k Sun 13/9 kl. 19:00 4.k. Fös 25/9 kl. 19:00 8.k. Fös 9/10 kl. 19:00 12.k Fös 18/9 kl. 19:00 5.k. Sun 27/9 kl. 19:00 9.k Lau 10/10 kl. 19:00 13.k Sun 20/9 kl. 19:00 6.k. Lau 3/10 kl. 19:00 10.k Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Dúkkuheimili (Stóra sviðið) Fim 10/9 kl. 20:00 1.k. Mið 23/9 kl. 20:00 4.k. Fös 2/10 kl. 20:00 6.k. Fös 11/9 kl. 20:00 2.k Lau 26/9 kl. 20:00 5.k. Lau 19/9 kl. 20:00 3.k. Fim 1/10 kl. 20:00 aukas. Aukasýningar í september At (Nýja sviðið) Fös 18/9 kl. 20:00 1.k. Fim 24/9 kl. 20:00 4.k. Lau 3/10 kl. 20:00 7.k. Sun 20/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 5.k. Sun 4/10 kl. 20:00 8.k. Mið 23/9 kl. 20:00 3.k. Mið 30/9 kl. 20:00 6.k. Breskt verðlaunaverk í leikstjórn Kristínar Eysteinsdóttur Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 20/9 kl. 13:00 1.k. Lau 10/10 kl. 13:00 4.k. Sun 25/10 kl. 13:00 7.k. Sun 27/9 kl. 13:00 2 k. Sun 11/10 kl. 13:00 5.k. Sun 1/11 kl. 13:00 8.k. Sun 4/10 kl. 13:00 3.k. Sun 18/10 kl. 13:00 6.k. Haustsýningar komnar í sölu Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 11/9 kl. 20:00 1.k. Lau 26/9 kl. 20:00 3.k. Lau 17/10 kl. 20:00 5.k. Lau 19/9 kl. 20:00 2 k. Lau 10/10 kl. 20:00 4.k. Kenneth Máni stelur senunni Mávurinn (Stóra sviðið) Fös 16/10 kl. 20:00 1.k. Lau 24/10 kl. 20:00 4.k. Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Mið 21/10 kl. 20:00 2 k. Fim 29/10 kl. 20:00 5.k. Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 22/10 kl. 20:00 3.k. Lau 31/10 kl. 20:00 6.k. Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki Hystory (Litla sviðið) Lau 12/9 kl. 20:00 1.k. Sun 20/9 kl. 20:00 3.k. Sun 27/9 kl. 20:00 5.k. Fös 18/9 kl. 20:00 2 k. Fös 25/9 kl. 20:00 4.k. Aðeins þessar sýningar! Sókrates (Litla sviðið) Fim 1/10 kl. 20:00 Sun 4/10 kl. 20:00 Sun 11/10 kl. 20:00 Fös 2/10 kl. 20:00 Fim 8/10 kl. 20:00 Lau 3/10 kl. 20:00 Fös 9/10 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Fim 15/10 kl. 20:00 1.k. Sun 18/10 kl. 20:00 3.k. Lau 24/10 kl. 20:00 5.k. Fös 16/10 kl. 20:00 2 k. Þri 20/10 kl. 20:00 4.k. Sun 25/10 kl. 20:00 6.k. Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Fim 10/9 kl. 19:30 fors. Sun 20/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 12.sýn Fös 11/9 kl. 19:30 Aðalæ. Fös 25/9 kl. 19:30 6.sýn Lau 17/10 kl. 19:30 13.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 Frums. Lau 26/9 kl. 19:30 7.sýn Sun 18/10 kl. 19:30 14.sýn Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 8.sýn Fim 22/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 17/9 kl. 19:30 Aukas. Fös 2/10 kl. 19:30 9.sýn Fös 23/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 10.sýn Mið 28/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 4.sýn Sun 4/10 kl. 19:30 11.sýn Fös 30/10 kl. 19:30 18.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Móðurharðindin (Kassinn) Fös 11/9 kl. 19:30 3.sýn Fim 24/9 kl. 19:30 9.sýn Lau 3/10 kl. 19:30 14.sýn Lau 12/9 kl. 19:30 4.sýn Fös 25/9 kl. 19:30 10.sýn Fös 9/10 kl. 19:30 15.sýn Fim 17/9 kl. 19:30 6.sýn Sun 27/9 kl. 19:30 11.sýn Lau 10/10 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/9 kl. 19:30 7.sýn Fim 1/10 kl. 19:30 12.sýn Sun 11/10 kl. 19:30 17.sýn Lau 19/9 kl. 19:30 8.sýn Fös 2/10 kl. 19:30 13.sýn Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna. 4:48 PSYCHOSIS (Kúlan) Fim 10/9 kl. 19:30 Frums. Mið 16/9 kl. 19:30 3.sýn Sun 13/9 kl. 19:30 2.sýn Sun 20/9 kl. 19:30 4.sýn DAVID FARR HARÐINDIN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.