Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Page 64

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.01.1998, Page 64
Leifur Nafnið Leifur hefur mér lengi fundist vera nafn sem felur í sér svo mörg önnur nöfn, til dæmis nöfnin Guðmundur og Marinó. Ég lreld ég gangi jafnvel svo langt að halda því fram að það feli í sér nokkur kvenmannsnöfn að auki, án þess að ég nefni nokkur dæmi. Leifur er margslungið nafn, það hefur áru eins og sagt er, og karakter og mystík, án þess að maður fái á tilfinninguna að hægt sé að græða á því peninga. Bragi Ólafsson Lilja Friðrik Þór kallaði mig Lilju þangað til ég fór að kalla hann Fríðbert Þór. Linda Vilhjálmsdóttir Lilja Lilja er sönnust og fallegust. Hún náði eins og Trausti bróðir í sjaldgæf gen úr pottinum, henni þurfti ekki að bregða til for- mæðra því hún var skírð upp úr símaskránni. Búið var að nota bæði ömmunöfnin á okkur eldri systurnar. Liljublómið bláa speglar betur en nokkur pollur himininn. Valdimarsdóttir gefur styrk, því það þýðir: sú sem ríkir yfir (sínum) heimi. Þess vegna fnæsir Lilja, eins og óhrædd blóm gera; yfir fólki með slæma samgróninga heimsku og fordóma. Mig lang- ar stundum að fnæsa, en hef alltaf óttast aflið í mér, óttast að senda það, óttast það sé svo sterkt, og sjaldnast er ástæða til að meiða nema mátulega. Ég óttast ef Þórunnin fnæsi þá komi lítil þruma með, og í þeim er eins og allir vita mjög hættulegt raf- magn. Þónmn Valdimarsdóttir Lísa Ég þekki ekki orðsiljarnar á Lís u sem er fínt, þá ímyndar maður 62

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.