Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis
á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Þorbjörg Gunnlaugs
Um daginn var mér sagt að það væru mikil með-mæli með sumarfríi að muna ekki lykilorðið í tölvunni á fyrsta vinnudegi eftir fríið. Mér fannst
alls ekki erfitt að réttlæta þá hugmyndafræði og hringdi
án þess að skammast mín í tölvudeildina sem virtist
hafa fengið sambærileg símtöl áður. Það var kannski
meiri undrun næsta dag þegar ég hringdi aftur í sömu
erindagjörðum.
Mér finnst reyndar alveg ágætt þegar haustið fer af
stað. Okkur leiðinlega fólkinu finnst huggulegt að vita
hvað er fram undan og finnum hamingjuna í rútínu
og fyrirsjáanleika. Á haustin er meiri festa og öryggi
í sjónvarpsdagskránni og þetta skiptir allt máli. Það
sem mælir kannski helst gegn haustinu er að þá taka
foreldrar í Reykjavík upp hlutastarf sem leigubílstjórar
við að skutla á æfingar og íþróttamót. Haustið er annars
nýtt upphaf, með fyrsta skóladegi barnanna og nýjum
skólabókum.
Fjarlægðin á Facebook
Og með haustinu færist líf yfir tölvupóstinn. Ég hugsaði
þetta um daginn þegar ég þurfti að leita að uppskrift
í tölvupóstinum en fann í leiðinni bréf frá vinkonum,
blaðagreinar sem ég átti eftir að lesa og svo loksins
brauðuppskriftina sem ég var að leita að. Við könn-
umst öll við klisjuna um að við séum að fjarlægjast
hvert annað vegna þess að stór hluti samskipta okkar
fer fram í gegnum tölvupóst eða spjallforrit. Klisjan
stenst ekki skoðun, ekki frekar en klisjan af því hvernig
æska okkar var saklausari en barna okkar. Fyrir daga
tölvupósts og spjallforrita voru foreldrar góðir með
sig ef þeir vissu hvað kennari barna þeirra hét. Í dag fá
foreldrar daglegan póst úr skólanum. Munurinn var
kannski frekar sá að foreldrar vissu ekkert um líf barna
sinna.
Við þekkjum líka kvabbið um að fólk dragi upp
glansmynd af lífi sínu á Facebook og sýni ekki hvers-
dagsleikann. Það stenst ekki heldur skoðun. Við fáum
myndir af því hvað vinir okkar borða í kvöldmat og
upplýsingar um hvaða bók þeir lesa áður en þeir fara
svo að sofa. Við vitum hvað þeir gera í sumarfríinu,
fylgjumst með afmælum barna þeirra og bölvum
dálítið mæðrunum með bollakökurnar. Við deilum
oftar stórum sem smáum tíðindum með vinum okkar
vegna samskiptamiðlanna. Karakterinn birtist ekki
lengur í því hvort við tölum á innsoginu í símanum, í
skriftinni eða í vali á bréfsefni heldu af hvaða tilefni við
skrifum.
Heiðarlegt mont
Og varla var fólk hér áður fyrr raunverulega mikið í því
að hringja í vini og senda þeim handskrifuð bréf – eða
að faxa sérstaklega – til að láta vita af því ef krakkarnir
féllu í dönsku? Eða til að upplýsa um að uppvaskið
stæði skítugt í vaskinum? Í dag getum við reyndar átt
von á því að lesa um dauða uppþvottavélar á Facebook
og í kjölfarið umræður um heppilegan arftaka. Með
samskiptamiðlunum fáum við nefnilega heilmikla
þjónustu. Núna þurfum við til dæmis ekki að hafa
áhyggjur af því að gleyma að óska vinum okkar til
hamingju þegar þeir hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu.
Líkurnar á því að þeir gleymi að deila afrekinu með
vinum sínum eru engar. Montið er heiðarlegra á netinu.
Þegar við loksins hittum vini okkar erum við tengdari
vegna þess að við vitum hver var úti að hjóla kvöldið
áður, hver fór í fjallgönguna og hver það var sem lá í
sófanum að horfa á sjónvarpið. Það er reyndar alltaf ég.
Rauðvínslegnir póstar
Þegar ég fór í gegnum tölvupóstinn minn um daginn
sá ég, sem ég vissi reyndar vel, að ég á góðar vinkonur
sem ég hef skrifast á við um stjórnmál og störf, bækur
og börn, útvíkkun og mænudeyfingar. Stundum
skrifum við sjaldnar, stundum stutt en bestu bréfin
eru sennilega þessi löngu og dálítið mjúku eftir eins
og eitt rauðvínsglas. Alveg eins og það er örugglega í
samræmi við lýðheilsustefnu að gleyma lykilorðinu að
tölvupóstinum í sumarfríinu, er bæði hollt og gott að
fara í gegnum gömul bréf í innhólfinu og muna hvað
vináttan er dýrmæt.
Sagan í tölvupóstinum
Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu sumarið 2009. Að baki umsókninni lá þings-ályktunartillaga þáverandi ríkisstjórnar Sam-fylkingar og Vinstri-grænna. Í tillögunni fólst að þegar aðildarsamningur lægi fyrir skyldi þjóðin staðfesta hann í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frá upphafi lá fyrir að ekki væri þingmeirihluti fyrir
inngöngu í ESB, og líklega heldur ekki meðal þjóðar-
innar. Vinstri-grænir fengust einungis til þess að
styðja þingsályktunartillöguna vegna hefðbundinna
hrossakaupa við gerð stjórnarsáttmála. Sennilega var
enginn þingmaður flokksins raunverulegur stuðn-
ingsmaður inngöngu í ESB. Aðildarsinna var í raun
ekki að finna annars staðar en í Samfylkingunni, með
örfáum undantekningum.
Þrátt fyrir þetta beitti Samfylkingin sér fyrir því að
aðildarferlið hæfist. Af stað var hrundið atburðarás
þar sem tíma, fé og og vinnu rándýrra sérfræðinga var
eytt í að fínpússa samninga sem aldrei var raunhæft
að yrðu að veruleika. Heilt ráðuneyti var skipulagt til
að einblína á aðildarferlið í fyrirsjáanlegri framtíð.
Samt var ESB-ferðin alltaf án fyrirheits og umsóknin
að endingu dregin til baka. Nú situr utanríkisráðu-
neytið uppi með hóp sérfræðinga í Evrópumálum,
sem eru verkefnalausir.
Góð regla í samningum er að útiloka aldrei neina
möguleika ótilneyddur. Samningsstaðan er auðvitað
betri ef viðsemjandanum hefur ekki tekist að króa þig
af úti í horni.
Samfylkingin á öðrum fremur sök á því að Evr-
ópudyrunum hefur verið skellt á Íslendinga – í bili.
Evrópusambandsaðild og upptaka evru hefur verið
slegin út af borðinu sem raunhæfur kostur í þjóð-
félagsumræðunni. Sá sem mest vildi, klúðraði. Af
hverju ætti Evrópusambandið annars að taka upp
þráðinn að nýju eftir það sem á undan er gengið? Af
hverju ætti þjóðin að veðja á annað svona leikrit?
Umræðan um verðtrygginguna sem nú á sér stað er
birtingarmynd þessarar stöðu. Flestir, nema þeir sem
neita að sjá og skilja, átta sig á því að verðtrygging og
króna eru tvær hliðar á sama peningnum. Það er erfitt
með sannfærandi rökstuðningi að vera hvort tveggja
í senn stuðningsmaður krónunnar og andstæðingur
verðtryggingarinnar. Áður en ESB-umsóknin sigldi í
strand hefði vitrænt innlegg í þessa umræðu verið að
stinga upp á að evran yrði tekin upp í stað krónunnar
og tvö vandamál þannig leyst í einu.
ESB-flokkurinn, Samfylkingin, á öðrum fremur
sök á því að uppástunga á borð við þessa á frekar
skylt við draumóra en veruleika. Flokkurinn klúðraði
draumsýn margra okkar og skaðaði hagsmuni lands
og þjóðar.
Því skyldi engan undra að Samfylkingin eigi nú
erfitt uppdráttar og reyni að samsama sig Pírötum af
því að þeir eiga upp á pallborðið þessa stundina. Fall
flokksins, sem fyrir stuttu taldi sig annan turnanna
í íslenskum stjórnmálum er hátt. Sennilega væri
flokksmönnum hollast að líta í eigin barm eftir söku-
dólgum.
ESB-klúður
Góð regla í
samningum
er að útiloka
aldrei neina
möguleika
ótilneyddur.
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R16 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
SKOÐUN
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-7
7
C
8
1
A
4
0
-7
6
8
C
1
A
4
0
-7
5
5
0
1
A
4
0
-7
4
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K