Fréttablaðið - 13.08.2016, Qupperneq 4
VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS
Alicante
Frábært verð á flugsætum
Á mann m.v. flug aðra leið með tösku
á völdum dagsetningum.
Sjá nánar á vita.is/tilbod
Verð frá 9.900 kr.
Tölur vikunnar 07.08.16–13.08.2016
30%
fleiri ferðamenn
sóttu landið heim
í júlímánuði en á sama tíma í fyrra
samkvæmt talningu í Leifsstöð.
2 voru settir í gæsluvarðhald í
kjölfar hópslagmála í
Breiðholti þar sem
beitt var skotvopni.
14.000
nemendur og ríflega það setjast á
skólabekk í grunnskólum höfuð-
borgarinnar í haust. Ný börn í sex ára
bekk eru um 1.500 talsins.
79 þjóðsöngva hefur ellefu ára gömul
kanadísk stúlka sungið í
heimsóknum sínum til
jafnmargra landa, síðast
kom hún hingað til lands.
49 ár eru síðan Bandaríkjaher yfirgaf Camp Century
herstöðina á norðvestanverðu Græn-
landi. Þar óttast menn nú að komi
upp geislavirkur úrgangur vegna
bráðnunar Grænlandsjökuls.
358
var metfjöldi fæðinga á Sjúkra-
húsinu á Akranesi árið 2010.
Vegna lengri sængurlegu en býðst
í Reykjavík hefur þeim konum
fjölgað sem kjósa að fæða þar.
12,3 milljónir
króna setur Rauði kross Íslands
í björgunar- og stuðningsað-
gerðir við flóttafólk sem barg-
að er á Miðjarðarhafi.
24 ár
er allt of langur aðlögunartími fyrir
hækkun almenns eftirlaunaaldurs úr
67 árum í 70 að mati meirihluta fjár-
laganefndar, 15 ár væru nær lagi.
80%
lundapysja í Vest-
mannaeyjum hafa
drepist á skömmum
tíma vegna fæðu-
skorts.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra
mun sækjast eftir
fyrsta sæti á
framboðslista
Framsóknar-
flokksins í
Reykjavíkur-
kjördæmi suður.
Kosið verður á
milli þeirra sem gefa
kost á sér í fyrstu sætin á tvöföldu
kjördæmisþingi Framsóknar-
flokksins í Reykjavík þann 27. ágúst
næstkomandi. Lilja ætlar hins vegar
ekki að bjóða sig fram í formanns-
embættið.
Hálfdán Óskarsson,
framkvæmdastjóri Örnu
segir stefna í að
velta Örnu tvö-
faldist. Hann sér
fram á fimm til
sex hundruð
milljóna króna
veltu á árinu og
hagnað í fyrsta
sinn frá stofnun
Örnu. Rekstur fyrirtækisins hafi
verið erfiður til að byrja með en
hafi nú breyst til batnaðar. Starf-
semi Örnu segir hann háða því að
neytendur standi með fyrirtækinu
þar sem samkeppni við Mjólkur-
samsöluna sé erfið.
Magnús Hákonarson,
formaður BDSM á Íslandi
segir þátttöku BDSM
á Íslandi í Gleði-
göngunni mjög
mikilvægan
áfanga fyrir
félagið. Þátt-
takan stuðli að
því að auka sýni-
leika félagsins sem
og að sýna fjölbreytnina í hinsegin
flórunni. Ókvæðisorð voru hrópuð
að hópi BDSM-fólks í göngunni.
Magnús segir það sýna mikilvægi
þátttöku þeirra.
Þrjú í fréttum
Prófkjör, mjólk
og BDSM
landbúnaður Ólafur M. Magnús-
son, framkvæmdastjóri KÚ mjólk-
urbús, gagnrýnir að með búvöru-
samningum sem nú liggi fyrir
Alþingi geti MS hindrað frekari vöxt
samkeppnisaðila sýnist fyrirtækinu
svo. Samkvæmt búvörusamning-
unum sé fyrirtækinu einungis skylt
að selja fimm prósent af framleiðslu
sinni til annarra vinnsluaðila
mjólkur, um sjö milljónir lítra. Nú
sé ekkert slíkt ákvæði til staðar.
Ólafur segir að það stefni í að
framleiðsla KÚ muni aukast hratt á
næstu mánuðum og nema um 2,5 til
3,5 milljónum lítra á ári innan árs.
„Þá verðum við sjálfsagt komin upp
í þetta þak og getum þá ekki vaxið
meira,“ segir Ólafur en hann bendir
á að framleiðsla Örnu í Bolungarvík
sé nú um 1,5-1,6 milljón lítrar á ári
og fari vaxandi. Hálfdán Óskarsson,
framkvæmdastjóri mjólkurbúsins
Örnu, sagði í viðtali við Markaðinn
á miðvikudaginn að það stefndi í
að velta fyrirtækisins tvöfaldaðist
á þessu ári. Hálfdán bætti við að
markaðshlutdeild Örnu væri eitt
prósent en þyrfti að vera um tíu
prósent til þess að fyrirtækið væri
samkeppnishæft.
„Þetta er eitt af þeim atriðum
sem nefndin er að skoða,“ segir Jón
Gunnarsson, formaður atvinnu-
veganefndar, um ákvæðið. Hann
telji vinnu nefndarinnar við breyt-
ingatillögur á búvörusamning-
unum miða vel en naumur tími sé
til stefnu. „Ég geri mér vonir um
að það verði miklu almennari sátt
um þær tillögur sem koma fram en
birtust við málsmeðferðina í vor,“
segir Jón. Haft var eftir Lilju Raf-
neyju Magnúsdóttur, þingmanni
Vinstri grænna og varaformanni
atvinnuveganefndar, að stefnt væri
að endurskoðunarákvæði í samn-
inginn eftir þrjú ár en upprunalega
átti samningurinn að gilda til tíu
ára.
Ólafur er einnig ósáttur við að
KÚ verði ekki lengur flokkuð sem
afurðastöð samkvæmt frumvarp-
inu. Það verði einungis aðilar sem
taki við mjólk úr höndum frum-
framleiðenda til vinnslu, sem þýði
að skilgreiningin nái aðeins yfir
MS og Kaupfélag Skagfirðinga.
Afurðastöðvar í mjólkuriðnaði eru
undanþegnar samkeppnislögum.
„Verði þetta að lögum verðum við
ekki lengur skilgreind afurðastöð
né aðrir aðilar sem eru í samkeppni
við Mjólkursamsöluna. Hún verður
þá eitt fyrirtækja á mjólkurmarkaði
undanþegin samkeppnislögum
með 98 prósenta markaðshlut-
deild,“ segir Ólafur en bæði Arna og
KÚ þurfa að kaupa alla hrámjólk af
Mjólkursamsölunni.
ingvar@frettabladid.is
Kú mjólkurbú telur MS geta
hindrað vöxt samkeppnisaðila
Framkvæmdastjóri KÚ mjólkurbús telur að Mjólkursamsalan geti hindrað vöxt samkeppnisaðila verði
búvörusamingar samþykktir óbreyttir. Þá verði Mjólkursamsalan og Kaupfélag Skagfirðinga undanþegin
samkeppnislögum en ekki minni mjólkurbú. Formaður atvinnuveganefndar segir málið til skoðunar.
STjórnmál „Ég hef verið að hugsa
þetta í allt sumar og skipti sú spurn-
ing mestu máli hvort ég vildi leggja
stjórnmálin fyrir mig sem ævistarf
eða ekki,“ segir Illugi Gunnarsson
menntamálaráðherra en hann hefur
ákveðið að gefa ekki kost á sér til
áframhaldandi þingsetu. Þetta til-
kynnti hann í gær en þá rann út
framboðsfrestur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
„Ég hef verið í stjórnmálunum
í 16 ár og komst að þeirri niður-
stöðu að ég vildi ekki að þetta yrði
að mínu ævistarfi. Þegar ég komst
að því þá fannst mér það blasa við
að það yrði ekki auðveldara að taka
þá ákvörðun að hætta eftir fjögur ár.
Ég ákvað því að gefa ekki kost á mér
núna þannig að ég hafi lengri tíma
og vonandi fleiri tækifæri en ella í
öðru starfi,“ segir hann.
Illugi veit ekki hvað tekur við
en segist vona að menntun sín og
reynsla í stjórnmálum muni nýtast
vel. „Þetta hefur verið skemmtilegur
tími. Ég byrjaði sem aðstoðarmaður
ráðherra beint eftir námið. Svo varð
ég þingmaður, þingflokksformaður
og svo ráðherra. Atburðarásin í
stjórnmálunum síðustu ár hefur
verið ævintýraleg og það hefur verið
áhugavert að vera inni í hringiðu
þeirrar atburðarásar.“
Hann segist ekki hættur að hafa
áhuga á stjórnmálum. „Ég mun að
sjálfsögðu áfram styðja Sjálfstæðis-
flokkinn og vil leggja honum allt
það lið sem ég get.“ – ngy
Stjórnmálin ekki ævistarf Illuga
Illugi Gunnarsson menntamálaráð-
herra segir stjórnmálin hafa verið ævin-
týraleg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ólafur M. Magnússon, framkvæmdastjóri Kú mjólkurbús.
Ég geri mér vonir
um að það verði
miklu almennari sátt um
þær tillögur sem koma fram
en birtust við málsmeðferð-
ina í vor.
Jón Gunnarsson, formaður atvinnuvega-
nefndar
Atburðarásin í
stjórnmálunum
síðustu ár hefur verið ævin-
týraleg og það hefur verið
áhugavert að vera inni í
hringiðu þeirrar atburða-
rásar.
Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra
1 3 . á g ú S T 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
5
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-9
0
7
8
1
A
4
0
-8
F
3
C
1
A
4
0
-8
E
0
0
1
A
4
0
-8
C
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K