Skólavarðan - 01.01.2002, Síða 15

Skólavarðan - 01.01.2002, Síða 15
Við Adam fengum hugmyndina í árslok 1993“, segir Haukur og vísar þar til sam- starfsmanns síns Adams Ásgeirs Óskarsson- ar kerfisstjóra við skólann. „Okkur datt í hug að nota tölvusamskipti í kennslu, þ.e. að senda námsefni til nemenda. Við feng- um leyfi hjá þáverandi skólameistara, Bern- harð Haraldssyni, til að gera tilraun með þetta og byrjuðum strax á vorönn 1994. Þetta voru um 15 manns í tveimur hópum í ensku.“ Aðalheiður upplýsir að nú séu nemendur í fjarkennslu um sjö hundruð í um 180 áföngum með 90-100 kennara, þannig að fjarkennslunni hefur heldur betur vaxið fiskur um hrygg á þessum átta árum. „Áður voru allir kennararnir í VMA,“ segir Aðal- heiður, „en núna eru þetta einungis um 45%, hinir eru á víð og dreif um landið og einnig erlendis. Fyrst voru byggðir upp stúdentsprófsáfangar og nú er svo komið að nemendur geta tekið allt nám sitt til stúdentsprófs í fjarkennslu á stúdentsprófs- brautum skólans, en þær eru félagsfræða- braut, hagfræðabraut, náttúrufræðabraut og tæknibraut. Málabrautin er nánast í höfn og svo erum við líka að byggja upp starfsgreinatengt nám í samstarfi við kenn- ara í iðnskólum. Meistaraskólann erum við með nánast allan, nema verklega hlutann.“ Ekki minni kröfur Fjarkennsla getur verið með ýmsu sniði og þær raddir hafa heyrst að oft sé slegið af kröfum í námi af þessu tæi og kennarar geri sig ánægða með skil, meira þurfi varla. Er eitthvað til í þessu? „Nei, það eru ekki gerðar minni kröfur hjá okkur en í hefð- bundnum áföngum,“ segir Haukur. „Ef eitthvað er, er farið betur yfir námsefni en í dagskólanum. Afar nauðsynlegt er að nem- endum sé gerð full grein fyrir námskröfum í upphafi. Mín einlæga skoðun er sú að kröfurnar séu sambærilegar og jafnvel meiri. Námsefninu er skipt niður í pakka sem allir fá senda og nemendur verða að skila öllum verkefnum. Kennslan er tvenns konar, annars vegar fá allir leiðbeiningu á sama tíma og hins vegar er einstaklings- kennsla. Verkefni eru alltaf send út á sama vikudegi og á að skila til baka innan viku. Kennari fer yfir, leiðréttir og gefur skýring- ar á leiðréttingum sínum. Hann sendir síð- an nemanda verkefnið til baka innan sólar- F jarkennsla í VMA 16 Hugsjónamóður á borð við þann sem finnst hjá Hauki Ágústssyni er sjald- fundinn. Ég segi það bara hreint út: Slíkur eiginleiki heillar mann upp úr skónum. Haukur sjálfur er hávaxinn maður, stingur nokkuð við, hallar höfði aðeins niður og lítur upp undan gleraugunum, hógvær og jafnvel feiminn þar til hann byrjar að segja frá starfi sínu. Ég hitti Hauk og sam- kennara hans í Verkmenntaskóla Ak- ureyrar, Aðalheiði Steingrímsdóttur, sem meðal annars kennir í fjarkennsludeild VMA, á haustdögum 2001. Erindið var að spjalla um frum- kvöðlastarf á tilteknu sviði - ekki bara hérlendis heldur í miklu víðara sam- hengi: Fjarkennsluna í VMA. Ljósmæður námsdraumanna Haukur Ágústsson hefur sett gífurlega mikið og gott efni um uppbyggingu fjarkennsl- unnar í VMA, um hugmynda- fræði fjarkennslu og ýmislegt fleira á fjarkennsluhluta vef- svæðis VMA. Þar er meðal annars að finna þessa umfjöll- un um kennsluumhverfi: Sá þáttur, sem nýjastur er í fjar- kennslu nú um stundir, er tilurð svokallaðs „kennsluumhverfis“, en það felur í sér samhæft tölvuum- hverfi, sem felst fyrst og fremst í vefsíðum, þar sem fyrir hendi eru kennslugögn, ítarefni, hjálpartæki fyrir nemendur, hljóðskrár, kyrr- myndir, hreyfimyndaskrár, yfirferð- arefni, matsleiðir, tæki til þess að fylgjast með framgangi nemenda, vinna úr einkunnum og öðru töl- fræðilegum atriðum og ýmislegt fleira. Kennarar vinna efni sitt (námsefni, leiðbeiningar, sýnidæmi, ítarefni, orðalista, hjálparsíður, myndefni, hljóðefni o.s.frv.) inn í kennsluumhverfið, þar sem það myndar heildir innan námsefnis- pakka og einnig innan hlutaðeig- andi áfanga. Unnt er að tímasetja t.d. það, hvenær námsefnispakki verður aðgengilegur nemendum og einnig hve lengi hann er það. Einnig er hægt að gera ráð fyrir því, að lykilorð þurfi til þess að komast að kennsluefninu og nýta það. Samskiptaformið, sem er tölvupóst- ur, fylgir kennsluumhverfinu og er því staðlað og samhæft innan þess. Fleira mætti til tína. Þegar er til orðin veruleg flóra kennsluumhverfa, en hér á landi hefur væntanlega verið mest fjallað um svokallað „Learning Space“ annars vegar og svokallað „WebCT“ hins vegar. Hið fyrra keyrir í Lotus-umhverfi, en hið síð- ara í Windows-umhverfi. Hið síðara fellur betur að því, sem tíðast er fyr- ir hendi í skólum hér á landi, þó ekki sé nema umhverfisins vegna. „Fjarkennslan hefur orðið lausnarorð fyrir fjölda fólks,“ segir Haukur Ágústsson.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.