Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 48

Gerðir kirkjuþings - 2010, Page 48
 48 Ísland“. Fólk reiddist. Það skildi ekki hvernig leiðtoga ríkisstjórnarinnar datt í hug að blanda almættinu í þetta veraldlega mál. Fólk skildi ekki að þar var forsætisráðherrann að undirstrika alvarleika málsins. Nú var heill þeirrar þjóðar sem honum var ætlað að leiða – ekki aðeins í höndum hans og annarra mennskra. Nú þurfti meira að koma til. Þegar herskáir guðleysingjar og fylgdarsveinar þeirra reyna nú að koma í veg fyrir kristinfræðikennslu í skólum borgarinnar, gengur þeim nokkuð til sem þeir ekki vilja viðurkenna á yfirborðinu. Málatilbúnaðurinn gengur allur út á að mannréttindi séu aðeins tryggð með algjörri þöggun um trúmál og trúarbrögð – en markmiðið er að valda algjöru og endanlegu siðrofi milli kristinnar kirkju og fólksins í landinu. Sú ráðagerð má ekki ná fram að ganga. En kirkjan virðist standa nokkuð ráðalaus frammi fyrir þessari tangarsókn. Ekki mun kirkjan kalla eftir heimild til trúboðs í skólum – því hefur hún engan áhuga á. En hún verður að taka slaginn sem tryggja mun að kristin fræði og ófölsuð menningarsaga, verði áfram tryggð og verði þungavigtarfög í skólum landsins. Aðeins þannig getum við komið í veg fyrir frekara siðrof og meiri upplausn. Einhverjir hafa sopið hveljur yfir því að biskup skyldi spá svo fyrir um framtíð þjóðarinnar, yrðu tillögur mannréttindaráðs að veruleika, að hún myndi jafnvel einkennast af andlegri örbirgð. En hvað er hægt að kalla það ástand annað, þegar fólk stendur uppi í eigin landi, blint og ólæst á eigin menningu og sögu. Það er andleg örbirgð í sinni skelfilegustu mynd. V. Fleiri þjóðir hafa upplifað þetta og eru nú að takast á við vandann. Í samtali sem ég átti við stjórnarformann Breska og erlenda biblíufélagsins fyrir nokkru, John Hughesdon, tjáði hann mér að bresk skólayfirvöld, sem gengið hafa langt í að draga úr kennslu í kristnum fræðum, í nafni umburðarlyndis gagnvart öðrum trúarbrögðum, hafa nú leitað til biblíufélagsins þar í landi og óskað eftir ráðum um það hvaða hlutum Biblíunnar nemendur þurfi að kunna skil á, eigi þeir að skilja dýrmætasta menningararf þjóðarinnar – höfundarverk Williams Shakespears. Þar hefur orðið siðrof, jafnt menningarlegt og trúarlegt. Annað dæmi lýsir sér í viðmiklu verkefni sem hleypt hefur verið af stokkunum í Bandaríkjunum. Þar hafa menn gert sér grein fyrir afleiðingum þess að úthýsa kristnum fræðum úr skólum. Í ljósi þeirrar reynslu hefur fjöldi öflugra aðila hleypt af stokkunum verkefni sem nefnist „Bible literacy project“4. Hverfist verkefnið í kringum útgáfu kennslubókar sem ber titilinn „The Bible and its influence“. Hefur bókinni verið vel tekið og æ fleiri skólar, í æ fleiri ríkjum Bandaríkjanna, hafa nú kosið að taka hana til notkunar í kennslu. Varpar hún með lifandi hætti ljósi á þau órjúfanlegu tengsl sem milli Biblíunnar eru og menningar þjóðarinnar, jafnt í bókmenntum, stjórnmálum, kvikmyndum, myndlist og á öðrum sviðum mannlífsins. Bókin er viðspyrna gegn þróun sem leitt getur til siðrofs. Hún er heillandi og er í raun samantekt á þeirri áhrifasögu sem Biblían á þar í landi og í heimsmenningunni. Tengsl af þessu tagi eru allt um kring sýnileg hér á landi einnig eins og eðlilegt er eftir þúsund ára samleið þjóðar og kirkju. Á þetta hefur dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í gamlatestamentisfræðum, verið óþreytandi að benda á í ræðu og riti á síðustu áratugum. Bendir margt til þess að hann hafi verið meðal fyrstu fræðimanna á sínu sviði til að leggja áherslu á þessi tengsl í rannsóknum sínum. Hefur það 4 http://www.bibleliteracy.org Heiti verkefnisins gæti útlagst sem: „Verkefni um biblíulæsi“.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.