Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 16

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 16
16 • IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 ingar, yfir­ og undirflokkanir og sögu­ þráður gerður (Bogdan og Biklen, 1998). Greinandi aðleiðsluaðferð, sam­ kvæmt Bogdan og Biklen (1998), var notuð sem viðbótarverkfæri til að þróa grundaða kenningu. Samkvæmt henni var snemma á rannsóknarferlinu þróuð skilgreining og/eða skýring á bata­ ferlinu og hún borin saman við gögnin um leið og þeirra var aflað. Merking batans í huga viðmælenda var greind með hjálp túlkunarfræðinnar (Gustavs­ son, 1996). Sett var fram túlkun um merkingu batans og athugað hvað í textanum studdi þá túlkun og hvað ekki. Orðræðugreining í anda Magnus­ son (1996) var einnig notuð til að greina gögnin enn frekar. Hvaða orð­ ræður voru í gangi? Hverjar áttu samleið, hverjar ekki og voru mótsagnir í textanum? Var t.d. orðræðan um markmið heilbrigðisþjónustunnar um að gera einstaklinga eins sjálfstæða og mögulegt er hverju sinni í takt við það sem viðmælendur sögðu? Réttmæti og áreiðanleiki Til að tryggja réttmæti rannsóknar­ innar var notuð margprófun (triangu­ lation). Hún felst í því að nota fleiri en eina aðferð við gagnasöfnun, tala við nægilega marga til að mettun (satura­ tion) náist og fleiri rannsakendur koma að öflun og greiningu gagna (Taylor og Bogdan, 1998). Áreiðanleiki rann­ sóknarinnar felst í því að niðurstöður úr henni eru samhljóma niðurstöðum úr sambærilegum, erlendum rannsókn­ um. Niðurstöður Allir viðmælendur höfðu veikst á geði og átt við langvarandi erfiðleika að stríða sökum þess. Þeir áttu það sameiginlegt að hafa í veikindunum haft litla stjórn á lífi sínu og verið háðir öðrum. Veikindatímabilin einkenndust m.a. af framtaksleysi, stjórnleysi, lítilli trú á eigin áhrifamátt og litlu sjálf­ strausti. Í þeirra augum fólst bati í því að ná tökum á eigin lífi og taka stjórnina aftur. En til þess þurftu þeir tíma. Þeir þurftu að fá tækifæri til að taka þátt í verkefnum sem höfðu þýðingu og gildi en einnig að eiga hlut­ deild í samfélaginu. Helstu þemu bataferlisins sneru að einstaklingunum sjálfum, hvers konar hlutverkum þeir fengju tækifæri til að sinna, með hvaða hætti samferðafólk mætti þeim, hver væru áhrif geðlyfja og fjölbreyttrar þjón ustu. Bati fólst í því að geta gert hið hvers­ dagslega í lífinu; vakna á morgnana, koma reglu á daginn, vera innan um fólk, stunda vinnu, tómstundir og líkamsrækt, geta tekið að sér verkefni og lokið þeim og geta sofnað á kvöldin. Þá var nauðsynlegt að fá að takast á við verkefni sem gæfu möguleika á að fá smám saman að taka á einstaka þáttum í lífi þeirra. Að mati viðmælenda voru eigin fordómar stór hindrun. Með þátttöku í ýmsum verkum og með tengslum við fólk sem hafði trú á þeim jókst sjálfstraustið. Ákveðin viðhorfs­ breyting varð þegar þau gátu haft áhrif á eigið umhverfi og látið gott af sér leiða. Með virkri þátttöku í samfélaginu náðu þau smátt og smátt stjórn á eigin lífi sjá mynd 1. Einstaklingurinn Fordómum aflétt. Viðmæl endur þurftu að viðurkenna vanmátt sinn og horfast í augu við að þeir væru haldnir geðsjúkdómi eða ættu við geðræna erfiðleika að stríða, sem gæti þurft að taka tillit til alla ævi. Einn viðmælandi benti á að geðsjúkir væru ekki bara haldnir fordómum gagnvart sjálfum sér heldur væru miklir fordómar meðal geðsjúkra og þeir bitnuðu mest á þeim sem hefðu hvað minnstu færni. Fordómar viðgengjust því ekki aðeins í samfélaginu heldur líka innra með þeim geðsjúku og meðal þeirra. Til þess að missa ekki vonina um eðlilegt líf gripu viðmælendur oft til þess ráðs að halda geðsjúkdómi sínum leyndum og láta engan vita hvernig þeim leið. Þeir horfðust ekki í augu við sjúk­ dóminn heldur framfylgdu dómi sam­ félagsins innra með sér með neikvæðum athugasemdum um sig sjálfa. Fyrsta og um leið mikilvægasta skrefið í bata­ ferlinu var því að viðkomandi aflétti eigin fordómum: „Ef maður ætlar að ná einhverjum bata ... verður maður að viðurkenna að maður sé veikur.“ Ábyrgð tekin. Allir viðmælendur tóku ábyrgð til áhrifa á eigin bata. Allt frá því að taka lyfin reglulega, fylgjast með aukaverkunum, forðast einangrun, ofgera sér ekki, verða virkari eða breyta um aðferðir, takast á við neikvæðar hugsanir, auka sjálfsþekkingu, sjá til­ gang með veikindunum og skipuleggja framtíð sína með tilliti til einkenna: „Að missa ekki sko sjónar á að maður hefur sjúkdóm … mér var farið að líða ágætlega … ég hreinlega gleymdi að ég er með geðsjúkdóm, sem ég verð að passa mig á.“ Margir viðmælenda höfðu sjálfir fundið leiðir til að halda neikvæðum hugsunum í skefjum, eins og að halda sér virkum, einangra sig ekki eða draga úr áreiti: „Ég geri bara miklu, miklu minna, ég hérna passa mig á því að fara ekki út í eitthvað sem gæti sveiflað mér.“ Sumir undirstrikuðu að það dygði skammt að vera fyrirmyndarsjúklingur og þegja þunnu hljóði úti í horni, þá væri ekkert gert: „Þú ert jafnvel útskrif­ aður, þú verður að sækja þér hjálp sjálfur.“ Viðmælendur undirstrikuðu ábyrgð sína með því að tjá sig í fyrstu persónu, „ég“ gerði þetta og þetta: „Ég minnkaði lyfin … ég kom mér út úr hjónabandinu … ég tók þetta svona í mínar eigin hendur ... ég fékk einfaldlega nóg af því að vera að sækja allar mínar óskir um betri heilsu á einhvern annan en sjálfan mig.“ Annar viðmælandi var á sömu línu: „Það gerir enginn eins vel og þú gerir sjálf, vegna þess að fólk á ekki sömu Ge rækt ge sjúkra – a ná tökum á lífinu Einstaklingurinn Hlutverkin fordómum aflétt raunhæf verkefni sem hafa ingu og gildi ábyrg tekin tækifæri til a gefa af sér hafa áhrif Tími Veikindi - venjulegt líf - sjálfstraust eykst - vi horfsbreyting Tekur stjórn stu ningur fjölskyldu, vina a finna mismunandi kröfur og samfer amanna réttu lyfin hvetjandi heilbrig isstarfsmenn Umhverfi Ge lyfin jónustan a sem er inni í örinni sést illa egar etta er prenta út SjálFSt auSt eykSt - viðhorFSbreyting MYND 1

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.