Skólavarðan - 01.01.2002, Qupperneq 27
Barnavinafélagið Sumargjöf rak leikskóla
í Reykjavík til margra ára, það setti á stofn
Fóstruskólann á sínum tíma og rak hann í
mörg ár eða allt þar til ríkið tók við rekstri
hans árið 1973. Stjórn Sumargjafar hefur
haldið minningu um leikskólastarf í
Reykjavík í heiðri og á mikið safn af göml-
um ljósmyndum af leikskólabörnum í leik
og starfi. Leikskólar Reykjavíkur tóku við
rekstrinum af Sumargjöf árið 1978 og reka
nú um 80 leikskóla í borginni, er vafalaust
mikið til af gömlum munum þar á bæ.
Félag leikskólakennara leitaði eftir sam-
ráði og samstarfi við borgaryfirvöld varð-
andi verkefnið. Vel var tekið í hugmyndina
og skipuð minjanefnd leikskóla sem í eiga
sæti fulltrúar frá Árbæjarsafni, Barnavina-
félaginu Sumargjöf, Félagi leikskólakenn-
ara og Leikskólum Reykjavíkur.
Minjanefnd hefur haldið nokkra fundi og
mótað tillögur að söfnun minja, skrásetn-
ingu, heimildaöflun, staðsetningu og varð-
veislu muna og síðast en ekki síst reynt að
finna leiðir til að afla fjár til verkefnisins.
Á fundi nefndarinnar þann 15. nóvember
sl. tilkynnti formaður Sumargjafar, Jón
Freyr Þórarinsson, að stjórn félagsins hefði
ákveðið að styrkja þetta verkefni með því að
greiða starfsmanni laun í allt að þrjá mán-
uði. Þessi rausnarskapur stjórnar Sumar-
gjafar breytti verulega framgangi verkefnis-
ins. Leitað var til Margrétar Gunnarsdótt-
ur, leikskólakennara og fyrrverandi kennara
við Kennaraháskóla Íslands - leikskólaskor,
um að taka að sér verkefnið. Hún mun
kanna hvað til er af gömlum munum í leik-
skólum og leita eftir vilyrði til að þeir verði
varðveittir á minjasafni um leikskóla.
Einnig er áhugi er fyrir því hjá nefndinni að
tengja saman munnlegar upplýsingar um
munina og notkun þeirra.
Margrét hefur þegar hafið störf og mun
hún hafa samband við leikskólana á næstu
vikum. Einnig eru leikskólar beðnir um að
hafa samband við Margréti, eigi þeir eitt-
hvað af munum frá gamalli tíð sem vert
væri að skrásetja og jafnvel varðveita í
minjasafni leikskóla.
Árbæjarsafn mun hafa yfirumsjón með
verkefninu, halda utan um skráningu og
varðveislu muna og veita faglega leiðsögn,
auk þess sem aðstaða verður fyrir starfs-
mann nefndarinnar í Árbæjarsafni. Með því
móti verður tryggt að faglega sé að verki
staðið og að minjasafn um leikskóla verði
leikskólabörnum og leikskólum til fróð-
leiks og ánægju og leikskólamenningu til
framdráttar.
Samið um min jasafn le ikskóla
28
Félag leikskólakennara varð 50 ára í
febrúar árið 2000. Ýmsir viðburðir
áttu sér stað í félagsstarfinu á afmæl-
isárinu. Má þar nefna útgáfu á sögu
félagsins og leikskólakennaratali,
stefnu FL og veggspjaldi með siða-
reglum félagsins. Auk þess var haldin
ráðstefna, Barnið í brennidepli, í
Borgarleikhúsinu.
Afmælisnefnd félagsins reifaði þá
hugmynd að koma á fót minjasafni
leikskóla til þess að saga og þróun
leikskólanna varðveittist, en liðin er
ríflega hálf öld frá því að fyrstu leik-
skólarnir hófu starfsemi sína.
Minjasafn leikskóla
Frétt
Menntamálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla fyrir
árið 2002- 2003. Við úthlutun njóta forgangs þróunarverkefni sem lúta að umbótum
í starfi með tvítyngdum börnum og notkun tölva í leikskólastarfi. Umsóknir skulu
hafa borist menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00
föstudaginn 1. mars 2002.
Tilgangur Þróunarsjóðs leikskóla er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum
með hliðsjón af nýrri aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýj-
ungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi. Um styrk geta sótt leikskólastjórar,
leikskólakennarahópar eða einstakir leikskólakennarar. Aðrir geta sótt um styrk með
samþykki leikskólastjóra og rekstraraðila. Sækja má um styrk til nýrra verkefna og
verkefna sem þegar eru hafin.
Við úthlutun njóta verkefni á neðangreindum sviðum forgangs að öðru jöfnu.
A. Tvítyngd börn - fjölmenningarlegt starf í leikskólum
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni sem snúast um umbætur í starfi
með tvítyngdum börnum í leikskóla. Átt er við þróunarverkefni sem stuðla að bættri
þjónustu í leikskóla við þann stækkandi hóp barna sem ekki hafa íslensku að móð-
urmáli. Einnig er sóst eftir verkefnum þar sem unnið er gegn fordómum og stuðlað
að umburðarlyndi og víðsýni gagnvart ólíkri menningu.
B. Tölvur í leikskólastarfi
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarverkefni sem snúast um notkun tölva í
leikskólastarfi. Sóst er eftir verkefnum þar sem börn fá að kynnast tölvum og læra
að nota þær á sinn hátt í leik og starfi og með öðrum börnum.
Heimilt er að sækja um styrki til hvers kyns þróunarverkefna þótt ofangreind svið
njóti forgangs.
Nánari upplýsingar eru veittar í menntamálaráðuneytinu og umsóknir skulu ber-
ast þangað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem liggja frammi í ráðuneytinu.
Eyðublaðið er einnig aðgengilegt á heimasíðu menntamálaráðuneytis: www.men-
ntamalaraduneyti.is undir liðnum almenn afgreiðsla, sjóðir og eyðublöð, Þróunar-
sjóður leikskóla. Reglur um sjóðinn og ýmsar aðrar upplýsingar er einnig að finna á
heimasíðunni.
Styrkir úr Þróunarsjóði leikskóla
auglýstir
Undirritun samnings í Árbæjarsafni þann 29. nóvember sl. Á myndinni eru Guðný Gerður Gunnars-
dóttir frá Árbæjarsafni, Hildur Skarphéðinsdóttir frá Leikskólum Reykjavíkur, Gerður Róbertsdóttir
frá Árbæjarsafni, Hrafnhildur Sigurðardóttir frá Félagi leikskólakennara, Ingibjörg K. Jónsdóttir og
Jón Freyr Þórarinsson frá Barnavinafélaginu Sumargjöf.