Félagsbréf - 01.12.1963, Page 12
Gannar Gnnnarsson ásamt Tómasi Guðmundssyni, formanni bókmenntaráðs AB, Gylfa Þ.
Gíslasyni menntamálaráðherra off Bjarna Benediktssyni, formanni stjórnar AB. — Myndin
var tckin er lokið var útgáfu skáldverka Gunnars á vegum AB.
höín 1911, ári fyrr en fyrsti þáttur
Borgarættarinnar. Síðan hefur Gunnar
ekki birt ljóðabækur. Þessi æskuljóð,
sitt úr hverri bók, eru birt hér lesend-
um til vitnis um það hvert var upphaf
að ferli höfundarins. — Greinin um
örlög Norðurlanda er tekin úr kveri
sem nefnist Det nordiske Rige og kom
út 1927, en Gunnar hafði þá um sinn
verið ákveðinn talsmaður norrænnar
bandalagshugsjónar, og var þeim mál-
8 FÉLAGSBRÉF
um allmikið hreyft um þetta leyti. Eru
í bókinni greinar og ræður þessa efn-
is. — Gunnar Gunnarsson hefur birt
allmikið af ritgerðum um ýmis efni
bæði á dönsku og íslenzku og raunar
fleiri málum; en ekki er ennþá til
neitt safn þeirra á íslenzku. Þessi grein,
sem enn kann að vera tímabær, má
vera lesendum vísbending um þennan
þátt í verki hans.