Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 120
Cyber hefur verið til í nokkurn tíma innan Reykjavíkurdætra sam-steypunnar, í raun áður en Reykjavíkurdætur
urðu til. Þær hafa áður gefið út lögin
Sjálfstæðisfyllerí og Fiðringur.
Hvernig eru þið ólíkar Reykjavíkur-
dætrum og af hverju eru þið í „sér“
hljómsveit?
Salka: „Cyber er kannski ólíkast
Reykjavíkurdætrum að því leyti að
við erum bara tvær og vinnum þess
vegna tónlistina okkar í nánara sam-
starfi en venjan er hjá Reykjavíkur-
dætrum. Við höfum það að mark-
miði að vinna að ákveðnu „soundi“ á
meðan Reykjavíkurdætur snúast ein-
mitt um að hafa rými til þess að mega
vera mismunandi einstaklingar með
alls konar „sound“ og pælingar.“
Jóhanna: „Fyrir Airwaves 2011 var
ég svo blönk að ég vældi í Sölku að
byrja með mér í hljómsveit og reyna
að fá frímiða. Við skírðum þessa
hljómsveit eftir uppáhalds MAC-
varalitnum okkar, á þeim tíma, sem
var einmitt Cyber. Hins vegar átti
Cyber upphaflega að vera diskó/
trash-metal/pönk dúó. Allt þetta var
samt meiri kjaftur í okkur en nokkuð
annað. Í rauninni bjóst ég aldrei við
því að við myndum gera nokkuð. Svo
kem ég heim úr nokkurra mánaða
Rússlandsferð um haustið 2013 og
viku seinna stígum við á svið sem
rapparar á Rappkonukvöldi sem
Cyber.“
Hvernig plata er þetta? Eruð þið að
vinna með einhverjar sérstakar pæl-
ingar? Eru gestir? Hverjir pródúsa?
Salka: „Þessi plata er að mörgu
leyti drungaleg en samt lífleg. Það
er mjög mikil tilfinning í hverju lagi
og lögin í sjálfu sér ólík en samt er
einhver „X-factor“ sem bindur þau
saman. Lögin eru unnin í mjög nánu
samstarfi með ólíkum pródúserum
og við erum líka að vinna mikið með
vókal sem hljóðfæri á flestum lögum
plötunnar.
Platan er eins og gengur og gerist
þrútin af upplýsingum og pælingum,
sem gerist gjarnan með jafn texta-
miðaða tónlist og rapptónlist er.
Platan sem heild er ekki að vinna
með neitt sérstakt þema, það er helst
bara að tónlistin er unnin í mjög
nánu samstarfi og er þess vegna per-
sónuleg og mikið unnin.
MC Blær er með okkur í tveim
lögum, en Blær hefur einmitt unnið
mikið með okkur í gegnum árin og
þegar við ákváðum að gera þessa EP
þá kom ekki til greina að hún myndi
ekkert koma að henni. Hún er soldið
eins og stóra systir okkar. Við vorum
ótrúlega heppnar að fá svo geð-
veikt mikið af flottum pródúserum
að vinna með okkur þ.e. Dj. Flugvél
og geimskip, Russian.girls, TY og
Marmara.“
Þarf ekki að fagna svona útgáfu? Er
eitthvað fleira að fæðast hjá ykkur?
Salka: „Við ætlum að halda útgáfu-
tónleika þann 17. ágúst á vinnustof-
unni minni á Fiskislóð. Þar verður
líka sýnt myndband og mögulega
stíga á svið fleiri hljómsveitir. Við
erum mjög spenntar að halda þetta
á vinnustofunni þar sem við unnum
mikið að plötunni þar og ætlum
okkur að skapa alveg einstakt rými
fyrir útgáfuna.
Líkt og árið 2011 þá ætlum við
okkur enn þá að fá að spila á Air-
waves, svo við stefnum á það. Annars
verður vonandi bara nóg að gera hjá
okkur í framhaldi af þessari plötu!“
stefanthor@frettabladid.is
Nefnt eftir
varalit
Cyber er samvinnuverkefni þeirra Sölku
Valsdóttur og Jóhönnu Rakelar Jónasdótt-
ur úr Reykjavíkurdætrum. Á miðvikudaginn
gáfu þær út EP-plötuna Crap sem er sjö laga
stuttskífa á SoundCloud.
Jóhanna og Salka voru í raun orðnar Cyber áður en þær urðu Reykjavíkurdætur. Mynd/HRefna BJöRg gylfadóttiR
„Þetta verður eins og Bylgjulestin fyrir
skrýtið fólk,“ segir Steindór Grétar
Jónsson, umsjónarmaður hlaðvarps-
þáttarins Spinnipúkans.
Í kvöld munu umsjónarmenn
Spinnipúkans ásamt íslensk/ástralska
uppistandshlaðvarpinu Ice tralia
taka upp þætti ásamt áhorfendahóp.
Umsjónarmenn Icetralia eru íslenski
uppistandarinn Hugleikur Dagsson
og ástralski uppistandarinn Jonat-
han Duffy.
Áhorfendur eiga kost á því að taka
að einhverju leyti þátt í hlaðvarps-
þáttunum tveimur en þetta er í fyrsta
sinn sem þættirnir eru teknir upp
með áhorfendum. Steindór segist ekki
viss um hvaða gest þeir Hugleikur og
Jonathan muni kynna til leiks en sér-
legur gestur Spinnipúkans er Hildur
Lilliendahl Viggós dóttir. „Hún mun
segja okkur sögur úr eigin lífi til þess
að veita okkur innblástur og kveikja á
hugmyndum til þess að nota í spun-
anum,“ segir Steindór.
Hann vill þó ekki gangast við því
að örli á samkeppni á milli hlað-
varpsþáttanna en viðurkennir að
einhverjum bolabrögðum verði
hugsanlega beitt. „Það er náttúrulega
spurning hvort ég noti tækifærið og
reyni að skemma þeirra þátt. Kannski
hleyp ég upp á sviðið og tek mækinn.
Svo mega áhorfendur náttúrulega
reyna að hlaupa upp á svið og taka
mækinn en þá megum við tækla þá.
Það getur allt gerst,“ segir Steindór og
hlær. Ásamt honum munu þau Ólafur
Ásgeirsson, Sandra Barilli og Atli Már
Steinarsson sjá um Spinnipúkann.
„Það verður nóg af gríni og það er
frítt inn. Þetta verður einhver algjör
vitleysa og mjög fyndið.“
Herlegheitin fara fram á skemmti-
staðnum Húrra og hefjast klukkan
20.00. – gló
Mega tækla áhorfendur
Miðasala er hafin
Stórtónleikar
í Eldborg
17. september
Chris
Norma
n
Hugleikur, Jonathan og Steindór verða örugglega í stuði í
kvöld og Steindór segir allt geta gerst. fRéttaBlaðið/Hanna
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R64 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð
Lífið
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
4
0
-B
7
F
8
1
A
4
0
-B
6
B
C
1
A
4
0
-B
5
8
0
1
A
4
0
-B
4
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K