Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 153

Gerðir kirkjuþings - 2010, Side 153
 153 3. Innihald fræðslunnar 3.1 Kjarni kristinnar trúar Fræðslan þarf að hafa ákveðið innihald og við val á því þarf að taka mið af meginmarkmiðum starfsins. Fræðslan skal höfða til eftirfarandi námsþátta, þ.e.a.s. vitsmunalegra, leikni- og viðhorfaþátta. Vitsmunalegi þátturinn tengist allri þeirri þekkingu sem við viljum að börnin tileinki sér. Börnin þurfa að læra helstu frásögur Biblíunnar, hugtök, hugmyndir og læra að draga lærdóm af þeim. Leikniþátturinn snýr meira að hinu trúarlega atferli, hlutum eins og að læra að biðja, taka þátt í guðsþjónustunni og kirkjulegum athöfnum. Öll umfjöllun um breytni og siðferði tengist viðhorfasviðinu. Hér er átt við í hversu ríkum mæli hið trúarlega hefur áhrif á breytni, samskipti við aðra og umgengni við sköpunarverkið. Ljóst er að þessir þættir skarast meira og minna en mikilvægt er að hafa þá í huga þegar starfið er skipulagt. Höfuðáhersla skal lögð á ákveðinn fræðslukjarna og er það líklega best tryggt með því að öllum börnum standi til boða lágmarksfræðsla. Að auki skal bætt við þennan kjarna eins og þurfa þykir. Innihaldið skal taka mið af kjarna kristinnar trúar. Efni fræðslunnar skal ná til: Boðorðanna, trúarjátninga, bæna og sakramenta. Biblíutextar skulu sóttir í Gamla og Nýja testamentið. Textar um Krist skulu vera í fyrirrúmi. Við val á efni fræðslunnar skal tekið mið af aðstæðum og reynsluheimi barnanna, bæði í safnaðarstarfinu og samfélaginu almennt. 3.2 Fræðsluefni fyrir barnastarfið Fræðslan skal veita haldgóða þekkingu á boðskap kristinnar trúar og vera hjálp til að lifa sem kristinn lærisveinn. Þættir sem komið skal inn á eru: • Skírnarfræðslan á að veita grundvallarþekkingu á Guði, veita hjálp til að játa trúna og lifa trúarlífi. Barnið á að fá vitneskju um skírnina og altarissakramentin. Auk þess á það að fá leiðsögn til að geta lifa trúarlífi. • Barnið fræðist um innihald Biblíunnar, læri að þekkja helstu frásögur hennar og fái hjálp til að nota hana. • Barnið fái innsýn í guðþjónustuna og hjálp til að taka virkan þátt í henni. • Kirkjuárið sé undirstrikað með því að halda merkisdaga og hátíðisdaga kirkjunnar hátíðlega. Börnin verði læs á táknmál kirkjunnar, þekki liti kirkjuársins og undirstrika skal mikilvægi venja í lífi og þroska barnsins. • Hjálparstarf og kristniboð skal kynnt og höfða skal til samábyrgðar og samhjálpar. Undirstrika skal ábyrgð barnanna á náunganum. • Í skírnarfræðslunni verði miðlað þekkingu á boðorðunum tíu, tvöfalda kærleiksboðorðinu og börnunum hjálpað til að lifa í samræmi við boðskap þeirra, bæði á heimilunum og í skólanum. 3.3 Áherslur og skipulag fræðsluefnis Við skipulag fræðslunnar skal höfuðáhersla lögð á samband barnsins við Guð, tengsl við söfnuðinn og nánasta umhverfi. Taka skal mið af textum kirkjuársins eins og hægt er við val á biblíutextum og þegar innihald fræðslunnar er skipulagt. Lögð skal áhersla á eftirfarandi þemu þegar biblíutextar eru valdir: 1. Kærleikur Guðs. 2. Ævi Jesú. 3. Að vera lærisveinn.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.