Víkurfréttir - 18.12.1980, Síða 20

Víkurfréttir - 18.12.1980, Síða 20
Fimmtudagur 18. desember 1980 JÓLABLAÐ VIKUR-fréttir Umhverfis- og náttúruverndarráð Njarðvíkurbæjar: Tillaga um stofnun fólk- vangs við Háabjalla og Vogastapa 27. nóv.s.l.varboðaðtilfundar í Safnaöarheimilinu Innri-Njarð- vík, af formanni umhverfis- og náttúruverndarnefnd Njarðvíkur- bæjar. Fundarefni var tillaga um stofnun fólkvangs við Háabjalla og Vogastapa. Boöaðir voru á fundinn umhverfis- og náttúruverndar- nefnd Njarðvíkurbæjar, fulltrúar frá Náttúruverndarnefndum í Vogum og Grindavík og fulltrúar frá Náttúruverndarráði, Árni Reynisson og Gísli Gislason. BRAUTARNESTI FYRIR JÓLIN: Mikið úrval af konfekti. Innlent og erlent sælgæti. Öl og gosdrykkir. - ★ - ís - Niðursoðnir avextir - Kex. - ★ - Gjörið svo vel og lítið inn - Næg bílastæði BR AUT ARNESTI Hringbraut 93B - Keflavik - Sími 3393 Bíleigendur Vetrarskoðun Látið yfirfara og stilla gangverk bflsins áður en vetrarveður hamlar gangsetningu. Hafið hugfast að það borgar sig. Tökum vetrarskoðanir á flestum tegundum bif- reiða, þar sem eftirfarandi er framkvæmt: 1. Stilltir ventlar 11. Athugaðar og 2. Stilltur blöndungur stilltar hjólalegur 3. Skipt um kerti 12. Mælt millibil á 4. Skipt um platínur framhjólum 5. Stillt kveikja 13. Athugaðir 6. Athuguð viftureim bremsuborðar og stillt 14. Skoðaður undir- 8. Athugað frostþol vagn á kælikerfi 15. Borið silicon á 9. Athugaðar þurrkur þéttikanta og settur ísvari á 16. Athuguð öll Ijós og rúðusprautu stillt ef þarf 10. Athugaður stýris- búnaður Verð 4cl. Gkr. 35.800 Nýkr. 358,00 Verð 6cl. Gkr. 38.200 Nýkr. 382.00 Verð 8cl. Gkr. 40.600 Nýkr. 406.00 Innifalið í verði er kerti, platínur og ísvari á rúðu sprautu. Bíla- og vélaverkstæði Kristófers Þorgrímssonar Iðavðllum 4b, Keflavik, sími 1266 Árni skýrði frá þvi aö hugmynd þessi hefði hlotið góðar undir- tektir í Náttúruverndarráði. Hann greindi frá þvi að þeir félagar, hann og Gísli, hefðu ekið um svæðið og skoðað það lauslega og töldu þeir það heppilegt fólksvangssvæði. Ýmsar hugmyndir voru ræddar um notkun svæöisins og urðu niöurstöður þær, að næsta skref í málinu yrði, að kanna viðhorf landeigenda og fá sam- þykki þeirraef unnt er. Síðanyrði málið lagt fyrir sveitarstjórnir viðkomandi byggðarlaga til afgreiðslu. Fundarmenn voru sammála um að stefna bæri aö því að öll sveitarfélögin á Suðurnesjum yrðu aðilar að fólksvanginum. f fundarlok greindi Árni Reynisson frá hugmyndum um friðun ungra eldstööva á Reykja- nesskaga og hugmyndum um nýtingu jarðefna á sama svæði. Gerum átak I fegrunarmálum Keflavíkur og Njarðvíkur Síðan Víkurfréttir hófu göngu sína hefur þar verið rekinn mikill áróður fyrir bættu umhverfi bæði í Keflavík og Njarðvík, endaveitir ekki af. Sumir og reyndar all flestir þeirra aðila sem hlut eigaað máli hafa tekið ábendingum vel og lagfært sin mál, aðrir eins og til dæmis eigandi Vallargötu 14, trésmíðaverkstæöisins sem orðið er mosavaxið, hafa ekki gert neitt til úrbóta. Þá hefur í þessum greinum verið bent á ýmsa aðila sem eru mjög til sóma með umhverfi húsa sinna. en því miður eru enn alltof margir sem svo sannarlega þyrftu að taka til í kringum sig. Þó nú sé komið haust, hefur veörið verið það gott að undan- förnu að vel hefði verið hægt að laga umhverfið betur en gert er. Nokkur eru þau dæmi sem við ætlum að benda á nú og þurfa lagfæringu við. ( Keflavík er ein Ijótasta aðkoma frá sjó sem þekkist á landinu öllu og því ættu eigendur húsa við Hafnargötu og á Vatns- nesi að huga að því fyrir næsta sumar hvernig þarna megi bæta úr. Talandi um Vatnsnes þá er Ijótt um að litast i kringum sölt- unarhús Ólafs S. Lárussonar h.f. svo og leifar gömlu beitninga- skúranna hjá Hraðfrystihúsi Keflavíkur h.f. svo eitthvað sé nefnt. ( Njarðvík er lítið betra þegar horft er á járnadrasliö i kringum Skipasmíöastöð Njarðvíkur h.f., en vonandi lagast það þegar nýja járnapressan kemur í gagnið, hvenær sem það nú verður. Hérna er aðeins stiklað á stóru, en væri það ekki rétt hjá okkur íbúum þessa byggðarlaga að leggjast á eitt með að gera stór- átak i fegrun beggja byggðar- laganna. Því leiðinlegt er að liggja alltaf undir þeim óhróðri að Njarðvík og þá sérstaklega Keflavík séu báðir mjög druslu- legir bæir og með þeim sóðaleg- ustu sem þekkjast á landinu. Daniel Arason Nýr framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Nú um áramótin verður fram- kvæmdastjóraskipti hjá Lífeyris- sjóöi Verkalýðsfélaganna á Suðurnesjum. Ragnar Guðleifs- son, sem gegnt hefur fram- kvæmdastjóra starfinu frá stofnun sjóðsins 1970 og til þessa dags lætur af störfum vegna aldurs. En við starfinu tekur Daniel Arason, núverandi fulltrúi í lífeyrissjóðsdeild Spari- sjóðsins í Keflavík. Blaðið óskar Daniel velfarnaðar í hinu nýja starfi.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.