Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1881, Blaðsíða 49
37
1881
— Brjel’ landshöfðingja til amtmannmis t/fir xuður- or/ vest.urnmdœminu um gj
styrk til að kanpa jarðyrkjuverkfæri. — Samkvæmt tillögum yðar, herra aratraaður, 2. febr.
fyrir hönd amtsráðsins í brjefi frá 27. f. m. samþykkist hjer með, að jarðyrkjumaður
Guðjön Guðmundsson fái af fje því, sem ætiað er til eflingar búnaði árið 1881 í vestur-
umdœminu 200 kr. styrk til að kaupa jarðyrkjuverkfœri.
— Brjeí’ landsliöfðingja fil amtmannxins yfir snður- or/ vrs/urumdœminu uin 32
greptrnn sjállsbana. — í brjefi frá 5. október f. á. hafið þjer, herra amtmaður, skýrt 2. febr.
mjer frá, að sýslumaðurinn í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu hafi að áskildu samþykki amts-
ins leyft að jarða í kirkjugarði og með venjulegum helgisiðum lík af manni nokkrum, er
hafði fyrirfarið sjer með því að drekkja sjer í ánni Hvítá á síðastliðnum vetri, en að
sýslumaður hafi þ<5 verið í nokkrum vafa um, hvort slíkur úrskurður af hálfu yfirvalds-
ins væri nauðsynlegur, og því óskað leiðbeiningar í þessu tilliti.
Fyrir því vil jeg tjá yður, herra amtmaður, til þóknanlegrar leiðbeiniugar og
birtingar fyrir hlutaðeiganda sýslumanni, að jeg er yður samdóma um, að hinar eldri
ákvarðanir um greptrun þeirra manna, er bana sjálfum sjer, sjeu fallnar úr gildi með
310. gr. hegningarlaganna, er nemur úr lögum 2—10—4 danskra laga Kristjáns kon-
ungs V., að því er snertir þá, sem fyrirfara sjálfum sjer, og 6—6—21 sömu laga, og
þurfa prestar því eptirleiðis ekki að leita yíirvaldsleyfis til að syngja yfir og kasta rnold
á lík sjálfsbana. Aptur á mót er það vitaskuld, að prestar mega ekki án leyfis yfir-
valds jarða neinn mann, sem grunur getur verið um, að liafi beðið bana af völdum
annara, og að þeir því, þegar spurning verður um að jarða mann, sem misst, hefir líflð
á sviplegan eða voveiflegan hátt,, verða að sjá um, að slík rannsókn, og getur um í 33.
greih reglugjörðar fyrir hreppstjóra frá 29. apríl 1880, fari fram, fyr en jarðað er, og
ber sýslumönnum að hafa eptirlit með, að þessu verði gegnt.
— Brjef landshöfðingja ti/ sti/ttsyfirvri/douun um styrk til barnaskóla. — Að jeg 33
hafi af upphæð þeirri, sem ákveðin er í 12. gr. C. 7. fjárlaganna til styrktar handa 4. febr.
barna- og alþýðuskólum fyrir árið 1880 veitt neðannefndan styrk þeim skóluin, er
hjer greinir:
1. Báðum barnaskólunum í Stokkseyrarhreppi................................... 300 kr
2. Barnaskólanum í Rosmhvalaneshreppi....................................... 300 —
3. Barnaskólanum í Yatnsleysustrandarhreppi . :............................. 300 —
4. Barnaskólanum í Akraneshreppi............................................ 300 —
5. Barnaskólanum í Seltjarnarneshreppi...................................... 300 —
6. Barna- og alþýðuskólanum í Flensborg við Hafnarfjörð:
hinum fyrgreinda............................................. 300 kr.
og alþýðuskólanum............................................ 200 — 500
7. Barnaskólanum á Akureyri................................................. 300 —
°£ að jeg hafi sent hlutaðeigöndum ávísanir til greiðslu á st.yrk hvers þeirra fyrir sig
jarðabókarsjóði, það er hjer með tjáð stiptsyfirvöldunum til þóknanlegrar leiðbeiningar
°g birtingar, eins og það eru einnig tilmæli mín, að lagt sje fyrir hlutaðeigendnr, að
senda hingað sannanir fyrir því, að styrkur sá, sem skólunum er heitinn úr hlutaðeig-