Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Síða 4
Nú lítur dagsins ljós annað tölublað
Iðjuþjálfans á þessu ári sem er nýmæli,
en undanfarin ár hefur einungis eitt
tölublað komið út á ári. Vegna fjölda
greina á vormánuðum varð þetta
niðustaðan, að gefa út tvö blöð á þessu
ári, en framvegis kemur blaðið út á
haustmánuðum. Það er afar ánægjulegt
að sjá tvær ritrýndar greinar í sama
blaðinu og er það vonandi vísbending
um það sem koma skal. Iðjuþjálfar
stunda rannsóknir í sífellt meira mæli
og mikilvægt er að birta niðurstöður
þeirra í fagblaði okkar. Ekki er síður
mikilvægt að birta greinar sem eru ekki
ritrýndar, greinar um ýmis málefni sem
varða fagið og stéttina. Blaðið okkar
þarf að vera vettvangur fyrir hvort
tveggja, ritrýndar fræðigreinar og
greinar annars eðlis.
Iðjuþjálfun er ört vaxandi stétt á
Íslandi og fleiri og fleiri þekkja störf
iðjuþjálfa, ýmist af eigin raun eða að
afspurn. Sífellt fleiri störf eru auglýst
og alltaf einhver sem ekki tekst að
manna. Það er því ljóst að mikilvægt er
að fjölga iðjuþjálfum á Íslandi og í
þeim efnum eru það afar ánægjuleg
tíðindi sem bárust á haustmánuðum
frá Háskólanum á Akureyri að
fyrirhugað sé að bjóða kennslu í
iðjuþjálfun í fjarnámi strax haustið
2008. Þetta mun gefa fleirum tækifæri
til að nema fagið. Iðjuþjálfafélag
Íslands og námsbraut í iðjuþjálfun við
HA hafa verið í samstarfi en þetta
skapar nýja fleti á samvinnu, m.a. um
kynningu á faginu. Það er mikilvægt
að hafa í huga að kynning á faginu á
sér ekki einungis stað í fjölmiðlum
heldur einnig í hvert sinn sem
iðjuþjálfun er nefnd, eins og þegar
iðjuþjálfar halda fyrirlestra, eru spurðir
um starfið sitt eða taka þátt í
Skólatöskudögum. Um 50 iðjuþjálfar
tóku þátt í þeim í september sl. og
hittu nokkur þúsund skólabörn. Þau
fóru með upplýsingar frá iðjuþjálfum
heim og kennarar og annað starfsfólk í
skólum sá iðjuþjálfa að störfum.
Nú líður að jólum og öllu því annríki
sem þeim fylgja. Þá er áríðandi að gefa
gaum að jafnvægi í daglegu lífi og engir
eru betur til þess fallnir en iðjuþjálfar
að leiðbeina öðrum um þennan þátt í
lífsstílnum. Göngum á undan með
góðu fordæmi, það er kynning líka, og
óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og
farsæls nýs árs.
Lilja Ingvarsson formaður
Frá formanni
■ Lilja Ingvarsson, formaður IÞÍ
4 • IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007