Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 24
ég er ekki hrokafullur
Zlatan ibrahimovic á eftir að verða
mikið í sviðsljósinu í enska bolt-
anum í vetur með Man. utd.
Svíinn er skrautlegur innan sem
utan vallar. Sparar ekki stóru orðin
eins og þegar hann sagði að það
væri ekki þess virði að horfa á hM
þar sem hann væri ekki með.
Svíinn segir það þó vera rangt að
hann sé hrokagikkur. hann segist
vera fjölskyldumaður með mikið
sjálfstraust.
„ég er venjulegur maður. fólk
hefur þá ímynd af mér að ég sé
óþekkur strákur. fólk er for-
vitið um mig. Spyr oft: hvernig er
Zlatan?“ sagði Zlatan í viðtali við
Sky.
„ég er fjölskyldumaður og hugsa
um mína fjölskyldu en þegar ég
mæti á völlinn þá er ég ljón. Þarna
er mikill munur. ég er ekki á því
að ég sé hrokafullur. ég hef mikið
sjálfstraust og trúi á sjálfan mig.
Það er ekki hroki.“
Laugardagur
11.20 Hull - Leicester Sport
13.00 ÓL-golf karla Sport 4 & Golfs.
13.50 Burnley - Swansea Sport 2
15.30 Valur - ÍBV Sport
16.00 Portúgal - Þýskaland Sport 3
16.20 Man. City - Sunderl. Sport 2
17.15 Argentína - Brasilía Sport 5
18.00 Celtic - Inter Sport 3
18.10 Everton - Tottenham Sport
19.00 Middlesb - Stoke Sport 4
19.00 John Deere Golfstöðin
19.50 C. Palace - WBA Sport
20.00 Soton - Watford Sport 3
22.00 S-Kórea - Hondúras Sport
22.00 Spánn - Litháen Sport 2
01.00 Brasilía - Kólumbía Sport
01.30 Króatía - Nígería Sport 2
Fótbolti Valur og ÍBV mætast í
úrslitaleik Borgunarbikars karla á
laugardalsvelli klukkan 16:00 í dag.
Valsmenn eru ríkjandi bikarmeist-
arar en þeir unnu sannfærandi sigur
á kr í bikarúrslitaleiknum í fyrra.
eyjamenn eru aftur á móti að spila
sinn fyrsta bikarúrslitaleik síðan
árið 2000.
Á hliðarlínunni mætast tveir
reynsluboltar og elstu þjálfararnir í
Pepsi-deild karla, Ólafur Jóhannes-
son og Bjarni Jóhannsson. Þeir eru
báðir að fara í sinn fimmta bikar-
úrslitaleik og árangurinn er sá
sami; tveir sigrar og tvö töp. Ólafur,
sem er 59 ára, fór fyrst í bikarúrslit
með fh árið 1991. Tólf árum síðar
fór Ólafur aftur með fh í bikarúr-
slit en það var ekki fyrr en 2007 sem
Ólafur vann loks bikarinn með fh,
í þriðju tilraun. Í fyrra bætti hann
svo öðrum bikarmeistaratitli á feril-
skrána.
„Þetta er stærsti leikur ársins
og það er frábært að taka þátt í
honum,“ sagði Ólafur í samtali við
fréttablaðið á blaðamannafundi í
höfuðstöðvum kSÍ í tilefni af bikar-
úrslitahelginni.
„Við þurfum að eiga góðan leik
og leggjum upp með það. Þetta er
svona spennustigsleikur og það er
spurning hvernig spennustigið hjá
leikmönnum verður. Það hefur oft
ráðið úrslitum,“ sagði Ólafur. „Við
stefnum að því að undirbúa okkar
leikmenn þannig að þeir njóti þess
að spila.“
gengi Vals í Pepsi-deildinni í
sumar hefur verið brösótt en liðið er
í 6. sæti með 19 stig eftir 14 umferð-
Gamli skólinn í öllu sínu veldi
Reynsluboltarnir Ólafur Jóhannesson og Bjarni Jóhannsson eru komnir með lið sín í bikarúrslit. Valsmenn
eru ríkjandi bikarmeistarar en Eyjamenn hafa ekki orðið bikarmeistarar í 18 ár. Búist er við jöfnum leik.
Annar hvor fyrirliðanna, Haukur Páll Sigurðsson (Valur), eða Avni Pepa (ÍBV), mun
lyfta þessum nýja bikar seinna í dag. FréTTABLAðIð/EyÞÓr
Bikarúrslitaleikir Bjarna
1997
ÍBV 1-1 Keflavík,
ÍBV 0-0 (4-5 í vítakeppni) Keflavík
1998
ÍBV 2-0 Leiftur
2001
Fylkir 2-2 (5-4 í vítakeppni) KA
2012
Stjarnan 1-2 KR
Bikarúrslitaleikir Ólafs
1991
FH 1-1 Valur
FH 0-1 Valur
2003
FH 0-1 ÍA
2007
FH 2-1 Fjölnir
2015
Valur 2-0 KR
Breiðablik fagnar 11. bikarmeistaratitlinum
Bikarinn á loft Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, lyftir bikarnum fyrir framan rúmlega tvö þúsund áhorfendur sem lögðu leið sína á Laugar-
dalsvöll í gærkvöldi. Blikar höfðu betur gegn ÍBV í úrslitaleik Borgunarbikars kvenna, 3-1, með mörkum Olivia Chance, Berglindar Bjargar Þor-
valdsdóttur og Fanndísar Friðriksdóttur en Natasha Anasi skoraði mark ÍBV. FréTTABLAðIð/HANNA
ir. Valsmenn hafa hins vegar verið
öflugir í bikarkeppninni en þeir fóru
erfiða leið í úrslitaleikinn og unnu
m.a. fjölni og Víking r. á útivelli.
Sömu sögu er að segja af eyja-
mönnum sem fóru á Samsung-völl-
inn í garðabæ í 16-liða úrslitunum
og á kópavogsvöllinn í 8-liða úrslit-
unum og unnu góða sigra á Stjörn-
unni og Breiðabliki. Í undanúr-
slitunum bar ÍBV svo sigurorð af
Íslandsmeisturum fh á heimavelli.
„Við höfum náð upp bikarstemn-
ingu, farið á mjög erfiða útivelli og
fengum toppliðið í heimsókn í und-
anúrslitunum,“ sagði Bjarni. „Við
þurfum að halda góðu spennustigi
og kjarki og krafti í mönnum.“
Bjarni, sem fagnaði 58 ára afmæli
sínu á nýársdag, er kominn með
eyjamenn í bikarúrslit í þriðja sinn
en hann gerði ÍBV að bikarmeist-
urum 1998. eyjamenn unnu þá
leiftur 2-0 í úrslitaleik með mörkum
bræðranna Steingríms og hjalta
Jóhannessona. Síðan þá hefur ÍBV
ekki unnið bikarinn.
„Vonandi verður sama stuðið
í kringum þetta núna og var þá.
Það er alltaf magnað að komast í
bikarúrslit,“ sagði Bjarni sem vann
bikarinn með fylki 2001 og var svo
þjálfari Stjörnunnar þegar liðið
tapaði fyrir kr í bikarúrslitum fyrir
fjórum árum.
aðalvandamál eyjamanna í
sumar hefur verið að skora mörk
en þeir hafa aðeins gert 13 mörk í
14 leikjum í Pepsi-deildinni. Það
voru þó batamerki á sóknarleikn-
um í leiknum á móti Víkingi Ó. á
sunnudaginn þótt ÍBV hafi einungis
skorað eitt mark. Það gerði gunn-
ar heiðar Þorvaldsson sem er að
komast á ferðina eftir erfið meiðsli.
„Það er vika á milli leikja þannig
að ég á von á því að hann verði klár
á laugardaginn. hann hefur spilað
lítið í sumar en við sáum í leiknum í
Ólafsvík að hann er góður leikmað-
ur og hjálpar okkur klárlega,“ sagði
Bjarni að lokum. ingvithor@365.is
borgunarbikar kvenna, úrslitaleikur
Breiðablik - ÍBV 3-1
1-0 Olivia Chance (2.), 2-0 Berglind Björg
Þorvaldsdóttir (24.), 2-1 Natasha Anasi (49.),
3-1 Fanndís Friðriksdóttir (60.).
Breiðablik er Borgunarbikarmeist-
ari eftir 2-0 sigur á ÍBV. kópavogs-
liðið byrjaði betur og var komið í
2-0 fyrir hlé.
Nýjast
leBron launahæSTur Í nBa
leBron James sem leiddi Cleveland
Cavaliers til nBa-meistaratitils
fyrr í sumar er búinn að komast að
samkomulagi við Cleveland um
nýjan samning. hann er til þriggja
ára og gefur James 100 milljónir
dollara í laun. Þetta þýðir að James
verður launahæsti leikmaður
nBa-deildarinnar en í fyrra var
hann næst launahæstur á
eftir kobe Bryant sem
er nú búinn að leggja
skóna á hilluna.
Það sem meira
er að þá mun
James takast
að fá hæstu
árslaun sem
nokkur leik-
maður hefur fengið
í sögu deildarinnar.
Það met átti Michael
Jordan og er það frá
leiktíðinni 1998-
1999.
Sunnudagur
12.20 Bournem. - Man. Utd Sport
13.00 ÓL-golf karla Sport 4 & Golfs.
14.50 Arsenal - Liverpool Sport 2
17.15 Bandaríkin - Frakkl. Sport
19.00 John Deere Golfstöðin
22.00 Ástralía - Venesúela Sport 2
01.30 Serbía - Kína Sport
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 l A U g A R D A g U R22 s p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-C
1
D
8
1
A
4
0
-C
0
9
C
1
A
4
0
-B
F
6
0
1
A
4
0
-B
E
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K