Félagsbréf - 01.12.1963, Side 40

Félagsbréf - 01.12.1963, Side 40
aftur inn í skrifstofuna til að láta bæta í þeim sýnishornum sem vantaði áður en hann sækti töskuna á mánudags- morgun. Vikapiltur úr birgðageymslunni í brúnum vinnujakka var að afhenda sölustjóranum afgreiðslulista þegar hann kom aftur, sölustjórinn lagði skjölin annars hugar undir bréfafarg og benti piltinum að hinkra við. Pilt- urinn tók sér stöðu úti í einu horni skrifstofunnar og beið þar, með sítt hár í hnakkanum og þykkan lokk yfir vinstra auga. Sölustjórinn bauð hon- um sæti á stólnum sem fyrr og rétti honum pantanaafritin svo að hann gæti fengið sölulaunin greidd hjá gjaldkera síðar, næstum helmingur pantananna hafði verið strikaður út, grisjuðu seðlana átti að senda í birgða- geymsluna, hitt afritið, það óskerta, höfðu viðskiptavinirnir undir höndum, þeir biðu eftir vörunum sem þeir höfðu pantað og gerðu ráð fyrir þeim, hann hafði boðið þeim þær til kaups og sumpart talið þá á að kaupa, hann var gerður ómerkur orða sinna. En við höfum vörurnar enn þá, sagði liann lágmæltur. Við getum ekki útvegað meira eins og stendur, sagði sölustjór- inn og pikkaði laust með blýanti á auðan hlett á skrifborði sínu. Hækka þessar vörur í verði þegar verkfall- inu lýkur? spurði hann dræmt. Ef til vill, svaraði sölustjórinn og brosti sáttfúslega. Þær hafa ekki hækkað enn, sagði hann og beit saman tönnunum. Sölustjórinn kumraði góðlátlega, við verðum að tryggja okkur gegn síðari verðlækkun og tjóni af völdum verk- fallsins. Hann varð reikull í rómnum og hendurnar fitluðu í sífellu við hand- fangið á skjalatöskunni, bara ef þessar pantanir yrðu afgreiddar að fullu, þótt vörurnar yrðu framvegis ekki fáanleg- ar. Þér vitið að það er skrifstofan sem ákveður hvort unnt sé að afgreiða pönt- un, sagði sölustjórinn og lokaði munn- inum eins og hér væri um endanlegan úrskurð að ræða. Hann reis á fætur í skipandi kröfu, skjalataskan seig niður á gólfið og hendur hans fálm- uðu umkomuleysislega út í loftið yfir borðinu. Það er rangt að halda vörum fyrir viðskiptavinum á meðan við eigum þær til, sagði hann og stóð kyrr í sömu sporum. Ef þér getið ekki starfað með okkur eruð þér frjáls að því að fara frá okkur, sagði sölustjórinn og yppti öxlum án þess að rísa á fætur. Ég vil aðeins halda ykkur á réttri braut, og það á að láta í töskuna sýnishorn af öllum þeim vörum sem við höfum enn þá, sagði hann og settist aftur á stólinn. Það skal gert, með því móti er minnt á vörurnar og verðhækkunin verður minna áberandi, sölumenn okk- ar mega gjarnan áfellast okkur við viðskiptavinina fyrir varkárni okkar, sagði sölustjórinn eins og til að gera gott úr öllu saman og lét axlirnar síga. Fyrirheitið um fulla sýnishorna- tösku hafði mildað hina skipandi kröfu hans í bili, skrifstofan átti einnig við sína erfiðleika að etja og sýndi honum lipurð, hann beygði sig seinlega, tók upp skjalatöskuna og hélt á braut með hana. Vikapilturinn stóð og beið í skoti sínu með úfið hár í hnakka og lokk yfir vinstra auga og 36 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.