Skólavarðan - 01.10.2005, Page 20

Skólavarðan - 01.10.2005, Page 20
20 NÝ BÓK SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 5. ÁRG. 2005 Þessi steinprentaða litmynd af Arkímedesi skreytti vindlakassa á árunum 1895-1915, en á þeim tíma lögðu tóbaksframleiðendur mikla áherslu á fallegar myndskreytingar. Í bakgrunninum má sjá trissu, eina af uppfinningum Arkímedesar. Ennfremur má sjá rómverska hermenn, gráa fyrir járnum, fara herskildi um götur Sýrakúsu, heimabæ Arkímedesar. Arkímedes og Hypatía öðru sinni á meðal vor Jón Þorvarðarson kennir stærðfræði í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Hann skrifar líka bækur um stærðfræði og stærðfræðitengd efni. Námsbækur Jóns hafa í stærðfræði hafa verið notaðar um árabil og ekkert lát á vinsældum en nú siglir hann á önnur mið, þó skyld séu. Fimmtudaginn 13. október kom út nýjasta bók Jóns en hana hefur hann verið með í smíðum í fjögur ár og leitað fanga víða um lönd. Árin sem bókin var í smíðum las Jón um 500 bækur tengdar efni hennar og í heimildalista vísar hann í um 300 þeirra. „Mig óraði ekki fyrir hversu gríðarleg vinna þetta væri!“ segir Jón og brosir. Bókin heitir Og ég skal hreyfa jörðina og fjallar um forngrísku stærðfræðingana og áhrif þeirra. Jón hannar sjálfur bókina og gefur út og skemmst er frá að segja að þarna er á ferðinni veglegt og fallegt rit sem ætla má að vekji áhuga margra, jafnt leikra sem lærðra. „Ég hugsa bókina ekki sérstaklega sem námsbók“, segir Jón, „en hún hentar hins vegar vel til kennslu í sögu stærðfræðinnar og hugmyndasögu og einnig sem ítarefni fyrir áhugasama stærðfræðinemendur eða aðra sem vilja til að mynda skrifa ritgerð um skylt efni. Ég tel að þetta sé bók sem höfðar til allra þeirra sem hafa áhuga á heimspeki, sagnfræði, stærðfræði og talnapælingum eða einhverjum þessara mála.“ Eins og gull af eiri Titill bókarinnar vekur forvitni og Jón varð með glöðu geði við þeirri bón að útskýra tilurð hans. Skýringin er sem hér segir: „Þegar bókin var langt á veg komin hitti ég kunningja minn sem starfar að markaðsmálum. Hann spurði mig hvað bókin ætti að heita og ég svaraði stoltur í bragði: Saga stærðfræðinnar. „Ég skil…þú ætlar semsé ekki að selja bókina.“ Hann sagði að þessi titill væri vitavonlaus, ég yrði að finna eitthvað frumlegra. Gott ef hann sagði ekki að titillinn yrði að vera meira sexí, hvað svo sem hann meinti með því. Næstu vikurnar braut ég heilann um þetta í gríð og erg og að endingu hlaut titillinn Og ég skal hreyfa jörðina flest atkvæði meðal fjölskyldu minnar og vina. Titillinn vísar til þess að eftir að Arkímedes hafði uppgötvað lögmál vogarstangarinnar - þess afls sem getur hreyft hvaða þunga sem er - þá sagði hann í mikilli sigurvímu: „Færið mér stað að standa á og ég skal hreyfa jörðina.“ Þótt þessi skrautlega fullyrðing kunni að bera vitni um mikilmennskubrjálæði, þá lýsir hún miklu frekar hugarástandi manns sem er í sigurvímu eftir að hafa unnið glæsilegan vísindalegan sigur. Einnig má minna á að Kópernikus var sannfærður um að geta hreyft jörðina úr stað, en í stað vogarstangar skyldi beita vopnum stærðfræðinnar. Leónardó da Vinci hafði raunar áður óskað eftir lið-veislu stærðfræðinga í þessum efnum og beðið þá um að tendra ljós í myrkrum villunnar. Kópernikus svaraði ákalli hans og setti allt á annan endann þegar hann „hjó þessa jörð af feyskinni rót og henti sem litlum steini út í myrkur og tóm“ eins og segir í kvæði Hannesar Péturssonar Kóperníkus. Nýleg laglína Bubba Morthens: „Og jörðin hún snýst um sólina, alveg eins og ég“, gæti hæglega verið lögð Kópernikusi í munn. Titill bókarinnar hefur því mjög víðtæka skírskotun, því öldum saman reyndu menn að hreyfa jörðina úr stað en varð ekkert ágengt fyrr en Kópernikus steig fram úr rökkri miðalda og umturnaði öllum hugmyndum manna um alheiminn. Ég er mjög stoltur af því að tengja titil bókarinnar við Arkímedes því vart mun meiri ljómi stafa af nafni nokkurs annars stærðfræðings. Óumdeilt er að hann bar af öllum stærðfræðingum fornaldar eins og gull af eiri. Ekki einasta var hann snjall stærðfræðingur, heldur einnig svo vel að sér í aflfræði, að sumir vilja kalla hann föður verkfræðinnar. Þegar Rómverjar hugðust hertaka heimabæ hans þá féll það í skaut Arkímedesar að styrkja vörn borgarbúa með stríðsvélum, svo ógurlegum, að þrautþjálfaður her róm- verska keisaradæmisins varð að hopa af hólmi.“ Konan frá Alexandríu Dálæti Jóns á Arkímedesi leynir sér ekki en bókin lýsir upp sögur fleiri og í sumum tilfellum lítt þekktari stærðfræðinga sem er ekki síður fróðlegt að kynnast. Hypatía frá Alexandríu fæddist á fjórðu öld eftir Krist og Jón nefnir hana sem fyrsta kvenstærðfræðinginn. „Þetta er í fyrsta sinn sem við heyrum um konu sem leiddi vísindarannsóknir en það gerði Hypatía sannanlega.“ Jón rekur sögu þessarar greindu og töfrandi konu í bókinni og þar segir meðal annars af því þegar hún veifaði notuðu dömubindi framan í nemanda sinn til að kenna honuim tiltekna lexíu. Til að heyra söguna í heild verða lesendur Skólavörðunnar að nálgast bókina en það þarf svo sem ekki gulrætur til að laða fólk að þessari bók, jafnskemmtileg og eiguleg og hún er. keg Jólabókin í ár Jón Þorvarðarson Ljósmynd frá höfundi

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.