Félagsbréf - 01.12.1963, Síða 38

Félagsbréf - 01.12.1963, Síða 38
húsi skauzt með kollhúfu á höfðinu yfir vinnusvæðið, hjá skúr einum lá blikkkútur á hliðinni með járnkeðju milli tappa og handfangs, eftir margar tilraunir kom drengurinn fæti undir keðjuna og rykkti í, tappinn skrapp úr, einhver vökvi vall úr kútnum nið- ur í lausan jarðveginn, og drenguririn gekk í hægðum sínum skáhallt yfir svæðið í átt til götunnar. Hann vings- aði skjalatöskunni og hraðaði göng- unni. Sveiattan, þetta var ljótt af þér, sagði hann um leið og hann hraðaði sér hjá. Strákurinn horfði þrjózku- lega fram hjá honum og varð eftir í göngunum að neðanjarðarbrautarstöð- inni. Húfan var með breiðum hvítum hring, og upp úr kollinum stóð blár brúskur. Fast við tröppurnar og miða- sölubásinn stóð Vilhelm Hansen í ljósleitum vorfrakka og Heinrik Svend- sen í bláum jakkafötum, Vilhelm var skólabróðir hans og ritari í verkalýðs- sambandi, Heinrik Svendsen þekkti hann af blaðamyndum sem fulltrúa vinnuveitendafélagsins. Hún syngur yndislega, sagði Vilhelm. Hvernig hún getur haldið tóninum, sagði Heinrik Svendsen. Það er ótækt að láta þetta verkfall standa lengur, þið ættuð að reyna að binda enda á það í staðinn fyrir að vera að masa um dægurlaga- söngkonur, hreytti hann í þá um leið og hann gekk hjá, skjalataskan straukst við fótleggi hans, og mennirnir tveir sneru sér báðir reiðilega að honum og þokuðu sér nær hvor öðrum. Það sá hann ekki og kom nú að þyrpingu á stöðvarpallinum, stillileg tóm og þrungin andlitin í kringum hann, alla- 34 FÉLAGSBRÉF vega klætt fólkið sem stóð þarna við- búið, tilfinningin sem frá því stafaði um sameiginlega þátttöku í einhverju sem ekki var tengt neinni skyldukvöð, þetta fyllti hann yl ókennilegrar gleði, handfangið á skjalatöskunni rann úr lófa hans og hékk eins og fis á fremsta köggli litla fingurs. Þegar þyrpingin þokaðisl inn í breiðar miðjudyrnar á lestarvagnin- um, greindust einstaklingarnir hver frá öðrum, hver með sinn svip og sitt yfirbragð, hann þrýsti skjalatöskunni upp að bringunni og fann sér sæti við gluggann, hjá honum settist kona með fagurrautt hár, og hann yrti ekki á hana, það var ekki til siðs í úthverfa- lestum. Hann lagði skjalatöskuna á kné sér, úti, cséður uppi yfir lestinni, straukst straumteinn við þaninn raf- strenginn, og lestin rann af stað, inni, á tveimur sætaröðum og tveimur ein- stökum sætum aftast, þar sem lestar- þjónninn hafði aðsetur öðrum megin, sat fólkið með andlitin í inniluktu tómi, og hver og einn byrgði hug sinn miskunnarlaust. Fólk kvartar í blöð- um og bókum yfir einmanaleik sínum, hugsaði hann með sér, útvarp og sjón- varp, bækur og blöð gefa hverjum manni sitt og skilja hann frá öðrum, þegar færi býðst svo til að tala saman lokar fólk að sér, það er ekki rétt. Hann setti skjalatöskuna við hlið sér upp við sætisbakið og sá greinilega ofan frá, ofan af brautargarðinum, að gömul trjágöng höfðu verið rofin með götum og húsaröðum, aðeins stakir smákaflar stóðu eftir í görðum og portum og sýndu stefnuna, hann vissi ekki hvort það var rétt eða rangt. Þeir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.