Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 96
einna mestra vinsælda um þær mundir, en einnig var mikil áhersla lögð á fjölgreinakeppnir þar sem keppt var í mörgum ólíkum frjáls- íþróttagreinum og samanlagður stigafjöldi réð úrslitum. Fljótlega spurðist frægð bónda- sonarins út úr heimahéraðinu og hann varð eftirsóttur keppandi á mótum um allt Írland. Slíkt var þó ekki vandræðalaust, því afstaða manna til atvinnumennsku í íþróttum var blendin. Skipulagðar íþróttakeppnir drógu til sín fjölda áhorfenda sem voru reiðubúnir að greiða aðgangseyri, sem þýddi að skipuleggjendur og eigendur íþróttavalla gátu haft vel upp úr krafsinu, en á sama tíma vildu for- ystumenn íþróttahreyfingarinnar halda í heiðri áhugamennskuhug- sjóninni. Það að þiggja greiðslur fyrir keppni eða veita háum verð- launum móttöku var talið saurga hinn göfuga anda íþróttanna. Þótt áhugamannahugsjónin væri klædd í fallegan búning, má auð- veldlega túlka hana á annan veg líka. Krafan um áhugamennsku fól í sér tilraun til að gera íþróttirnar að einkaeign yfirstéttarinnar. Iðju- litlir ungir menn af aðalsættum eða úr borgarastétt gátu leyft sér að æfa íþróttir sér til skemmtunar og greiddu úr eigin vasa kostnað við íþróttaferðir, jafnvel landa á milli. Alþýðufólk átti ekki kost á slíkum munaði. Einhvers konar atvinnu- údókonan Majlinda Kel- mendi tryggði sér gullverð- laun á þriðja degi Ólympíu- leikanna í Ríó. Þetta voru fyrstu gullverðlaun smá- ríkisins Kosovó, sem keppir nú á sínum fyrstu leikum. Í Kosovó búa ekki nema um tvær milljónir manna, svo enn veik- ist tilkall okkar Íslendinga til að vera mesta íþróttaþjóð álfunnar … miðað við höfðatölu. Verðlaun Kosovóbúa, þegar í upphafi íþróttasögu sinnar, hljóta að vera salt í sár frænda þeirra og nágranna Albana. Albanía hefur um áratugaskeið keppt á sumar- og vetrar ólympíuleikum en aldrei komist á verðlaunapall. Svona er íþróttagæfu þjóðanna misskipt. Sagan hefur raunar að geyma ýmis dæmi um blómaskeið fámennra þjóða á íþróttasviðinu. Á fyrri hluta síðustu aldar voru Finnar til að mynda eitt mesta frjálsíþrótta- veldi heims. Þar þurfti enga höfða- tölureikninga, heldur var Finnland einatt í röð þeirra ríkja sem flest verðlaun hlutu á Ólympíuleikum. Einkum voru það finnskir hlauparar sem báru uppi hróður lands síns. Á undan Finnum, um aldamótin 1900, voru Írar í sömu stöðu. Undir lok nítjándu aldar kom fram gull- kynslóð írskra frjálsíþróttamanna sem vann ótrúleg afrek. Írskir íþróttamenn áttu fjölda heimsmeta og voru atkvæðamiklir á Ólympíu- leikum eftir að þeir voru endurvakt- ir, en stjórnmálaástandið á Írlandi og sjálfstæðisbarátta landsins setti stundum strik í reikninginn. Einn helsti brautryðjandi þess- arar íþróttabylgju var bóndi að nafni Thomas Kiely. Hann er vafa- lítið merkasti gullverðlaunahafi Ólympíusögunnar sem aldrei keppti á Ólympíuleikum. Víkjum betur að þeirri þversögn síðar. Íþróttirnar og peningarnir Tom Kiely fæddist árið 1869 í Bally- neale í héraðinu Tipperary, sem flestir tengja við söngleikjaslagar- ann sem varð einkennislag breskra hermanna í fyrri heimsstyrjöld- inni. Nítján ára gamall hóf hann að keppa á frjálsíþróttamótum heima fyrir og náði snemma góðum árangri. Kastgreinar og hlaup nutu J Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um ævaforn íþróttaafrek. LitLu mátti muna að þeSSir tvennir Leikar yrðu tiL að drePa ÓLymPíuhreyfinguna … Maðurinn sem varð óvart Ólympíumeistari ÚTSALA RISA ÓTRÚLEG TILBOÐ Á HEILSURÚMUM! AFSLÁTTUR! 20-60% H E I L S U R Ú M A R G H !!! 0 30 81 6 #2 mennska var forsenda þess að efnalitlir menn gætu unnið afrek í íþróttum. Þessi gagnstæðu sjónarmið gátu af sér siðferðislegan tvískinnung. Skipuleggjendur íþróttamóta voru fundvísir á leiðir til að greiða íþróttagörpum undir borðið og endalaus álitamál gátu komið upp. Hvenær væru verðlaunagripir svo verðmætir að rétt væri að líta á þá sem launagreiðslu? Mætti íþrótta- maður þiggja greiðslur fyrir að koma fram í auglýsingum? Og hvað ef íþróttamaður þægi laun fyrir þjálfun eða sýningu í annarri keppnis grein en sinni eigin? Oftar en ekki komu slík ágreiningsmál upp eftir að íþróttamenn unnu til verðlauna og eignuðust þannig öfundarmenn. Íþróttaferill Kielys á Írlandi var þessu marki brenndur. Á þrjátíu ára ferli sínum, frá 1888 til 1908, er áætlað að hann hafi unnið til 3.000 verðlauna, sem sjaldnast máttu vera peningar. Þess í stað áskotnuðust honum kynstrin öll af hvers kyns skrautmunum, listaverkum og hús- búnaði sem unnt var að koma í verð. Af þessum 3.000 sigrum, voru um sjötíu á landsmeistaramótum á Írlandi, í Bretlandi og Bandaríkj- unum. Landsmetin og heimsmetin voru sömuleiðis fjölmörg, þótt utanumhald um skráningu slíkra meta hafi á þessum árum verið mun losaralegra en síðar varð. Þá hefur útbreiðsla metrakerfisins í íþrótta- heiminum leikið arfleifð íþrótta- garpsins grátt, því flest metin voru sett í greinum sem miðuðust við úreltar mæli- og þyngdareiningar og því löngu aflagðar. Írska klemman Fyrstu nútíma Ólympíuleikarnir voru haldnir í Aþenu árið 1896. Um þær mundir var Tom Kiely nærri hátindi ferils síns, 27 ára að aldri. Ekki mætti hann til Grikklands og raunar ekki á því von. Fyrstu Ólympíuleikarnir vöktu takmark- aðan áhuga fremstu íþróttamanna síns tíma, heldur löðuðu fremur til sín rómantíska ferðalanga sem drukkið höfðu í sig gríska menningu og sáu leikana því í hillingum. Sjálf íþróttakeppnin í Aþenu var mun lakari en á sterkustu íþróttamótum þess tíma. Aþenuleikarnir gáfu þó tóninn varðandi það sem koma skyldi í tengslum við þátttöku írskra þjóð- ernissinna. John Pius Boland, sem síðar varð einn af forystumönnum írskra sjálfstæðissinna á þinginu í Westminster, vann til tvennra gull- verðlauna í tennis. Að hans sögn gerði hann athugasemd við að breski fáninn væri dreginn að húni og uppskar afsökunarbeiðni móts- haldara fyrir að hafa ekki haft írskan fána til reiðu. Erfitt er að segja til um sannleiks- gildi sögunnar, en á seinni leikum komu upp svipuð atvik þar sem þjóðernissinnaðir írskir íþrótta- garpar mótmæltu því að taka við verðlaunum sínum undir breska fánanum og drógu jafnvel upp írska fána í mótmælaskyni. Að þessu leyti minnir saga írsku íþróttamannanna nokkuð á fyrstu skref Íslendinga á Ólympíuleikum árin 1908 og 1912, þar sem til deilna kom um hvort íþróttamennirnir gengju undir íslenskum eða dönskum merkjum á setningarathöfninni. Enn í dag er ríkisfang þessara fyrstu írsku Ólympíufara viðkvæmt mál í huga Íra, sem fengið hafa því framgengt að alþjóðaólympíu- nefndin skráir þá bæði sem Íra og Breta í verðlaunabókum sínum. Sigurför til St. Louis Tom Kiely mætti heldur ekki til leiks á Ólympíuleikunum í París árið 1900, vafalítið vegna þess að hann vildi ekki keppa undir merkjum Bretlands. Því kemur á óvart að finna hann á lista gullverðlaunahafa í St. Louis fjórum árum síðar, þá 34 ára að aldri. Þar var í fyrsta og eina sinn keppt í fjölþraut, sem var forveri tugþrautarinnar en með nokkuð öðrum keppnisgreinum. Greinarnar voru tíu talsins og var keppt í þeim öllum samdægurs. Kastgreinarnar voru þrjár: kúluvarp, sleggjukast og lóðkast. Hástökk, langstökk og stangarstökk voru öll á listanum. Hundrað yarda hlaup og 120 yarda grindahlaup, míluhlaup og 880 yarda kappganga voru svo hlaupa- og göngugreinarnar. Sigur Kielys var sannfærandi, líkt og í öðrum íþróttakeppnum hans vestanhafs sumarið 1904. Hann sneri aftur til Írlands og var fagnað sem hetju við heimkomuna, en þá sem bandarískum meistara fremur en sigurvegara á Ólympíuleikum. Það var raunar ekki fyrr en löngu síðar að Tom Kiely var gerður að Ólympíumeistara, en fátt bendir til að hann hafi nokkru sinni litið á sig sem slíkan. Ólympíuleikarnir 1904 voru í raun ekki heildstætt íþróttamót, heldur óskipulagt samsafn stakra íþróttaviðburða í tengslum við heimssýningu líkt og verið hafði í París fjórum árum fyrr. Litlu mátti muna að þessir tvennir leikar yrðu til að drepa Ólympíuhreyfinguna, slíkt var skipulagsleysið og losara- bragurinn. Keppendur á leikunum í St. Louis voru nær einvörðungu heimamenn, fáeinir Evrópubúar lögðu á sig ferðalagið og raunar var drjúgur hluti evrópsku kepp- endanna íþróttamenn sem staddir voru í Bandaríkjunum í öðrum erindagjörðum. Meistaramót Bandaríkjanna í fjöl- þraut var haldið í St. Louis á þjóðhá- tíðardaginn, 4. júlí og þar var Kiely meðal þátttakenda ásamt fimm Bandaríkjamönnum og öðrum Íra. Keppnisdagurinn bendir til að mótið hafi verið talinn stór- viðburður, en boðið var upp á röð íþróttakeppna á sýningarsvæðinu frá júlíbyrjun og fram í lok nóvem- ber. Sjálfir Ólympíuleikarnir voru þó sagðir fara fram á um vikutíma um mánaðamótin ágúst/september. Síðar kom í hlut sagnfræðinga að greiða úr flækjunni og í mörgum tilvikum að ákveða eftir á hvaða keppnisgreinar verðskulduðu að teljast hluti Ólympíuleikanna. Keppendur sem alla tíð höfðu talið sig réttmæta Ólympíumeistara fengu nöfn sín ekki skráð í meta- bækur, en aðrir fengu óvænt verð- launaskjal í póstinum. Þannig varð um Tom Kiely. Þrem- ur árum eftir dauða hans, árið 1954, tókst hvatvísum írskum íþróttasagn- fræðingi að fá Ólympíunefndina til að viðurkenna fjölþrautarkeppnina árið 1904. Í kjölfarið urðu til ósann- færandi sögur til að skýra hvers vegna þjóðernissinninn Kiely hafi fengist til að keppa á leikunum, sem flestar ganga út á að hann hafi neitað að keppa sem Bandaríkja- maður og Breti, heldur fengið að teljast írskur, en svo verið svikinn af mótshöldurum. Allt er þetta með ólíkindabrag og rökréttast að álykta að Kiely hafi ekkert viljað af Ólympíuleikunum vita, en vinsældir leikanna í seinni tíð valda því að núna er hans helst minnst fyrir Ólympíugullið sem hann vann þó aldrei í alvöru, en enginn man eftir hinum 3.000 sigr- unum og öllum lampaskermunum, prjónavélunum og málverkunum sem hann uppskar á glæstum ferli. 1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R40 h e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 3 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 4 0 -C 6 C 8 1 A 4 0 -C 5 8 C 1 A 4 0 -C 4 5 0 1 A 4 0 -C 3 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.