Félagsbréf - 01.12.1963, Side 51
ur fundið úða geómetríunnar á vang-
anum þegar hún var að mála þessa
mynd. Ég þykist líka vita, að lcðréttu
og láréttu strikin, kyrrláta andrúms-
loftið, sem fylgir þeim og niðurbældu
litaflekkirnir, hafi gengið' nær taug-
um hennar en önnur vinna, kostað hana
stórum meira erfiði. Þó fórnaði hún
ekki öllu. Hún gat til að mynda ekki
stillt sig um að slíta suma ferhyrning-
ana úr tengslum við kerfið, stilla þeim
á svig og rjúfa þannig kulda skák-
horðsins.
En þetta ástand gat ekki haldizl til
lengdar. Nína hlaut að gefa tilfinn-
ingum sínum lausari taum.... og
jiegar andi rómantíkurinnar fór sigur-
íör um heiminn í nítugasta og níunda
sinn, gekk hún fljótlega í lið með hon-
um. Ég þarf ekki að lýsa áhrifum
rómantíkurinnar á myndir Nínu. Aðrir
sjá eins vel og ég, að eldarnir loga
glaðar en fyrr, litabúntin þeysa upp
og niður léreftin í löngum runum og
staðnæmast ekki fyrr en við endimnrk
ímyndunaraflsins. Þeir vita, að Nína
hefur aldrei verið snarari í viðhrögð-
um, aldrei gengið jafn djarflega til
verks, aldrei málað f j ölbrey tilegri,
draumkenndari og að ýmsu leyti þýð-
ari myndir. Um leið og ég sleppi orð-
inu fer ég að efast um réttmæti síð-
ustu staðhæfingalrinnar. Mig minnir,
að Kristján Karlsson hafi skrifað ein-
hverntíma í ritdómi, að ung skáld
væru yfirleitt huglaus eða huglítil.
Þess vegna mætti í verkum þeirra
finna lil deyfðar, sem viki fyrir sterk-
ari átökum síðar á ævinni. Skilgrein-
ingin gæti átt við marga unga málara.
Þeir fara sér óumræðilega gætilega,
styðjast við heimagerðar formúlur í
umkomuleysi sínu en eru þó ofurseld-
ir ómeðvitaðrí tjáningarvímu, sem
stundum fæðir af sér indæl listaverk
svo indæl og einstæð, að sj)or af þeirri
gerðinni grópast aldrei framar í
svörðinn. Við skulum ekki venja okkur
á að gleyma jafn merkilegri hlið
málsins. Hún spennir upp duldar
víddir. Hún sýnir Ijóslega, að ungar
manneskjur eiga bjartari og fjölbreyti-
legri strengi á hörpu sinni en margur
kynni að ætla. Málverk Nínu af Ragn-
ari og Kjarval eru fyrirtaks dæmi um
hana.
l'ÉLAGSBRÉF 47