Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Blaðsíða 38
2) plastpokar, margir, með góðum höldum, nýtilegir,
3) lesgleraugu, ein, brún.
Oddný Eir Ævarsdóttir
Emilía
... hniprar sig í sólheitu skoti; skyggnir hönd yfir augu; hefur
skoðun gegnum tíbrá; kyrrðin er hálfrar aldar gömul; feit húsfluga
teiknar hana með dökku suði...
Ámi Ibsen
Erla
Fyrst ég sá þig koma með sönginn inní morguninn og loftið fylltist
af tónum sem ég tók undir.
Næst við flugum saman inní haustið, móts við byrinn og
gegnum ljósið.
Nú sést þú glitra í gæfuperlu sem aldrei gleymist - gjöf frá þér til
mín.
Inga Björk Ingadóttir
Erla
Þegar Erla mamma var í barnaskóla voru þrjár aðrar „Erlur góðar
Erlur“ í bekknum hennar, þar af ein Jónsdóttir eins og hún, svo
hún lét bæta við sig nafninu Þórdís þegar hún var fermd. Kristín
sagði mér í gær að eitt anagramið af Erla er Real! Be for real, won't
you baby!
Heimurinn var „far too real" fyrir Erlumar sem fæddust milli
stríða. Erlur em varnarlausir fuglar, ekkert nema söngurinn, flug-
ið, umhyggjan og gæðin. Þórdísar nafnið gæddi Erlu mömmu
guðlegri þmmugeðveiki Þórs, sem prýðir alla sem heita -þór, Þór-
36