Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 48
Körfuknattleiksmaðurinn Jón Axel Guðmundsson frá Grindavík var lykilmaður í U20 landsliði karla í körfubolta sem vann til silfurverð- launa í B-deild Evrópumótsins í lok júlí. Jón Axel, sem þykir einn efnilegasti íþróttamaður landsins, tekur ekki langt sumarfrí því hann heldur á næstu dögum til Banda- ríkjanna þar sem hann mun leika körfubolta og stunda nám við Da- vidson-háskólann í Norður-Karól- ínu. Þar fetar hann í fótspor ekki ómerkilegri leikmanns en Steph- ens Curry, leikmanns Golden State Warriors í NBA-deildinni, sem er af mörgum talinn besti körfubolta- maður heims. Það verða mikil viðbrigði fyrir Jón Axel að flytja úr foreldrahús- um og setjast á skólabekk í Banda- ríkjunum. Kröfurnar eru miklar en hann er hvergi banginn. „Ég set alltaf miklar kröfur á sjálfan mig og oft meiri en flestir halda að ég geti staðið undir. En ég veit að því meiri sem kröfurnar eru, því meira þarf ég að leggja á mig. Og þegar maður leggur mikið á sig þá ger- ast góðir hlutir. Þetta snýst þó ekki bara um stanslausar æfingar held- ur líka um svefn og hvað maður setur ofan í sig.“ Ógleymanleg minning Jón Axel var einungis fjögurra ára gamall þegar hann hóf að æfa körfubolta og hefur hann unnið fjölmarga titla með Grindavík. Að sama skapi hefur ferillinn nú þegar skilið eftir sig margar góðar minn- ingar, innan vallar sem utan, og mörgum góðum vinum hefur hann kynnst á leiðinni. „Ég verð þó að segja að besta körfuboltaminning- in mín er þegar við spiluðum við heimamenn í Grikklandi í undan- úrslitum Evrópumótsins í júlí. Þar voru 2.000 manns samankomn- ir í höll sem rúmar 1.500 manns. Lætin, innlifunin, gæsahúðin og þögnin sem myndaðist þegar við unnum upp forskot Grikkja var ógleymanleg. Það eina sem heyrð- ist þá í höllinni voru hrópin í 20 stuðningsmönnum Íslands.“ Það er mikil körfuboltahefð í Grikklandi en fyrir leikinn vissi enginn hverjir leikmenn íslenska liðsins voru. „Eftir sigurinn voru augu allra á okkur og það var stöð- ugt verið að biðja um myndir af okkur. Þetta var geggjuð upplif- un og eitthvað sem maður gleym- ir aldrei.“ Hittir sjálfan kÓnginn Davidson-háskólinn hefur nokkr- um sinnum komist í úrslitakeppn- ina í háskólaboltanum á síðustu árum og því er búist við miklu af leikmönnum liðsins. „Þjálfarar og liðsmenn gera miklar kröfur og krefjast í raun 110 prósenta árang- Geitfjársetrið á Háafelli býður til Geitagleði á morgun, sunnudag, milli 13 og 18. Á Háafelli í Hvítársíðu í Borgar- byggð hafa verið geitur frá árinu 1989 og er þar nú stærsta geitabú landsins. Bændur á Háafelli hafa unnið markvisst að því að afla sér fróðleiks um geitur, unnið að rækt- un þeirra og nýtingu afurða. Gest- ir eru velkomnir á Geitfjársetur til að fræðast um geitfjárrækt og leika við geiturnar. Á Háafelli er líka lítil verslun með geitaafurð- um og öðrum geitatengdum vörum en vert er að benda á að geitaaf- urðirnar eru flestar árstíðabundn- ar og því ekki alltaf til. Yfirleitt er tekið smávægilegt gjald fyrir heimsóknina sem rennur til varð- veislu íslenska geitastofnsins sem hefur átt verulega undir högg að sækja undanfarna áratugi. Á Geitagleðinni verða kátir kið- lingar á hoppi til að heilsa gestum og gangandi og kostar ekkert að klappa þeim og leika við þá. Þá verður boðið upp á kaffi og seld- ar pylsur auk þess sem geitaafurð- ir verða kynntar en meðal þeirra má nefna geitaost, geitaís, geita- pylsur og kiðakæfu sem bókstaf- lega bráðna í munni og þá má held- ur ekki gleyma græðandi kremi og sápum sem henta jafnvel við- kvæmustu húð. Þá er einnig í boði að taka geit í fóstur og þykir það einkar skemmtileg gjöf, til dæmis handa þeim sem á „allt“. Svavar Knútur mætir með gít- arinn og tekur nokkur undurfal- leg lög gestum til yndisauka og Skrítla, sem er hluti af hinu vin- sæla vinkonutvíeyki Skoppa og Skrítla, leikur við börn og kiðlinga á milli 13 og 15. Glaðbeittar Geitur oG kátir kiðlinGar Geitur eru forvitnar, kátar og einstaklega skemmtilegar. Kiðlingarnir búa sig undir að taka á móti gestum. Körfuboltinn skipar stóran sess í fjölskyldu Jóns Axels. Foreldrar drengjanna, Stefanía og Guðmundur, léku m.a. bæði með landsliðum Íslands í körfubolta. Fagnaðarlætin voru gríðarleg eftir frækinn sigur á Grikkjum á EM í júlí. setur markið mjög Hátt Einn efnilegasti íþróttamaður landsins, Jón Axel Guðmundsson, er á leið til Banda ríkjanna þar sem hann mun stunda nám og leika körfubolta við Davidson-háskólann. Stefnan er sett á NBA deildina eða bestu deildir Evrópu. Starri Freyr Jónsson starri@365.is „Ég set alltaf miklar kröfur á sjálfan mig og oft meiri en flestir halda að ég geti staðið undir,” segir körfuboltamaðurinn Jón Axel Guðmundsson. Mynd/hAnnA urs allan tímann. Liðið spilar líka hraðan bolta í evrópskum stíl sem mér finnst mjög gott. Ég fór í heim- sókn þangað þegar ég var að velja á milli skóla og fannst um leið og ég kom þangað að ég væri einn af þeim.“ Fyrrnefndur Stephen Curry hóf nám við Davidson fyrir tíu árum og andi hans svífur enn yfir göngum íþróttahússins. Jón Axel kippir sér þó lítið upp við það. „Auðvitað er það gaman en það hefði engu breytt hefði hann ekki verið þarna áður. En við fáum að hitta hann og hann kíkir á nokkra leiki með okkur sem er náttúrlega alveg geggjaður plús. Svo er líka mikið horft á bak- verðina í skólanum, stöðuna sem ég spila, því þjálfarinn er þekktur fyrir að búa til góða bakverði.“ stuðningur frá fjölskyldu Íþróttir skipa stóran sess í fjöl- skyldu Jóns Axels. Hann á tvo yngri bræður sem báðir æfa körfu- bolta og foreldrar hans, Stefanía Jónsdóttir og Guðmundur Braga- son, voru margfaldir landsliðsmenn í körfubolta og léku lengstum með Grindavík og Haukum. „Foreldr- ar mínir hafa haft gríðarlega góð áhrif á mig. Þau fylgja mér á leiki og styðja mig í öllu sem ég geri sem mér finnst mjög mikilvægt. Ég held að þau hafi nánast aldrei misst af móti eða leik á ferli mínum.“ Stuðningur foreldra hans skiptir því miklu máli, ekki síst með þann bakgrunn sem þau hafa. „Þau hafa leiðbeint mér mikið gegnum árin. Stundum nenni ég ekki endilega að hlusta en þau hafa klárlega gert mig að betri leikmanni. Það skipt- ir engu hvort liðið mitt vinnur eða tapar, ég veit að ég get alltaf komið heim þar sem einhver er tilbúinn að gíra mig upp úr fýlupakkanum. En um leið líka að segja mér hvað ég hefði getað gert betur og í hverju ég stóð mig vel svo maður geti þrosk- ast sem leikmaður.“ mjög afslappaður Þótt lífið snúist um körfuboltann er líka til líf utan hans. Í frítíma sínum finnst honum gaman að eyða tíma með vinunum, en hann til- heyrir stórum vinahópi sem hefur þekkst lengi. „Í sumar var settur upp strandblakvöllur í Grindavík og höfum við félagarnir nýtt hann mikið. Mér finnst líka mjög gott að slaka á og mundu flestir sem þekkja mig lýsa mér sem mjög afslöppuð- um einstaklingi. Uppáhaldsstað- urinn minn fyrir utan íþróttahús- ið er klárlega uppi í sófa með Pla- ystation-tölvuna. Ég eyði auðvitað miklum tíma með kærustunni, Guð- laugu Björtu. Fyrir utan körfubolt- ann finnst mér gaman að ferðast og fylgjast með öðrum íþróttum. Einn- ig finnst mér mjög gaman að spila í góðum félagsskap en það er mikil spilahefð í fjölskyldu minni.“ stefnir á nBa deildina Íslenskt íþróttafólk hefur náð eft- irtektarverðum árangri undanfar- in ár og silfursæti U20-liðsins ein- ungis það nýjasta í röðinni. „Það er stórkostlegt fyrir litla Ísland hvað við eigum margt afreksfólk í mörg- um íþróttum sem hefur náð góðum árangri. . Þetta sýnir bara hvað þjálfunin hérna heima er búin að taka miklum framförum undan- farin ár og að öll vinnan sem svo margir hafa lagt í íþróttastarfið er loksins að skila sér.“ Hann setur markið hátt og stefn- ir í bandarísku NBA-deildina eða að leika í einhverjum af bestu deildum Evrópu þegar háskólanum lýkur. „Við Guðlaug Björt ætluðum alltaf að fara í sama skóla í Bandaríkjun- um en hún æfir líka körfubolta. Það gekk ekki upp þannig að við munum vera hvort í sínum skólanum, ég í Davidson í Norður Karolínu en hún í Florida Institute of Technology í Flórída. Eftir háskólanámið langar mig að ferðastum og skoða heiminn með Guðlaugu Björtu og einn dag- inn stofna fjölskyldu.“ 1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R6 F ó L k ∙ k y n n i n g A R b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n g A R b L A ð ∙ h e L g i n 1 3 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 0 -C 6 C 8 1 A 4 0 -C 5 8 C 1 A 4 0 -C 4 5 0 1 A 4 0 -C 3 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.