Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1876, Blaðsíða 17
11
1876
samningum og gjöra samninga til þess aö bœta sem mest póstviðskipti sín á milli, svo
og til að halda við smærri fjelögum í því skyni, eða stofna slík fjelög.
15. g r e i n.
Stoí'na skal eina aðalskrifstofu, er nefnist 1* jóðviðskiptaskrifstofa hins
almenna póstmálasambands (Bureau internalional de l’Union générale des
postes) og liggja skal undir yflrumsjón þeirrar póstmálastjórnar, er allsherjarfundurinn
setur til þess; kostnaðinn til hennar greiða allar póststjórnir ríkja þeirra, er að samningn-
um standa.
Ætlunarverk skrifstofu þcssarar skal vera að safna öllum skýrslum, er snerta póst-
viðskipti þjóða á milli, birta þær og úthýta þeim; að kveða upp álit um þrætumál, ef
lilutaðeigandi málspartar óska þess; að undirbúa meðfcrð bœnarskjala um breytingar á
reglugjörðinni um, hvernig framkvæma skuli fyrirmæli samnings þessa; að kunngjöra
breytingar þær, er á hefir verið fallizt; að greiða fyrir póstreikningaviðskiptum þjóða á
milli, einkum þeim, sem getið er ( 10. grein hjer að framan; og, yfir höfuð að tala, að
taka að sjer þær rannsóknir og þau störf, er henni kynni að verða á hendur falin fyrir
póstmálasambandið.
16. g r e i n.
Nú bcr svo við, að tvo eða fleiri meðal þeirra, sem í sambandinu eru, greinir á
um þýðingu samnings þessa, og skal þá skorið úr þrætunni með gérð; í gerð þá skal
hver af póststjórnum þeim, er hlut eiga að máli, kjósa einhverja aðra stjórn í samband-
inu, sem ekki er við málið riðin.
Gerðinni skal upp Iokið eptir atkvæðafjölda.
Nú eru atkvæði jöfn, og skulu þá gerðarrnenn kjósa aðra stjórn, cr einnig sje
óviðriðin málið, til að skera úr ágreiningnum.
17. g r c i n.
Löndum þeim «fyrir handan haf», sem ekki eru enn komin i samhandið, skal
gefinn koslur á að ganga í það, mcð þessuin skilmálum.
1. I’au skulu bera sig fram við þá póststjórn, er ræður yfir þjóðviðskiþlaskrifstofu
samhandsins.
2. Þau skulu ganga undir það, sem fyrir er mælt í samhandssamþykktinni, þó að
áskildu nánara samkomulagi að því er snertir kostuað af sjóvegsflulningum.
3. Ekki geta þau komizt í sambandið, nema að undangengnu samkomulagi milli
póstsljórna þeirra, sem hafa gjört við þau póstsamþykktir, eða eiga bein viðskipti við þau.
4. Til þess að koma á þessu samkomulagi, skal forustu-póstsljórnin, ef til þess
kemur, kveðja til fundar með hlutaðeigandi póststjórnum og póststjórn þeirri, er komast
vill í sambandið.
5. þegar samkomulagi er á komið, lætur forustu-póststjórnin alla, sem í allsherjar-
póstmálasambandinu eru, vita það.
6. Komi engin mótmæli l'ram á se\ vikna fresti frá dagsetningu þessarur lilkynn-
ingar, skal svo virt, sem inngangan í samhandið sje fullkomnuð, og skal forustu-póst-
stjórnin senda póstsljórn þeirri, er í íjelagið gengur, tilkynningu um það. Að póststjórn-
*n sje algengin í sambandið, skal staðfest með stjórnarskjali milli rikisstjórnar forustu-
póststjórnarinnar og ríkisstjórnarinnar yfir póststjórn þeirri, cr í sambandið gengur.
18. g r e i n.
þriðja hvert ár að minnsta kosti skulu fulltrúar frá löndum þcim, er að samning
þessum slauda, eiga fund með sjer lil þess að fullkomna skipulag það, er á hcfir kom-
8
14. febr.