Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1876, Blaðsíða 47
Stjórnartíðíndi B 7. 41
einnig er hjer innan í, en með fram tjáð mjer, að með næsta póstskipi sjn von á enn
fleiri skjölnm, sem endurskoðunina snerta, en að þan skjöl, sem deildin ekki mú án vera
til að ljúka við endurskoðun á fyrri ára reikningum, verði send á eptir, þegar því verki
sjc lokið.
Um leið og jeg sendi herra landfógetanum reikninga þá ásamt fylgiskjölum, sem tald-
ir eru á nefndum skrám fyrir 1874, svo og eldii skjöl, skal jeg þjónustusamlega biðja
yður að taka sem fyrst til endurskoðunar á þessum reikningnm, og halda henni áfram
með þeirri atorku, sem kringumstœðurnar leyfa, með því jeg verð að telja einkar-œskilcgt
að venju þeirri, sem hingað til heflr viðgengizt, að endurskoðunin heíir jafnan verið ári
eða meiru á eptir reikningunum, verði sem bráðnst breylt á þá leið, að reikningarnir verði
teknir til endurskoðunar, jafnótt og þeir koma frá hlutaðeigandi reikningssemjöndum.
Skylduð þjer við endurskoðun reikninganna fyrir 1874 þurfa skýringa úr þeim eldri
reikningum, er fyrst um sinn verða hjá deildinni, og þeim athngasemduin og úrskurðum,
er við þá hafa verið gjörðir, verður herra landfógetinn að snúa sjer hingað áleiðis til deild-
arinnar.
Jafnframt og endurskoðun meðfylgjandi reikninga er lokið, verður að senda athuga-
semdirnar landsliöfðinpja, sem annast um, að þeim verði svarað af hlutaðeigandi reiknings-
semjöndum, eins og um annað nauðsynlegt, er hjer að lýtur.
— Hrjef landsliöföingja ui amtmannsim yfir norður- og austurumdœminu um llj álp
Dana og Englendinga við öskufólkið í Múlasýslum. — Háðgjafinn
fyrir ísland hefir 23. febrúar þ. á. rilað mjer á þessa leiö:
l’t af skýrslu þeirri frá 30. nóvbr. f. á., sem þjer, herra landshöfðingi, hafið sent
hingað um ástandið í sveitum þeim, er orðið hnfa fyrir skaða af eidgosum síðastliðið ár,
skal yður þjónustusamlega tjáð til þóknanlegrar leiðbeiningar, að skýrsla þessi hefir verið
allraþegnlegast borin undir hans hátign konunginn, og að eptirrit af ágripi af henni
hefir verið sent nefnd þeirri, er hjer hefir gengiztfyrir að safna gjöfum handa nauðstödd-
urn íslendingum, og hefir þar að auki samkvæmt því, sem hefir verið farið fram á f brjefi
sýslunefndarinnar f Suður-Múlasýslu, sem fylgdi brjefi yðar, verið skorað á utanríkisstjórn-
ina að flytja lord mayor Lundúna þakkir þær, er sýslunefndin hefir látið f Ijósi fyrir hin-
ar miklu gjafir, sem sendar hafa verið hinum nauðstöddu sveitum f Múlasýslum frá nefnd
þeirri, er myndazt hafði f Lundúnum undir forsæti lord mayors (borgarstjórans).
þetta er hjer með tjáð yður, herra amtmaður, til þóknanlegrar leiðbeiningar og birt-
birtingar fyrir hlutaðeigöndum.
— Brjef landsllöfðingja til amtmannsins yfir suður- og vesturumdœminu um land-
skuldaruppgjöf.— Eptirað jeg hafði sent ráðgjafanum fyrir ísland bónarbrjef það, er
jeg meðtók með brjefi herra amtmannsins frá I. septbr. f. á. um að veitt verði hrepps-
nefndinni á Vestmannaeyjum uppgjöf á 60 fiska landskuld af tómthúsinu Hólshúsi,
sem notað hefir verið fyrir fátœkrahús, en nú er í ráði að byggja npp, ef hin umbeðna
wppgjöf verður veitt, hefir ráðgjafinn f brjefi frá 29. febrúar þ. á. tjáð mjer, að hann sjái
sjer ekki fœrt að veita það, sem beðið hefir verið um, cn að tillaga um það muni verða
tekin inn í frumvarpið til fjárlaga fyrir 1878—79.
tetta er hjer með þjónustusamlega tjáð yður, herra amtmaður, til þóknanlegrar leið-
beiningar og birtingar.
Hinn 6. maí 187G.
1870
31
4. apríl.
32
5. aprtl.
33
5. apríl.