Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 39

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 39
IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 • 39 Umhverfisstjórnunarbúna ur J. Eiríksson ehf. Tangarhöf a 5 – 110 Reykjavík Sími 564 28 20 Veffang je.is Umhverfisstjórnunarbúna ur J. Eiríksson ehf. Tangarhöf a 5 – 110 Reykjavík Sími 564 28 20 Veffang je.is Umhverfisstjórnunarbúnaður J. Eiríksson ehf. Tangarhöfða 5 - 110 Reykjavík Sími 564 28 20 Veffang je.is og kynni sér næringarinnihald matvara. Slökun er einnig fastur liður í með­ ferðinni og er mikilvæg þegar tekist er á við lífsstílsbreytingar. Þrisvar í viku elda skjólstæðingarnir hádegisverð og svo borða hann allir sam­ an. Fyrirkomulagið er þannig að helm­ ingur hópsins ber ábyrgð á matseldinni eina viku í senn. Á mánudögum sér hinn hluti hópsins um að gera matseðil fyrir næstu daga, en á miðvikudögum og fimmtu dögum stendur þeim til boða að nýta sér vax­ og hitameðferð í iðju­ þjálfuninni eða að vinna við handverk sem gagnast þegar heim er komið. Þegar líða fer að útskrift er haldinn mark miðsfundur og á þeim fundi setja skjólstæðingar sér skrifleg markmið sem þeir vilja vinna með í framhaldinu. Skjól­ stæðingar eru líka hvattir til að bjóða nánustu aðstandendum sínum í heim­ sókn á Kristnes á svokallaðan að stand­ enda fund sem er í formi fræðslu og um­ ræðna. Þann 18. september síðastliðinn var umfjöllun um offituaðgerðir í Blaðinu og þar kemur fram að beiðnum í með ferðina fjölgar stöðugt og nú er svo komið að um 70 manns eru á biðlista í meðferð vegna offituvanda á Kristnesi en milli 40­50 manns komast að yfir árið (Ingibjörg B. Sveinsdóttir, 2007). Þar sem rúm tvö ár eru síðan byrjað var að bjóða upp á þessa meðferð finnst okkur sem við hana starfa kominn tími til að vinna úr þeim gögnum sem hafa safn ast á þeim tíma. Þá er átt við gögn eins og lífsgæðakvarða, spurningalista sem varða kvíða og þunglyndi og þyngd­ ar tölur. Um það leyti sem þessi grein birtist er verið að vinna úr gögnum og verður spennandi að sjá hvað kemur út úr þeim. Heimildir: Björn G. Leifsson, Hjörtur Gíslason, Lud vig Guðmundsson, Svava Engilbertsdóttir og Halldór R. Lárusson (2005). Hjá­ veituaðgerð á maga [Bæklingur]. Reykjavík: H.R.L. Hólmfríður Þorgeirsdóttir, Laufey Stein­ grímsdóttir, Örn Ólafsson og Vilmundur Guðnason (2001). Þróun ofþyngdar og of­ fitu meðal 45­64 ára Reykvíkinga á árunum 1975­1994. Læknablaðið, 87, 699­704. Ingibjörg B. Sveinsdóttir (2007, 18. sept­ ember). 250 bíða eftir offitumeðferð. Blaðið, 6. Ludvig Árni Guðmundsson (2004). Offita – hvað er til ráða? Læknablaðið, 90, 539­ 540.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.