Félagsbréf - 01.12.1963, Page 44

Félagsbréf - 01.12.1963, Page 44
einhvers sem ekki lægi neitt á að' finna. Birta götunnar hélt áfram ofar húsaþökunum í sindrandi skærum há- degisljóma, eins og þar úti fyrir biði eitthvað sem gæti hafið þennan rangl- andi mannfjölda til sóknar að háleitu og helgu markmiði sem mikið lægi á að finna. Hann stóð framan við portgöng með skjalatösku í hendinni, hann hafði skynjað sinn eigin lífsótta og sinn eigin ósigrandi lífsvilja, sinn eigin veikleik og sitt eigið óbætanlega lífsgildi og hann liafði starf sitt til að styðjast við. Það var við enda þess- arar götu sem Jósef átti heima, hann mundi ekki númerið, hann mundi þekkja húsið, hann hafði ekki séð Jósef í tíu ár, það var Jósef sem hafði sagt þetta sem hann átti alltaf að muna, nú ætlaði hann að skjótast upp til hans andartak og fá að heyra það aftur, hann gæti tekið úthverfalestina þar skammt frá og komið næstum jafnsnemma heim. Hann gekk af stað með skjalatöskuna í hendinni og fór fram hjá mörgum ranglandi hópum, hann gekk einsamall. Þarna fer mað- urinn sem getur komið lagi á aðbúnað starfsfólksins í heilli verksmiðju áður en hann veit nokkurn skapaðan hlut um starfsemina, gall við með hvassri konurödd J)egar hann gekk fram hjá hávaxinni hvítleitri stúlku á óljósum aldri. Reikul umferðin á götunni staðnaði ógnandi kringum hann, hann hægði gönguna og vildi ekki flýja undan hinni reiðilegu rödd. Hann vill ráða starfsháttum í stóru verzlunar- fyrirtæki, hann vill taka að sér stjórn- ina á byggingarlóð sem kemur honum ekkert við, æptu tvær drengjaraddir í senn, og piltur með kollhúfu ásamt öðrum með hárlokk yfir vinstra auga og í brúnum vinnujakka sneru sér að honum. Rápstraumurinn hrannaðist um hann lengra að og færðist í aukana, hann hélt áfram að ganga jafnhægt. Hann getur leyst verkfalls- deilu eins og að drekka vatn, þrumaði grannur maður, vel l)úinn, með æfðri hárbeittri ræðumannsrödd. Reikul mannaferðin safnaðist um hann úr öllum áttum, svona ósvífinni og brjálæðislega glæpsamlegri valda- fíkn varð að hnekkja, menn ruddust æstir fast að honum, í óákveðinni við- burðaleit sinni höfðu þeir komið auga á sérstæðan vegfaranda, á undan ranglaði meinlaus hópur sem einungis vildi vera í fararbroddi þar sem eitt- hvað var að gerast. Hann getur rekið stórar verksmiðjur án þess að þekkja vitund til þeirra, hann vill stjórna stórum ókunnum verzlunarfyrirtækjum, Iiann getur tvöfaldað vinnuhraðann þar sem verið er að byggja, hann getur bund- ið enda á verkföll eins og ekkert sé, var orgað og skrækt, æpt og öskrað um- hverfis hann, í gluggunum hæð af hæð báðum megin götunnar var and- litum þrýst fast að rúðum, fólk gægð- ist fram í útidyr. Hann liélt áfram að ganga hægt sem fyrr, umluktur þoku þeirrar æsingar og spenntu forvitni sem frá mannþrönginni stafaði, og það var á þessari stund að honum skildist, að enginn á annan rétt en þann sem umhverfið viðurkennir, það var þetta sem Jósef hafði sagt að hann skyldi muna. Lítill þrekinn maður tók sér stöðu fyrir framan hann, og hann 40 FÉLAGSBRÉF

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.