Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 19

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 19
IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 • 19 þeim og svo færð þú virðingu fyrir sjálfum þér.“ Heil brigðis starfsmenn þurftu einnig að hafa hæfileika til hjálpa við­ mælendum við að halda voninni um betri tíð: „Grund vallaratriði að ná tengslum við einhvern og finna það að viðkomandi vill hjálpa þér og hann eða hún trúi því að þú eigir eftir að ná þér.“ Samskiptin þurftu líka að gefa rými fyrir venjulegt um ræðuefni, um hversdagslega hluti, eins og einn viðmælenda úrskýrði: „Eðlileg samtöl, en ekki samtöl sem snúast um sjúkdóminn og einkennin.“ Starfsmenn þurftu einnig að hafa úthald og vera tilbúnir að fylgja þeim yfir lengri tíma. ‘Júlía’ hafði kynnst tveimur starfs mönnum, með ólíkan fagbakgrunn, sem tengdust henni í mörg ár eftir útskrift af geðdeild. Með samskiptum við þá hafði hún skapað sína eigin eftirfylgd. Þeir gáfu henni tækifæri til að halda tengslum og leita til þeirra þegar vandi steðjaði að og hún þurfti á þeim að halda. „Þau einhvern veginn hjálpuðu mér að finna svona nýjan flöt á lífinu þannig ... ég þurfti að læra svona ákveðna félagslega færni aftur, sko þau hjálpuðu mér og voru með mér í því í mörg ár ... þetta var heilmikið mál að fara að gera hlutina öðruvísi. “ ‘Samúel’ tók dæmi um meðferðaraðila sem ekki hlustaði á hann og þrýsti of snemma á hann að fara að vinna vegna þess að hann var að ná betri tökum á lífinu: „Það er nefnilega svolítið ein­ kenn andi fyrir marga sem vinna í þessu geðheilbrigðiskerfi að það sé hægt að drífa þetta fólk til að vera heilbrigt ... ég var ekki búinn að vinna þarna lengi þegar það fór að glymja í höfðinu á mér að keyra hakann í höfuðið á manninum sem var að vinna við hlið ina á mér.“ ‘Samúel’ gat ekki tekið ábyrgð og lét sig hverfa úr vinnunni, en hans skoðun var sú að taka yrði meira mark á geðsjúkum og yfirleitt væru uppákomur hróp um aðstoð. Hans skoðun var að geðsjúkir væru yfirleitt einstaklega gott fólk: „Þá flokka ég gott fólk, fólk sem vill hjálpa öðrum og vill leggja eitthvað á sig fyrir aðra.“ Umræða Geðsjúkir þóttu framan af óáreiðan­ legir heimildarmenn í rannsóknum. Að mati Wahl (1999) var ástæðan fordómar í þeirra garð. Eigin fordómar sjúklingsins og almennt fordómar í garð geðsjúkra eru oft erfiðari viðfangs en geðsjúkdómurinn sjálfur (Byrne, 2000). Það sama átti við í þessari rannsókn og í tímamótaverki Goffmans (1963) um fordóma og niðurrifsáhrif þeirra á sjálfsmynd fólks. Viðmælendur hér tóku allir fram að til þess að ná betri tökum á tilverunni þyrftu þeir að horfast í augu við eigin fordóma og vinna með þá til að komst áfram í bataferlinu. Þrátt fyrir herferðir hér heima sbr. Geðræktarverkefnið og Þjóð gegn þunglyndi og herferðir erlendis með það að markmiði að breyta við­ horfi gagnvart geðsjúkdómum, (Byrne, 2001; Crisp, 2000) lifa fordómar enn góðu lífi. Staða geðsjúkra hefur þó breyst mikið á síðustu tveimur áratug­ um. Þeirra þáttur, sýn og innlegg þykir nú ómissandi í allri umræðu um geðheilbrigðismál eins og sjá má í stefnumótun félagsmálaráðuneytisins frá 2006 og eins í geðheilbrigðis sátt­ málanum sem gerður var af heil­ brigðisráðherrum Evrópu í Helsinki 2005 (Félagsmálaráðuneytið, 2006; World Health Organization, 2005). Rannsóknir þar sem stuðst er við frásagnir geðsjúkra hafa dregið fram hvað það er, t.d. í tengslum manna á milli, sem skiptir máli í bataferlinu. Stór hluti þekkingar í geðheilbrigðis­ málum hefur verið ósýnilegur vegna þess að reynsla og skoðanir geðsjúkra hafa ekki þótt skipta máli. Það hefur lengi verið viðurkennt að bati eigi sér stað í félagslegu samhengi. Þessi rann­ sókn dregur fram það sem geðsjúkir hafa sjálfir gert í bataferlinu, og mikil­ vægi umhverfisþátta. Það vakti t.d. athygli á sínum tíma þegar ljóst varð að geðsjúkir í þróunarlöndum náðu betri tökum á lífinu en þeir sem bjuggu í hinum vestrænu ríkjum. Þar væri þó betri heilbrigðisþjónusta, fleiri sérfræð­ ingar og meiri notkun geðlyfja (Warn­ er, 1994; Waxler, 1979; World Health Organization, 1979). Vinnutengd hlutverk, launuð eða í sjálfboðavinnu, hafa áhrif á bata geðsjúkra. Með þátttöku í verkefnum sem höfðu þýðingu og gildi töluðu viðmælendur í þessari rannsókn um að þeir hefðu fengið mikilvæg hlutverk sem skiluðu sér í því að þeir næðu betri tökum á lífinu. Með ýmsum verkefnum sem sköpuðu hlutverk höfðu við­ mælendur áhrif á nærumhverfi sitt. Sérstaklega voru áhrifarík hlutverk sem fólust annars vegar í að láta gott af sér leiða og hins vegar að vera fyrirmynd og geta aðstoðað þá sem styttra voru komnir í bataferlinu. Erlendar rann­ sóknir sem könnuðu þátttöku í atvinnu eða sjálfboðavinnu (Black og Living, 2004; Borg, 2006; Mead og Copeland, 2000; Mezzina o.fl., 2006a; Prov­ encher, Gregg, Mead, og Mueser, 2002; Smith, 2000; Young og Ensling, 1999) sýndu að með verkefnum sem höfðu þýðingu og gildi öðlaðist líf hinna geðsjúku aftur tilgang. Með vinnutengdum verkefnum fengu þeir einnig tækifæri til að nýta styrkleika sína og endurvekja fyrri hlutverk eða öðlast ný. Atvinnuþátttaka og sjálf­ boðavinna jók sjálfstraustið og dró úr einangrun. Nikelly (2001) og Warner (1994) bentu á að meiri fylgni væri á milli atvinnu­ og efnahagsástands og getu geðsjúkra til að ná tökum á lífi sínu heldur en nýjunga í meðferðartækni eða læknisfræði. Tengsl atvinnuþátt­ töku og bata voru sláandi. Aftur á móti voru engin merkjanleg tengsl m.t.t. notkun ar geðlyfja. Geðrofslyfin höfðu ekki breytt neinu um fjölda þeirra sem náðu sér þegar til lengra tíma var litið. Niðurstaða Warners (1994) var, þvert á almenna orðræðu, að það væri ekki geðlyfjunum að þakka að hægt væri að útskrifa fólk og ná að aðstoða það betur í samfélaginu. Niðurstöður rannsóknar Moncrieff og Krisch (2005), þar sem könnuð voru langtímaáhrif þunglyndislyfja, sýndu að þeim sem fengu geðlyf farn­ aðist verr en þeim sem fylgdu leiðum þar sem þeir gátu sjálfir tekið ábyrgð. Moncrieff og Krisch (2005) benda á að viðhorfi til þunglyndislyfja verði að breyta og skoða beri aðrar íhlutunar­ leiðir. Rannsóknir sem byggja á reynslu geðsjúkra hafa ekki getað tengt bata við nein ákveðin meðferðarform eða nálgun ákveðinna faghópa (Borg og Topor, 2003; Topor, 2004; Borg og Kristjansen, 2004). Alls konar með­ ferðarúrræði virðast geta komið í veg fyrir endurinnlagnir eða seinkað þeim, en ekki fjölgað þeim sem ná bata. Geðlyf eru engu að síður talin ómiss­ andi á Vesturlöndum þegar takast á við geðsjúkdóma. Í þessari rannsókn hjálp­ uðu geðlyfin flestum við að ná tökum á lífi sínu, þar sem rétt lyf slógu á sjúkdómseinkenni og komu í veg fyrir að viðmælendur lokuðust af í sjúk­ dómnum. Að finna réttu geðlyfin var

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.