Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Side 29

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Side 29
Það heyrist óánægjukurr úr salnum og hneykslaðar raddir segja: „Aðeins eitt nafn á mann, það er ekkert gagn að því.“ Persónurnar við borðið standa upp og beygja sig yfir listann og lesa upphátt nokkur nöfn í röð: „Hugrún, Hulda, Inga, Ingi, Ingibjörg...." „Ég ætla að heita Ingibjörg. Það er áreiðanlega skemmtilegt nafn,“ kallar ein hinna rauðhærðu glaðlega til mín. „En það verður ekki hjá því komist að sumt af því sem ég segi verði leiðinlegt." „Ég skal vera Jóhanna," segir önnur. „Sum nöfn eru löng, önnur stutt. Eins og stuttar og langar ferðir út í heim,“ muldrar Jóhanna og lítur á manninn á móti sér, „þú ert áreiðanlega Torfi. Þú þarft ekki annað en að hlusta á sjálfan þig til þess að heyra að þú ert Torfi.“ „Vert þú Guðmundur og ég verð þessi Haukur sem allir eru að tala um,“ segir rauðhærður maður við annan rauðhærðan. „Þá það,“ segir Guðmundur og horfir á hendur sínar. „Ég skal vera Auður,“ er hvíslað lágróma. „Sæl, ég er Hlaðgerður, ert þú ekki Brá,“ spyr Hlaðgerður konu sem hefur farið yfir nöfnin á listanum aftur og aftur án þess að geta ákveðið hvaða nafni hún á að heita. „Sæl Hlaðgerður, ég held nú, þér að segja, að það gæti verið hagkvæmara að heita Þorkell heldur en Brá.“ „En ég ætlaði einmitt að heita Þorkell,“ segir þá hraðmæltur maður á ská á móti henni. „Konur heiti kvenmannsnöfnum og karlar karlmannsnöfnum, annað gengur ekki,“ hrópa ég hvasst til að afstýra þeim ruglingi sem annars hlytist af. Loksins þegar allir eru búnir að velja sér nöfn stíg ég upp á auða stólinn og bið persónumar að rétta upp hönd um leið og ég nefni nafn þeirra. „Hlaðgerður, Brá, Ingibjörg," kalla ég upp og held áfram, Jó- hanna, Auður, Haukur, Torfi, Guðmundur, Þorkell.“ Ég hoppa 27

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.