Víkurfréttir - 18.12.1980, Page 28
Fimmtudagur 18. desember 1980
JÓLABLAÐ
VÍKUR-fréttir
Hrafn Sæmundsson:
Kerfisbreyting
í lifeyrismálum
Mikil umræða er nú í gangi um
aðbúnað aldraðra, lífeyrismál og
þær breytingar sem verða í þjóð-
félginu á næstu árum vegna
nýrrar tækni, örtölvutækninnar.
öll þessi málefni eru nátengd og
miklu nátengdari en margir
halda og þessi mál verða ekki
sundurskilin í umræðum eða í
framkvæmd.
Almenn lifeyrismál eru nú í
deiglunni. Skapast hefur mikið
misræmi í þessum efnum og
óréttlæti hefur aukist og var það
þó ekki lítiö áður.
Opinberir starfsmenn hafa nú
samið um þokkaleg lífeyrisrétt-
indi sér til handa. Ekki verður
lengur við annað unað en að
aðrir landsmenn fái álika lífeyris-
réttindi. Það er algjörlega óþol-
andi að stór hluti aldraðs fólks í
landinu skuli fá eftirlaun sem
engin leiö er að lifa af, tekju-
trygginguna, en vissir hópar
skuli hafa þokkalegan verð-
tryggðan lífeyri.
Með núverandi lífeyrissjóða-
kerfi veröur þó aldrei hægt að ná
þessum jöfnuði. Með því aö
halda dauðahaldi í uppsöfnunar-
fyrirkomulag lífeyrissjóðanna,
munu þeiraldrei geta greitt þann
lífeyri eða svipaðan og opinberir
starfsmenn hafa samið um. Þess
vegna verður að breyta skipu-
laginu og taka upp gegnum-
streymi þeirra fjármuna sem
greiddir eru til lífeyris. Og þetta
eitt dugar akki til þess að lífeyrir
allra verði viðunandi. Það þarf að
hækka greiöslur til lífeyrismála
til mikilla muna.
Þetta mun mörgum vaxa í aug-
um. Margir telja skattlagningu
nú næga af launum og að ekki
verði á hana bætandi.
Þetta mál er þó ekki svona ein-
falt. Hækkun greiðslna einstakl-
inga til lífeyrissjóðs i gegnum-
Milli 20-30 fundarsalir til af
nota í Keflavlk og Njarðvík
Að undanförnu hafa verið
teknir f notkun fjöldi af smærri
fundarsölum bæði í Keflavík og
Njarðvík. Eru þetta salir er rúma
60-80 manns í sæti.
Telst okkur til aö nú séu um 10
fundarsalir í þessum stærðar-
flokki sem hægt er að fá leigöa
undir ýmsa fundi eða aðra fé-
lagsstarfsemi. Aö auki eru í
byggingu eða endurbyggingu
þrír salir, þannig að ekki er hægt
að kvarta lenguryfirþvi að hvergi
sé í hús að leita undir félags-
starfsemi í þessum byggðar-
lögum.
Þeir salir sem eru nýjastir eru
hjá Iðnsveinafélagi Suðurnesja,
Skipasmíðastöð Njarðvíkur og
Verslunarmannaféiagi Suður-
nesja. Þá eru í byggingu félags-
heimili Karlakórsins, i endur-
byggingu og stækkun er Kirkju-
lundur og loks er Sálarrannsókn-
arfélag Suðurnesja að hefjast
handa um stækkun á húsi sínu
og þar myndast einnig fundarað-
staða aö þessari stærðargráðu.
Væri því óskandi að þetta hefði
í för með séröflugra félagsstarf í
Keflavík og Njarðvík, enda veitir
ekki af.
streymi, er ekki ný skattlagning,
heldur er þarna verið að dreifa
fjármagni á allan lífaldurinn.
Þetta ereina leiðin til þessaðfólk
geti lifað áhyggjulitið æfikvöld,
hvað fjárhagsafkomu varðar.
Aö hraða þeirri kerfisbreyt-
ingu sem hér er minnst á, er nú
enn brýnna vegna þess að menn
fara nú og í náinni framtíð, miklu
fyrr á eftirlaun. Þessi þróun er
þegar hafin. Opinberir starfs-
menn sömdu um 60 ára eftir-
launaaldur með 95 ára reglunni.
Smám saman munu því allir rik-
isstarfsmenn geta hætt störfum
60 ára. Sjómenn sömdu einnig
um 60 ára lífeyrisaldur.
( náinni framtið mun verða
nauðsynlegt aö stytta starfsæfi
allra til mikilla muna. Það verður
meðal annars afleiðing hinnar
nýju tæknibyltingar sem nú riður
yfir.
Það er full ástæða til að vekja
athygli fólks á þessum stað-
reyndum. (önn dagsins og kapp-
hlaupinu um lífsgæðin vill það
brenna við aö skammsýni og
stundarhagsmunir séu látnir
sitja i fyrirrúmi og sé raunar það
eina sem hugsað er um.
Þær breytingar sem nú eru að
verða í atvinnulífinu og öðrum
greinum þjóðlífsins vegna
hinnar nýju örtölvutækni, munu
óhjákvæmilega stytta starfsæfi
manna á allra næstu árum. Þetta
er þróun sem þegar er á fullri ferð
erlendis og er þegar hafin hér hjá
okkur, þó í litlum mæli sé ennþá.
Hin nýja örtölvutækni mun á
allra næstu árum leysa manns-
höndina af hólmi i æ ríkara mæli,
og þá veröur það val okkar að
búa annað hvort við hörmungar
atvinnuleysis eða dreifa vinn-
unni, með styttri vinnudegi,
lengri fríum og styttri starfsæfi.
Þegar þannig er komiö, verður
þá einnig aö dreifa fjármagni a
lífaldur fólksins.
Þeir sem vinna, atvinnurekst-
urmn og rikið, verða að hækka
lífeyrisg reiösl ur til þess að
standa undir löngum eftirlauna-
aldri. Þetta er ekki ný skattlagn-
ing, eða fórn fra okkar nendi,
heldur emfaldlega eina aðferðm
til að tryggja framfærslu okkar
sjálfra alla æfina
Eiginmenn, athugið
Sænsku frúarstólarnir eru komnir.
Tilvaiin jólagjöf handa eiginkonunni.
Nýkomðn dönsk borðstofuborð
og stólar, á mjög hagstæðu verði.
DUUS HÚSGÖGN
ALLTAF í LEIÐINNI
Hafnargötu 36, Keflavík, sími 2009
P.S. Athugið
okkar hagstæðu
greiðslukjör.