Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 3

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 3
Ágætu lesendur. Okkur í ritnefnd er það sönn ánægja að gefa út annað tölublað af 29. árgangi Iðjuþjálfans en ekki hafa verið gefin út tvö tölublöð af sama árgangi í nokkur ár. Iðjuþjálfinn og Iðjuþjálfaneminn hafa hingað til komið út á sama tíma að vori og er það nær ótækt að svo skyld blöð séu í samkeppni um efni og auglýsingar. Því var ákveðið að færa útgáfu Iðjuþjálfans og mun blaðið fram vegis koma út að hausti ár hvert. Að þessu sinni er þema blaðsins margbreytileiki fagsins og gefur blaðið innsýn í fjölbreytt viðfangsefni iðju­ þjálfa. Meðal efnis eru tvær rit rýndar greinar og er það í fyrsta sinn sem birtar eru tvær slíkar greinar samtímis. Árið 2004 birtist síðast ritrýnd grein í Iðjuþjálfanum og var það einnig í fyrsta sinn sem það var gert. Er það von okkar í ritnefnd að ekki verði aftur svo löng bið á að ritrýnd grein birtist í blaðinu og að blaðið geti boðið sem oftast upp á fræðigreinar. Ritnefnd stefnir á að smíða texta með upplýs­ ingum um ritrýningarferli og setja á heimasíðu félagsins okkar www.sigl.is fljótlega á nýju ári. Ætlunin með því er að kynna ritrýningarferlið og auðvelda áhugasömum félagsmönnum að afla sér upplýsinga. Í þessu tölublaði eru greinar af öllum stærðum og gerðum og ættu því allir að geta fundið lesefni við sitt hæfi. Næsta blað mun koma út næstkomandi haust og því er nægur tími fyrir ykkur að setjast niður við greinarskrif. Allar hugmyndir að efni og öðru sem ykkur finnst eiga heima í blaðinu eru vel þegnar. Að lokum viljum við þakka þeim sem komu að útgáfu blaðsins svo sem með greinarskrifum, prófarkalestri og auglýsingum. Sérstakar þakkir fá rit­ rýnendur fyrir vel unnin störf. Með bestu óskum um gleðilega hátíð og gæfuríkt komandi ár. Ritnefnd Iðjuþjálfans. Frá ritnefnd Efnisyfirlit Stjórn IÞÍ Lilja Ingvarsson, formaður Birgit Schov, gjaldkeri Sigrún Ásmundsdóttir Sigurbjörg Hannesdóttir Sigþrúður Loftsdóttir Fanney Karlsdóttir, varamaður Rósa Hauksdóttir, varamaður Umsjón félagaskrár Þjónustuskrifstofa SIGL Ritnefnd (ritnefnd.ii@sigl.is) Guðbjörg Björnsdóttir Jóhanna Mjöll Björnsdóttir Oddný Hróbjartsdóttir Snæfríð Egilson Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir Ritstjóri Thelma Hrund Sigurbjörnsdóttir Prentvinnsla Litlaprent Forsíðumynd Kristín Einarsdóttir iðjuþálfi og hirð­ ingjahöfðingi í Mongólíu Ljósmynd: Ingi R. Ingason Ritnefnd áskilur sér rétt til að stytta texta og færa til betri vegar. Vitna má í texta blaðsins ef heimildar er getið. Iðjuþjálfinn Fagblað iðjuþjálfa IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 • 3 Frá formanni ................................. 4 Höf. Lilja Ingvarsson Iðjuþjálfun án landamæra Mongólíuverkefni MND félagsins ... 6 Höf. Kristín Einarsdóttir Að vera iðjuþjálfi og þurfa að sýna sig og sanna .................. 10 Höf. Helga Kristín Gestsdóttir Geðrækt geðsjúkra Að ná tökum á tilverunni ............. 13 Höf. Elín Ebba Ásmundsdóttir „Var hann duglegur í tímanum?“ Viðhorf foreldra barna með hreyfihömlun til þjónustu iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara ........................... 22 Höf. dr. Snæfríður Þóra Egilson Þjónustuferli í iðjuþjálfun ............. 32 Höf. Guðrún Pálmadóttir Meðferð vegna offitu á endurhæfingardeild Kristnesspítala ............................ 38 Höf. Petrea Guðný Sigurðardóttir Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár. Iðjuþjálfafélag Íslands

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.