Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1876, Blaðsíða 15
Stjórnartíðindi li 2.
9
1876
9. g r e i n.
Sjerhver stjórn heldur fje því óskerðu, er hún heíir heimt samkvæmt framanrituð-
um greinum, 3., 4., 5., 6. og 7. gr. Fyrir því á engin póststjórnin í sambandinu neinn
viðskiptareikning út af því við nokkra aðra póststjórn innan endimarka þess.
Á brjef og aðrar póstscndingar verður eigi lagður neinn annar burðareyrir eða
gjald frá þeim, sem brjeöð er frá eða það er til, en gjöld þau, sem til tekin eru í framan-
rituðum greinum, hvorki I því landi, sem brjefið er upp runnið, nje þar sem þaðáaðlenda.
10. g r e i n.
Full heimild er til að senda póstsendingar yfir hvertríki innan endimarkasambandsins.
Fyrir því skal með öllu frjálst að skiptast á póstsendingum, svo að hverri póst-
stjórn innan endimarka sambandsins er heimilt að senda annari póstsendingar, er flytj-
ast ciga yfir um lönd þau, er á milli liggja, hvort heldur er í læstum póstsekkjum, eða í
ólæstum umbúðum, eptir því sem bezt þykir henta og póststjórnunum er haganlegast.
Læsta póstsekki og ólæstar póstsendingar skal jafnan senda liina greiðustu lcið,
er póststjórnirnar eiga kost á.
Sjeu fleiri leiðir jafngreiðar, getur póststjórn sú, er afgreiðir sendinguna, kosið
um, hverja leiðina helzt skuli koma henni.
í læstum póstsekkjum skal senda brjef og aðrar póstsendingar, ef þær eru svo
margar, að valdi mikilli verkatöf á pósthúsi því, er sendingarnar skal endurafgreiða, að
því er hlutaðeigandi póststjórn skýrir frá.
Pósthús það, er afgreiðir brjef eða sendingu, sem á að fara yfir um annað land,
skal greiða póststjórn þess lands í þóknun 2 franka fyrir hvert kílógramm1 brjefa og 25
sentímur fyrir hvert kílógramm póstsendinga þeirra, er nefndar eru ( 4. grein, að frátöld-
um umbúðum (póststjórnarinnar), hvort sem sent er í læstum póstsekkjum eða í ólæstuin
umbúðum.
Þóknun þessa má fœra upp í 4 franka fyrir brjef, og 50 senlímur fyrir sendingar
þær, sem nefndar eru í 4. grein, ef leiðin yfir land það, er sendingin á að komast yfir
um, er meira en 750 kílómelrar2, og það liggur undir eina og sömu póslstjórn.
Þó er svo um samið, að hvervetna þar, sem nú er ekkert tekið fyrir flutning
póstsendinga yfir um eitthvert land, eða þóknunin fyrir hann er minni, skal standa við
sama um það eptirleiðis.
Nú er póstsendingum komið sjóveg yflr um landhelgi einhvers ríkis meira en 300
sæmflur, innan endimarka sambandsins, og skal þá póststjórn sú, er komið hefir á þeirri
sjóvegspóstferð, eiga heimtingu á endurgjaldi fyrir kostnaðinn af þeim flutningi.
^eir, sem ( sambandinu eru, skuldbinda sig til að láta þennan kostnað verða svo
lítinn, sem unnt er. þóknunin, er póststjórn sú, er annast sjóvegsflutninginn, má krefjast
hjá póststjórn þeirri, er sendingunni kemur af stað, má ekki fara fram úr 6 frönkum og
50 sentímum fyrir hvert kílógramm brjefa, og 50 sentímum fyrir hvert kílógramm send-
inga þeirra, er til greindar eru í 4. grein, að frádregnum umbúðum (póststjórnarinnar).
Aldrei má kostnaður þessi fara fram úr því, sem nú er greitt í þóknun (( sama
skyni). Fyrir því skal ekki greiða neina þóknun fyrir flutninga sjóvegspóstleiðir þær, er
nú er ekki goldið neitt fyrir.
Til þess að til taka þyngd póstsendinga þeirra, er fara eiga yfir um eitthvert
1) Kílógramm (p. e. 1000 grömm) er 2 pund eða 4 merkur.
2) Iíílómeter (þ. e. 1000 metrar) er 318G fot eða riimlega '/e úr mílu, '/<« úr pingmannaleiD, hver
meter hjer um bil 31 /s fet.
Ilinn G. marz 1876,
H
14. febr.