Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 12
Viðskipti Komum erlendra rann-
sóknarskipa hingað til lands
hefur fjölgað mjög, að sögn Jóhanns
Bogasonar, framkvæmdastjóra
Gáru, dótturfélags TVG-Zimsen. Fyr-
irtækið þjónustar skipin á meðan á
dvöl þeirra hér við land stendur.
„Undanfarin ár hafa verið að
koma í kringum 30 til 40 rannsókn-
arskip á ári en þau eru talsvert fleiri
nú í ár, eða nálægt sextíu. Í sumar
hafa jafnvel verið fimm til sex rann-
sóknarskip í höfn í Reykjavík á sama
tíma, sem er óvenjulega mikið,"
segir Jóhann.
Jóhann segir skipin koma hingað í
margvíslegum tilgangi, en þar spili
aukinn áhugi á norðurslóðum stórt
hlutverk. Meðal annars séu sum við
dýptarmælingar, geri kannanir
á eiginleika sjávar, rannsaki land-
grunnið og geri bergmálsmælingar á
hafsbotninum. Önnur séu einungis
á ferð um íslenska hafsvæðið og hafi
viðkomu hér á landi til að sækja sér
vistir og ýmsa þjónustu.
Meðal erlendra rannsóknarskipa
sem komið hafa til Íslands í ár eru
sögð skipin Neil Armstrong, Ram-
ford Sterling og olíurannsóknar-
skipið Ocean Victory. Öll erlend
rannsóknarskip sem stundi rann-
sóknir innan íslenskrar efnahags-
lögsögu þurfi heimild íslenskra
stjórnvalda.
Auk þjónustu við rannsóknar-
skip sinnir Gára og TVG-Zimsen
þjónustu við erlend skemmtiferða-
skip. „Það er óhætt að segja að það
sé búið að vera mjög annasamt hjá
okkur í sumar og við höfum þurft að
sinna metfjölda skipa. En þetta hefst
allt með góðum starfsmönnum og
skipulagningu,“ segir Jóhann. – óká
Heimsóknum erlendra rannsóknarskipa fjölgar hingað til lands
Rannsóknarskipið Ramford Sterling er engin smásmíði. Mynd/TVG-ZiMSen
Það er óhætt að
segja að það sé búið
að vera mjög annasamt hjá
okkur í sumar og við höfum
þurft að sinna
metfjölda
skipa.
Jóhann Bogason,
framkvæmdastjóri
Gáru
Hafnarfjörður Akranes Reykjavík Akureyri Mosfellsbær Árborg Garðabær Kópavogur Fjarðabyggð
Fjöldi barna fædd 2015 á leikskólum* 40 0 18 38 0 54 65 192 66
Fjöldi barna fædd 2015 371 92 1517 225 112 104 168 455 69
Hlutfall barna fædd 2015 í leikskóla 10,80% 0% 1,20% 17% 0% 52% 39% 42% 96%
Kostnaður foreldra vegna dagforeldri 60.000 kr. engin yfirsýn engin yfirsýn 54.116 kr. 52.608 kr. 52.500 kr. 37.570 kr. engin yfirsýn 34.805 kr.
Kostnaður foreldra vegna leikskóla** 32.935 kr. 34.344 kr. 25.280 kr. 35.226 kr. 33.746 kr. 34.441 kr. 37.570 kr. 30.000 kr. 34.805 kr.
niðurgreiðsla til dagforeldra 50.000 kr. 40.000 kr. 47.608 kr. 61.684 kr. 52.608 kr. 30.000 kr. 63.668 kr. 57.289 kr. 69.845 kr.
*eins og staðan er í dag **Miðað er við átta tíma með morgunmat, síðdegishressingu og hádegismat án afsláttar
✿ staða barna á
leikskólum eftir
sveitarfélögum
skólamál Fjöldi barna fæddra árið
2015 sem komin eru með leikskóla-
pláss er mjög mismunandi í níu af
tíu stærstu sveitarfélögum landsins.
Í Fjarðabyggð er hæsta hlutfall barna
á leikskóla, eða 96 prósent. Lægsta
hlutfallið er hins vegar í Mosfellsbæ
og á Akranesi þar sem engin börn
fædd árið 2015 eru komin á leik-
skóla.
Munur á kostnaði foreldra vegna
vistunar á leikskóla eða hjá dagfor-
eldri nemur allt að 27 þúsund krón-
um á mánuði hjá þeim sveitarfé-
lögum sem gáfu upplýsingar um það,
en samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er munurinn allt að 50 þús-
und krónur í Reykjavík. Formaður
Velferðarnefndar segir núverandi
ríkisstjórn ekki virðast hafa stefnu í
að brúa bilið milli fæðingarorlofs og
inntöku barna í leikskóla. Mikilvægt
sé að lengja fæðingarorlofið og taka
börn fyrr inn á leikskóla.
Ef höfuðborgarsvæðið er einungis
skoðað má sjá að hæsta hlutfall
barna fæddra í fyrra á leikskólum
er í Kópavogi, eða 42 prósent, fast
á hæla Kópavogs kemur Garðabær
með 39 prósent barna á leikskóla.
Í Reykjavík eru einungis átján börn
fædd árið 2015 á leikskólum, eða 1,2
prósent barna fæddra árið 2015.
Kostnaður foreldra við átta tíma
vistun á leikskóla í sveitarfélögun-
um níu nemur frá 25.280 til 37.570
króna og er mestur í Garðabæ en
minnstur í Reykjavík. Kostnaður
foreldra við átta tíma vistun hjá
dagforeldri er á bilinu 34.805 til
60 þúsund krónur í þeim sveitarfé-
lögum þar sem fengust svör. Athygli
vekur að í sumum sveitarfélögum
hefur sveitarfélagið enga yfirsýn
yfir kostnað foreldra hjá dagfor-
eldrum. Gjaldskrá dagforeldra er
frjáls en sveitarfélagið niðurgreiðir
kostnað við hvert barn um vissa
krónutölu, óháð því hvað dagfor-
eldrið rukkar foreldra um.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að sumir foreldrar í höfuðborg-
inni greiði allt að 80 þúsund krónur
til dagforeldris. Samanborið við
25.280 krónur á leikskóla nemur
munurinn um 55 þúsund krónum.
Að sögn upplýsingafulltrúa
Reykjavíkurborgar verða 142
börn í viðbót tekin inn þegar leik-
skólar opna á ný eftir sumarleyfi. Þá
verða þau samtals 160, sem eru þó
einungis 10,5 prósent barna. Einn-
ig verða 65 börn fædd árið 2015
tekin inn í leikskóla Hafnarfjarðar
á haustmánuðum, og öll börn sem
fædd eru í janúar til ágúst 2015
verða tekin inn í leikskóla Garða-
bæjar þann 1. september. Í Mos-
fellsbæ og á Akranesi þar sem engin
börn hafa verið tekin inn er stefnan
sú að börn séu tekin inn í leikskóla
frá tveggja ára aldri. Stefnt er að því
að breyta innritunarreglum í Mos-
fellsbæ og vonast er til að hægt
verði að taka á móti sextán til átján
mánaða börnum á næsta ári.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
formaður velferðarnefndar, segir
það samstarfsverkefni ríkisstjórn-
ar og sveitarfélaga að brúa bilið
milli fæðingarorlofs og leikskóla-
inntöku. „Núverandi ríkisstjórn
virðist ekki hafa stefnu í þessu því
hún hefur stytt fæðingarorlofið
og ekki treyst sér til að lengja það
aftur þrátt fyrir bætta stöðu ríkis-
sjóðs. Ríkið þarf að lengja fæðing-
arorlofið og sveitarfélögin þurfa
að taka börnin fyrr inn. Þá kemur
spurningin hvort við viljum hafa
tólf mánaða fæðingarorlof eða
átján mánaða fæðingarorlof.“
Sigríður Ingibjörg óttast áhrif
núverandi stöðu á fæðingatíðni.
„Fæðingatíðni hefur lækkað und-
anfarið, ekki síst vegna þess að það
er orðið dýrara að eignast börn.
Fæðingarorlofið hefur staðið í stað
í þrjú ár. Það er mikilvægt fyrir
okkar samfélag að fólk vilji eignast
börn og það sé öryggi fyrir fjöl-
skyldur varðandi dagvistun fyrir
minnstu börnin.“
saeunn@frettabladid.is
sveinn@frettabladid.is
Bil milli orlofs og leikskóla enn óbrúað
Tugum þúsunda getur munað á leikskólagjöldum eða kostnaði við dagforeldragjöld eftir því í hvaða sveitarfélagi foreldrar búa. Mis-
jafnt er hvort börn fædd árið 2015 hafa fengið leikskólapláss. Formaður Velferðarnefndar segir að ríkið þurfi að lengja fæðingarorlof.
Ríkið þarf að lengja
fæðingarorlofið og
sveitarfélögin þurfa að taka
börnin fyrr inn.
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, for-
maður velferðar-
nefndar
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 l a U g a R D a g U R12 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-9
F
4
8
1
A
4
0
-9
E
0
C
1
A
4
0
-9
C
D
0
1
A
4
0
-9
B
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K