Skólavarðan - 01.05.2003, Page 3
4
Leiðar i
Ritstjóri: Kristín Elfa Guðnadóttir kristin@ki.is
Ábyrgðarmaður: Helgi E. Helgason helgi@ki.is
Hönnun: Penta ehf.
Ljósmyndun: Jón Svavarsson
Teikningar: Ingi
Auglýsingar: Öflun ehf. / Kristín Snæfells / kristin@oflun.is / sími: 533 4470
Prentun: Prentsmiðjan Grafík / Gutenberg ehf.
Forsíðumyndin er tekin í málmsuðukeppni sem haldin var í VMA í apríl sl./
Jón Svavarsson.
Skólavarðan, s. 595 1118 (Kristín) og 595 1119 (Helgi).
Veðrið Og Vodafone
„Veðrið er í boði Og Vodafone“ glymur í útvarpinu. Gott að vita hvert
maður á að sækja skaðabæturnar ef þetta verður rigningarsumar. Allir
hlutir eru að skýrast um þessar mundir, ekki bara hver ber ábyrgð á
veðrinu heldur vitum við svo gott sem fyrir víst hverjir stjórna landinu
næstu fjögur ár. Framtíðin er í boði „Og D(aglegt) B(rauð)“. Allt í góðu
með það. Fyrirtækið „Og Þjóðin“ getur flotið hægt eða hratt eftir atvik-
um að þeim ósi sem nýir ráðamenn velja henni. Eða hvað? Hefur hún
kannski eitthvað um það að segja hvert hún fer, á hún sér eitthvað fram-
haldslíf umfram krossinn á golgatakjörseðlinum, getur hún haft áhrif
eftir 10. maí? Last stop: Kjörklefinn. Er það svo?
Nei, ekki endilega. En eins og Eiríkur Jónsson formaður KÍ benti á í
ræðu sinni á Ingólfstorgi 1. maí þá hafa stjórnmálamenn löngum getað
treyst því að pólitískt minni þjóðarinnar sé stutt. Sem kemur sér vel þeg-
ar að því kemur að efna eða efna ekki kosn-
ingaloforð. (Og meðal annarra orða, ræðan
hans Eiríks var frábær og undirtektir áheyr-
enda eftir því. Þið getið lesið hana á heima-
síðu KÍ).
Til að rifja upp sýn stjórnarflokkanna í
menntamálum og hvað þeir setja á oddinn
á komandi árum er rétt að grípa niður í
stefnu þeirra.
Í kosningayfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins
segir: „Sjálfstæðisflokkurinn setur mennt-
un í öndvegi, enda ræður menntun þjóðar
miklu um velferð og hagvöxt hvers sam-
félags. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur menntakerfið tekið stór-
stígum framförum og heildstæð endurskoðun farið fram á öllum skóla-
stigum, frá leikskóla til háskóla. Sjálfstæðisflokkurinn vill að menntakerf-
ið veiti okkur áfram forskot til framtíðar, treysti mannlíf, byggð og at-
vinnulíf. Nauðsynlegt er að jafna samkeppnisaðstöðu á milli skóla og
stuðla að frjálsu vali nemenda og forráðamanna þeirra þar sem fjármun-
ir eru bundnir hverjum einstökum nemanda. Á næstu árum verður lögð
sérstök áhersla á sókn á sviði verk- og starfsmenntunar og á aðgerðir til
að auðvelda fólki á vinnumarkaði og þeim sem lengi hafa verið utan
skóla að hefja nám að nýju.“
Í stefnuskrá Framsóknarflokksins eru talin upp þau atriði sem flokkur-
inn hyggst beita sér fyrir í þessum málaflokki:
• Menntun fyrir alla, óháð efnahag, búsetu og stöðu.
• Öflugt símenntunarkerfi verði starfrækt í samvinnu við aðila
vinnumarkaðarins.
• Engin skólagjöld verði í grunnskólum, framhaldsskólum eða
ríkisreknum háskólum.
• Í samvinnu við sveitarfélögin verði komið á skólaskyldu á
síðasta ári leikskólans.
• Hugmyndir um samræmd próf í framhaldsskólum verði
endurskoðaðar.
• Endurgreiðsla lána LÍN verði lækkuð til samræmis við eldri lánaflokk.
• Hluti af lánum þeirra sem ljúka fullu námi innan tilskilins tíma
breytist við það í styrk líkt og annars staðar á Norðurlöndunum.
• Framfærslugrunnur LÍN verði endurskoðaður.
• Fallið verði frá kröfum um ábyrgð þriðja aðila á láni hjá LÍN.
• Fjarnám verði eflt og kostnaði við þátttöku í því mætt
með fyrirgreiðslu hjá LÍN.
• Menntakerfið verði endurskoðað og lögð verði aukin áhersla
á verkmenntun og styttri námsleiðir til starfsréttinda.
Hér er margt gott að finna og nú stendur það upp á kjósendur þessara
flokka jafnt sem annarra að fylgjast með því að hlutirnir komist til fram-
kvæmda. Meginviðfangsefni þessa tölublaðs Skólavörðunnar er sam-
ræmd próf í framhaldsskólum og því vekur það sérstaka athygli að
Framsóknarflokkurinn vill endurskoða þau próf. Þegar þetta er skrifað er
ekki ljóst hver verður menntamálaráðherra en margir telja að Framsókn
muni gera sterka kröfu til þessa ráðuneytis. Ef svo fer að þeir hreppa
hnossið má því búast við að samræmd próf í framhaldsskólum verði tek-
in til endurskoðunar. Við bíðum og sjáum hvað setur. Einnig vekur at-
hygli áhersla beggja flokkanna á verk- og starfsmenntun sem eru gleði-
leg tíðindi. Við fylgjumst með hverjar efndir verða. Framsóknarflokkur-
inn hefur borð fyrir báru varðandi gjaldtöku í skólum með því að tala um
að ekki eigi að innheimta skólagjöld í ríkisreknum háskólum en skóla-
gjöld gætu þó orðið togstreitutilefni milli flokkanna. Við fylgjumst grannt
með þessu. Þótt atkvæði séu talin og niðurstöður kosninga kunnar er
vinnu kjósenda ekki lokið, ekkert frekar en stjórnmálamannanna.
Kristín Elfa Guðnadóttir
Efni
Meginviðfangsefni þessa tölublaðs:
SAMRÆMD STÚDENTSPRÓF 10 - 16
Fyrsta samræmda stúdentsprófið í augsýn 10
Opinn fundur um samræmd stúdentspróf 10
Samræmd próf - tilgangur þeirra 13
Getum við velt því yfir á nemendur? 15
Alþjóðlegt stúdentspróf 15
Aðrar greinar
Stig af stigi 7
Kennsluefnið Stig af stigi hefur farið sigurför víða um lönd og
hérlendis hafa leikskólar og grunnskólar prófað efnið með
góðum árangri, meðal annars leikskólinn Iðavöllur á Akureyri.
Hvernig má leysa vandann? 8
Sólveig Karlvelsdóttir alþjóðafulltrúi KHÍ segir frá rannsókn
sinni á líðan og starfi kennara við erfiðan grunnskóla, en
rannsóknin var jafnframt lokaverkefni Sólveigar til
meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði.
Fjölsóttur og líflegur fundur um leiklistarkennslu 18
Um hundrað manns sóttu opinn fund fræðsludeildar
Þjóðleikhússins um leiklistarkennslu nýverið. Margt
áhugavert kom fram um stöðu og framtíðarsýn í leik-
listarkennslu í íslenskum grunn- og framhaldsskólum.
Nýr kjarasamningur eftir tæpt ár 20
Agnar H. Kristinsson og Jón Pétur Zimsen gagnrýna
kjarasamning grunnskólans og leggja fram áhersluatriði
til umhugsunar fyrir félagsmenn.
Sjálfsmat í Flensborg 22
Unnar Örn Þorsteinsson skrifar um hvernig sjálfsmatsvinna
hefur þróast í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.
Tónver Tónlistarskóla Kópavogs 24
Tónskáldin Hilmar Þórðarson og Ríkharður H. Friðriksson
veita hinu nýstárlega tölvutónlistarveri í Kópavogi forstöðu,
sem ætlað er að útskrifa nýja tegund íslenskra
tónlistarmanna.
Fastir liðir
Formannspistill 3
Finnbogi Sigurðsson skrifar.
Gestaskrif 5
Guðrún Ebba Jónsdóttir hefur frá mörgu að segja yfir kaffinu.
Skóladagar 16
Myndasaga Skólavörðunnar.
Bókaáskorun 17
Ragnar Gíslason segir frá bókum Alfie Kohns og skorar á
Steinunni Ármannsdóttur að skrifa næst.
Smáauglýsingar og tilkynningar 29
Smiðshöggið 30
... og viti nú menn! Berglind Agnarsdóttir leikskólastjóri
skrifar um listina að segja sögu og iðkun hennar í leikskólum.
Að auki
Tónlistarnámstefna NMPU í Kópavogi nú í sumar,
stofnun hreyfingar ungra kennara, alþjóðleg ráðstefna
um söguaðferðina o.fl.