Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.09.2015, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.9. 2015
Græjur og tækni Kaliforníuríki hefur snúið sér tilÍsraels í baráttu sinni við þurrka.
Ísrael er 60% eyðimörk og er
reynsla landsins og tækni talin
geta tryggt öllum íbúum Kali-
forníu hreint drykkjarvatn.
Ísrael aðstoðar Kaliforníu
Samsung hefur verið leiðandi á farsímamarkaði und-anfarin ár og Android-símar fyrirtækisins selstmetsölu. Heldur fataðist fyrirtækinu þó flugið með
Galaxy S5 útgáfuna, eins góður sími og það annars er,
því útlitið þótti gamaldags og sala á símanum varð
minni en Samsung-bændur höfðu reiknað með. Víst
seldust af þeirri gerð á annan tug milljóna síma, en
það var ekki nóg; færri símar seldust af S5 en af
næstu gerð á undan og það var Samsung áfall.
Það var því mikið í húfi þegar næsta útgáfa var
kynnt, Samsung Galaxy S6, sem kom á markað um
miðjan apríl sl. Eftir því var líka tekið hve sá sími
skar sig úr fyrri gerðum, ekkert plast og síminn
glæsilegur að öllu leyti, kramið í honum fyrsta flokks
og útlitið einkar vel heppnað.
Sérstaklega vakti Edge-
útgáfa símans mikla hrifningu
og það að vonum því segja
má að hann hafi snýtt öllum
keppninautum í útliti, þar með
talin iPhone-lína Apple, með
rúnnuðum hliðum.
Það kom þó framleiðand-
anum greinilega á óvart hvað
margir voru sólgnir í S6 með
rúnnuðum skjá, því þeir voru
nokkuð dýrari, og framan af gat Samsung ekki upp-
fyllt allar pantanir á Edge-símum. Málið var nefnilega
að þó S6 væri kostagripur, var S6 Edge miklu meira
en það.
Fyrsti síminn með rúnnuðum skjá var reyndar Sam-
sung Note Edge, sem var með eina hlið rúnnaða. Á
Galaxy S6 Edge voru þær aftur á móti báðar rúnnaðar
sem gerði símann einstaklega skemmtilegan í hendi,
aukinheldur sem hann er sannkallað augnakonfekt.
Nýr Galaxy S6 Edge, sem heitir einfaldlega Edge+,
er eins og S6 Edge að flestu leyti, nema náttúrlega
því að hann er stærri – maður sér í það minnsta ekki
mikinn mun annan við fyrstu sýn. Við nánari skoðun
kemur þó í ljós að hönnuðir Samsung hafa ekki bara
stækkað símann, því þeir hafa bætt smá rönd við efst
og neðst á símanum, hugsanlega til að hlífa glerinu á
framhliðinni frekar. Hann fer þó ekki síður í hendi en
eldri gerðin, þ.e. í meðalstórri hendi eða stærri, því þó
skjárinn sé 5,7" samanborið við 5,1" á S6 Edge er
hann aðeins þynnri – S6 Edge+ er 154,4 x 75,8 x 6,9
mm að stærð, en S6 Edge 142 x 70.1 x 7 mm. Edge+
er líka þyngri, nema hvað, 153 g á móti 132 g.
Þó skjárinn sé stærri er sama upplausn á honum,
Super AMOLED QHD, 2560 x 1440 dílar, sem gefur
518 díla á tommu. Litir hafa verið fínstilltir og virka
eðlilegri en á S6 Edge.
Örgjörvi í símanum er sá sami og í S6 Edge, – 2,1
GHz átta kjarna Exynos 7420. Vinnsluminni í honum
er þó heldur meira, 4 GB samanborið við 3 GB, sem
gerir sitt í að auka hraðann, en ýmsar breytingar auka
vinnsluhraðann líka umtalsvert, enda er síminn að
minnsta kosti 10-15% hraðvirkari en S6 Edge.
Hægt er að fá Edge+ símann með ýmist með 32 GB
eða 64 GB gagnaminni (minna má á að hægt er að fá
S6 Edge með 128 GB minni sem kostar eðlilega skild-
inginn).
Ég nefni rafhlöðuendingu hér til hliðar, en í al-
mennri notkun entist rafhlaðan betur en ég átti von á.
Það er svo líka mikill kostur hvað síminn er fljótur að
hlaða sig – nær 100% hleðslu úr núll á innan við
tveimur tímum. Varla þarf að taka fram að hann styð-
ur þráðlausa hleðslu.
Eins og fram kemur hér til hliðar er myndavélin í
símanum mjög góð, frábær reyndar. Ein viðbót sem
einhverjum finnst eflaust gagnleg er að hægt er að
streyma víedóupptöku beint úr símanum með aðstoð
YouTube hvort sem notuð er myndavél á framhlið eða
bakhlið.
Ef eitthvað er út á símann að setja, þá er það að
hliðarnar á honum, brúnirnar rúnnuðu, eru ekki nýttar
nógu vel. Víst er hægt að hafa þar flýtivísa í þá fimm
sem maður hefur oftast samskipti við (og tengja tiltek-
inn lit við hvern og einn) og eins þau forrit sem mað-
ur notar oftast, en mætti útfæra frekar, til að mynda
kæmi sér vel að geta ræst aðgerðir en ekki bara for-
rit. Væntanlega verður frekari virkni bætt við með
hugbúnaðaruppfærslum.
Svo er síminn náttúrlega nokkuð dýr, 64 GB útgáfan
kostar 169.990 kr. hjá Símanum en 149.990 kr. hjá
Nova. Að því sögðu þá efast ég um að hægt sé að
kaupa betri síma fyrir nokkurn pening – þegar allt er
talið, útlit, virkni, hraði og myndavél er þetta besti
farsími sem ég hef notað til þessa.
BESTUR ALLRA
NÝR FARSÍMI FRÁ SAMSUNG, GALAXY S6
EDGE+, SKÁKAR FLESTUM EF EKKI ÖLLUM
KEPPINAUTUNUM Í ÚTLITI, VIRKNI OG
HRAÐA, GLÆSILEGASTI FARSÍMI SEM VÖL ER
Á – EN HANN KOSTAR LÍKA SKILDINGINN.
* Mikið hefur verið fjallaðum það á netinu hvort síminn
sé vatnsheldur eða ekki, en
opinberlega er hann ekki
vatnsheldur eða vatnsvarinn.
Sá sem leitar að vatnsheldum
(og höggvörðum) Samsung-
síma verður að bíða eftir því
að Galaxy S6 Active berist
hingað til lands.
* Myndavélin er framúrskar-andi, myndflagan 16 MP og
hristivörn í linsu. Stærsta ljósop
er f/1.9. Myndavélin á framhlið-
inni er 5 MP. Hægt er að taka
4K eða UHD myndskeið og
líka velja sérstaka stillingu fyrir
myndatöku á minni hraða. Ljós-
myndaáhugamenn gæti að því
að hægt er að geyma myndir
sem RAW-skrár.
* Algengasta kvörtun semmaður heyrir varðandi nýja
síma er að rafhlöðuending sé
ekki nóg. S6 Edge er með
2.600 mAh rafhlöðu, en þar
sem S6 Edge+ er með stærri
skjá kallar það eðlilega á meiri
straum. Það er líka stærri raf-
hlaða í honum, 3.000 mAh og
hann slær sambærilegum sím-
um við í endingu (til að mynda
iPhone 6+).
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON