Skólavarðan - 01.08.2006, Page 12
12
SKÓLAVARÐAN 5.TBL. 6. ÁRG. 2006
að nemendur geti heyrt það sem fer
fram í kennslurými. Höfundi er heldur
ekki kunnugt um að til séu sérstök
hávaðavarnaviðmið fyrir börn. Þeirra er
þörf þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á
að börn eru mun viðkvæmari fyrir hávaða
og endurómun en fullorðnir. Ef ekki er
hægt að draga úr hávaða niður í það sem
lög gera ráð fyrir að eigi að vera til þess að
samtal og einbeiting geti átt sér stað, þ.e.
um 50 dB (A) (8 gr. II kafli Stjórnartíðindi
B 500/1994), þá hlýtur magnarakerfi að
vera lausnin. Rannsóknir hafa sýnt að
magnarakerfi hlífir rödd kennara (Roy o.fl.
2002, Valdís I. Jónsdóttir, 2003), nemendur
heyra mun betur til kennara síns,
einbeiting þeirra eykst og agavandamál
minnka (Palmer 1998, Sapienza, 1999,
Valdís I Jónsdóttir, 2003). Hins vegar
ef hljómburður er ekki góður þá gæti
magnarakerfi gert meira ógagn en gagn,
það myndi auka við bergmál.
Valdís I. Jónsdóttir
Höfundur er heyrnar- og
talmeinafræðingur.
Heimildir.
1) BACH, E., et al., Skolar och daghem i Norden,
inomhusmiljö samt gällande regler. Rapport
1994, 7. Arbetarskyddsstyrelsen, Solna, 1994, 8.
2) Roy N, Weinrich B, Gray SD, Tanner K, Toledo
AW, Dove H, Corbin-Lewis K, Stemple JC. Voice
amplification versus vocal hygiene instruction
for teachers with voice disorders: A treatment
outcomes study. Journal of Speech, Language
and Hearing Research, 2002; 45: 626-638.
3) Palmer CV. Quantification of the ecobehavioral
impact. Language and Hearing Research, 1998;
41: 819-833.
4) Sapienza CM, Crandell C, Curtis B. Effects of
sound-field frequency modulation amplification
on reducing teachers’ sound pressure level in
the classroom. Journal of Voice, 1999; 13: 3:
375-381.
5) Valdís I. Jónsdóttir. The Voice an Occupational
Tool. A study of Teacher´s Classroom Speech
and the Effects of Amplification. University of
Tampere 2003.
Kristín Arnardóttir deildarstjóri yngri
deildar í Öskjuhlíðarskóla er um það
bil að fara að gefa út námsefnið „Ég
get lesið“. Hún fer ótroðnar slóðir
í lestrarkennslu nemenda sinna og
notar hlutbundnar aðferðir sem minna
meira á hugmyndir sem hafa rutt sér
til rúms í stærðfræði undanfarið en
lestrarkennslu. Eftir að hafa flett í
gegnum handritið á skrifstofunni hjá
Kristínu er niðurstaðan þessi: Hér eru
á ferðinni námsgögn sem eiga vafalítið
eftir að slá í gegn. Þau nýtast foreldrum,
leikskólakennurum, kennurum yngri
barna í grunnskóla, sérkennurum og í
lestrarkennslu nýbúa.
„Þetta er hugsað eins og uppskriftabók,“
segir Kristín. „Ég sankaði að mér mat-
reiðslubókum þegar ég var að byrja og
mótaði uppsetninguna eftir þeim. Þetta
eru ýmist hugmyndir frá mér komnar
eða samkennurum mínum. Líkt og með
mataruppskriftir hafa þær gengið frá
einum til annars og tekið smávægilegum
breytingum í hverju eldhúsi.“ Um tildrög
bókarinnar segir Kristín að nokkrir
kennarar í skólanum hafi fengið styrk úr
Þróunarsjóði grunnskóla til að skrásetja
lestrarkennsluhugmyndir á aðgengilegan
hátt. „Þetta þróaðist svo þannig að ég
tók verkefnið alfarið að mér og fljótlega
kviknaði hugmynd að handbók,“ segir
Kristín. „Ég hef farið í þetta í törnum, ég
bý nálægt skólanum og hef skotist nokkrar
helgar ásamt með því að vinna þetta í
sumar. Eftir vinnuhelgi er ég alltaf komin
á svo gott skrið að ég get notað stopular
stundir sem gefast yfir vikuna.
Ljósritað fram í rauðan dauðann
Þetta er semsagt handbók fyrir kennara
og foreldra sem vilja hjálpa börnum fyrstu
skrefin. Námsefnið byggist á alls konar
æfingum með ýmiss konar smáhluti, litlar
myndir og stafaspjöld. Þetta er í rauninni
skref frá því að vera með fjölrituð verkefni
og námsbækur eingöngu. Aðferðin nýtist
mér vel og ég hef getað notað sama
myndasafnið mitt aftur og aftur í gegnum
allt lestrarkennsluferlið. Það er orðið
eldgamalt og lúið og samanstendur af
litlum myndum sem ég hef safnað saman.
Allt lestrarkennsluferlið, án þess að þurfa
nokkurn tímann að ljósrita. Mér hefur
runnið til rifja að sjá unga kennara sitja
baki brotnu og búa til bingó og hvaðeina
sem nýtist svo bara í eitt skipti. Hér í húsinu
er til gríðarlega mikill verkefnabanki og
fólk kemur í pílagrímsferðir alls staðar
að til að komast í hann og ljósrita. Það
ljósritar fram í rauðan dauðann einhver
verkefni sem kannski á að setja á eitt strik
Óhefðbundið námsefni sem fylgir börnum
fyrstu skrefin í lestrarnámi
Engin venjuleg heimili geta geymt til
lengdar möppur fullar af ljósritum
sem börnin koma með heim úr
skólanum. Margnota verkefni eru því
umhverfisvænn og góður kostur.
ÉG GET LESIÐ
Kristín Arnardóttir
með stafabangsana
HÁVAÐI Í LEIKSKÓLUM, ÉG GET LESIÐ