Félagsbréf - 01.12.1963, Page 65

Félagsbréf - 01.12.1963, Page 65
ríða öllu á slig til eilífðar. Losum um hnútana og fordæmum ekki tilraunir. Þá hlýtur íslenzk nútímaskáldsaga að rísa. Músarholusjónarmiðið má ekki ríkja lengur í þessum efnum. Mér er nær að halda, að við, sem höfum lifað tvenna tímana, skiljum þetta betur og séum fordómalausari en þeir ungu menn, sem mest skrifa um bækur hér á landi, og enn hafa ekki lifað nema eitt tímaskeið. Kredda og einstefnuakstur gefur þeim vissan styrk, en heldur þú, að sá styrkur sé jákvæður? Mér hefur oft virzt, þegar ég les ritsmíðar þessara manna um bækur, að þá skorti skilning á upp- runa og lífsviðhorfi þeirra höfunda, sem þeir skrifa um, og þar af leiðandi heildarskyn og glöggvun á jarðvegi og haksviði bókanna. Þeir hafa ekki fyllilega jörð til að standa á. Því verða ritsmíðar þeirra oft innantómur belgingur í stað gagnrýni. Að minnsta kosti er langur vegur frá, að gagn- rýni þeirra sé bókmenntir, en það á gagnrýni að vera öðrum þræði, ef rétt er á haldið. Jæja, Baldvin, nú er þetta tilskrif víst orðið of langt. Þú kastar því þá bara í ruslakörfuna, ef þér finnst það ekki birtingarhæft. Mig furðar enn á því, að Jökull Jakobsson skyldi „fýra af fallstykkjunum“ á svo andvana fædda skepnu sem hann telur Sumar- auka vera. Oft þegar ég les svona rit- smíðar, verður mér á að spyrja eins og karlinn: „Skyldu þeir fá borgað fyrir þetta?“ Með kærri kveðju, þinn einlægur Stefán Júlíusson. FÉLAGSBRÉF 61

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.