Skólavarðan - 01.05.2003, Blaðsíða 17

Skólavarðan - 01.05.2003, Blaðsíða 17
Auk menntamálaráðherra, Tómasar Inga Olrich, ávörpuðu fundinn Gerður G. Ósk- arsdóttir fræðslustjóri, Ragnheiður Skúla- dóttir deildarforseti leiklistardeildar LHÍ, Guðlaug María Bjarnadóttir leikkona og kennari í Borgarholtsskóla, Anna Flosadótt- ir myndlistar- og leiklistarkennari í Hlíða- skóla og Sigrún Sól Ólafsdóttir leiklistar- kennaranemi. Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri og deildarstjóri fræðslu- deildar Þjóðleikhússins var fundarstjóri og stýrði um- ræðum á eftir. Leiklist fyrir alla Menntamálaráðherra sagðist í framsögu sinni gjarnan vilja skoða ýmsa möguleika til að efla leiklist í skólakerfinu. Hann nefndi sérstaklega þrennt. Í fyrsta lagi að til greina komi af hans hálfu að skilgreina leiklistarkjörsvið á listnámsbraut í framhaldsskóla, ef áhugi reynist fyrir hendi, og fela einhverjum skóla að þróa slíkt nám. Þá nefndi hann verkefnið Tónlist fyrir alla sem mögulega fyrirmynd að verkefni sem nefna mætti Leiklist fyrir alla. Markmið slíks verkefnis yrði að efla tengsl milli leikhússins og skól- anna. Að síðustu tilkynnti menntamálaráð- herra um nýjan ráðgjafahóp um listkennslu í skólum. Leitað hefur verið til Bandalags íslenskra listamanna um tilnefningar í slík- an ráðgjafahóp sem gæti verið ráðuneytinu innan handar um þróun listnáms í grunn- og framhaldsskólum. Gerður G. Óskarsdóttir fagnaði því í framsögu sinni að umræðan um leiklistar- kennslu væri opnuð á þennan hátt og lýsti þætti leiklistar í starfi grunnskólanna. Hún sagði frá því að í öllum skólum væri leiklist stunduð á einn eða annan hátt og flestir þeirra keyptu einnig til sín leiksýningar. Í sýn sinni til framtíðar talaði hún um leiklist sem tæki til náms og þroska í öllum grein- um. Hún telur líkur á því að í skólum fram- tíðarinnar verði alveg hætt að skipta kennslugreinum niður í afmarkaðar tíma- einingar, eins og gert hefur verið hingað til, heldur renni kennslan meira saman í samþætt starf þar sem leiklistin geti leikið stórt hlutverk. Gagnrýndi viðhorf til leiklistarstarfs Ragnheiður Skúladóttir fagnaði orðum ráðherra um að til greina komi á næstunni að skilgreina leiklistarkjörsvið í framhalds- skóla. Hún ræddi um mikilvægi þess að byggja upp kennslu í leiklist til jafns við aðrar listgreinar. Hún tók sem dæmi að til þess að komast inn í myndlistardeild LHÍ þurfi nemendur að hafa lokið að minnsta kosti 30 eininga námi í myndlist á fram- haldsskólastigi. Til þess að komast inn í tónlistardeild þurfi nemendur að hafa lokið 7. stigi á hljóðfæri sitt. En til þess að kom- ast inn í leiklistardeild þurfi nemendur eingöngu að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu, eða sýna afburða hæfi- leika á sviði leiklistar. Í ár sækja 130 um inngöngu í leiklistardeildina, þar af 40% sem ekki uppfylla þessi grunnskilyrði. Hún gagnrýndi harkalega þau viðhorf sem virðast vera ríkjandi innan skóla- kerfisins, að til þess að stunda leiklist þurfi ekki grunnmenntun sambærilega við aðrar listgreinar. Guðlaug María Bjarnadóttir lýsti fyrir- komulagi leiklistarnáms í Borgarholtsskóla, en þar eru nú kenndir fjórir samhangandi leiklistaráfangar. Þar eru uppi hugmyndir um listnámsbraut í leiklist þar sem m.a. yrði kennd leiklistarsaga, talsetning, kvik- myndagerð, leiktækni, leikstjórn o.s.frv. Anna Flosadóttir sagði frá þróun leiklist- arkennslu í Hlíðaskóla. Fyrir níu árum var farið að setja upp stórar sýningar þar, þar sem samtvinnast leiklist, tónlist, myndlist og dans. Rík hefð hefur skapast fyrir þessu starfi í skólanum og nemendur eru einstak- lega áhugasamir um að taka þátt. Leiklist er kennd sem sérstök kennslugrein í Hlíða- skóla, auk þess að vera þáttur í listasmiðju sem rekin er í unglingadeild skólans. Hún sagði leiklistina í skólastarfinu fyrst og fremst styðja nemendur í því að „ná sam- bandi við sinn innri mann“. Sigrún Sól Ólafsdóttir er í kennslurétt- indanámi fyrir leikara í LHÍ. Hún lýsti í stuttu máli framtíðarsýn sinni á leiklistar- kennslu. Hún ræddi um mikilvægi þess að hafa sérmenntaða leiklistarkennara og sagði þá hafa framtíð listgreinarinnar í höndum sér. Bjargaði mér gegnum unglingsárin Að loknu hléi sögðu Árni Kristjánsson og Hjörtur Jóhann Jónsson nemendur úr MH á lifandi hátt frá leiklistarnámi sínu í skólanum og hvað þeir vildu að yrði gert til úrbóta í skipulagi þess. Kristín Þóra Har- aldsdóttir sem bæði fór í Hlíðaskóla og MH sagði frá reynslu sinni og hvernig sér fyndist þátttaka sín í leiklist hafa bjargað sér í gegnum unglingsárin. Þá urðu líflegar umræður í salnum þar sem kennarar af báðum skólastigum, nemendur, listamenn og kennslufræðingar skiptust á skoðunum. Fulltrúar úr menntamálaráðu- neyti voru einnig til taks til þess að svara þeim spurningum sem komu upp. Ýmsir vitnuðu um vel heppnað leiklistarstarf og tilraunir í skólum sínum, en m.a. var skipst á skoðunum um hvort leiklist ætti að teljast sérstök námsgrein eða vera samþætt öðrum námsgreinum. Nokkrir vildu að leiklistar- kennarar yrðu ráðnir að skólunum til stuðnings við bekkjarkennara samhliða því að kenna leiklist. Bent var á hversu miklir möguleikar væru nú þegar á því innan námskránna að flétta leiklist inn í skóla- starfið. Þá var m.a. rætt vægi leiklistar í Kennaraháskóla Íslands, samstarf foreldra og kennara, fyrirkomulag valáfanga í fram- haldsskólum o.fl. Vigdís Jakobsdóttir Leik l ist í skó lum 18 Tæplega hundrað manns sóttu opinn fund fræðsludeildar Þjóðleikhússins um leiklistarkennslu mánudaginn 17. mars sl. Rætt var um stöðu og fram- tíðarsýn í leiklistarkennslu í íslenskum grunn- og framhaldsskólum. Meðal frummælenda var menntamálaráð- herra. Fjölsóttur og líflegur fundur um leiklistarkennslu Á fundinum tilkynnti menntamálaráðherra um nýjan ráð- gjafahóp um listkennslu í skólum. Leitað hefur verið til Bandalags íslenskra listamanna um tilnefningar í slíkan ráðgjafahóp sem gæti verið ráðuneytinu innan handar um þróun listnáms í grunn- og framhaldsskólum.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.