Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 20
Í dag fögnum við sport ástríðunni hjá Porsche með stórsýningu. Margt verður um glæsilega gripi. Við frumsýnum draumabílinn 718 Boxster ásamt ofursportbílnum Cayman GT4. Auk þess munum við flagga nokkrum mögnuðum útfærslum af Porsche sem fluttir voru til landsins sérstaklega af þessu tilefni, m.a. Porsche Cayenne Turbo S, sem er aðeins 4,1 sek. í hundraðið. Porsche á Íslandi | Bílabúð Benna: Vagnhöfða 23 | 110 Reykjavík | S: 590 2000 www.benni.is | www.porsche.is Við frumsýnum: • 718 Boxster • Cayman GT4 Komdu á stórsýningu Porsche í dag, laugardag og upplifðu goðsagnir sportbílanna. Opið frá kl. 12:00 til 16:00 í dag. Stórsýning Porsche Einstakt tækifæri til að upplifa:• Cayenne GTS • Cayenne Turbo S • Macan GTS • Porsche 911 C4 S • Boxster GTS Mögnuðustu sportbílar landsins til sýnis, laugardag Nú hefur það gerst, að regn­bogasilungur er farinn að veiðast í Stöðvará í Stöðvar­ firði. Það er sleppifiskur úr fisk­ eldinu í Berufirði og er dæmigert fyrir ógnina sem af eldisiðjunni stafar. Forystumenn eldisdrauma eru þekktir að því að gera lítið úr þeirri vá, eins og greinilega kom fram í viðtölum við þá í Bænda­ blaðinu fyrir stuttu, neita blákalt fyrirliggjandi staðreyndum og reyna af mætti að telja fólki trú um að allt sé í fínu lagi. Enda er þöggun sam­ ofin eldisiðjunni og opinbert eftir­ lit í skötulíki. Reynslan er t.d. sú, að sjaldnast tilkynna eldisiðjurnar að fyrra bragði um sleppingar fiska úr sínum kvíum, langtum fremur neita svo lengi sem stætt er og gera svo minna úr en við blasir. Það var Veiðifélag Breiðdæla sem upplýsti í ályktun sinni fyrr í sumar um umtalsverðar sleppingar af regnbogasilungi úr kvíum í Beru­ firði sem höfðu verið viðvarandi um langa tíð og var öllum kunnugt sem vita vildu. Þá var loks gripið til við­ bragða. Uppákoman á Patreksfirði haust­ ið 2013 er dæmigerð, þegar bera fór á laxi í sjó. Laxeldisiðjan tilkynnti þá um 200 laxa slysasleppingu, en neyddist svo til að hækka þá tölu í 500, þegar 400 laxar höfðu veiðst á stöng innst inni í Patreksfirði. Öllum rannsóknum vísindamanna og opinberum stofnunum í Noregi ber saman um, að í laxeldisiðjunni eru slysasleppingar óhjákvæmi­ legar og meðaltalið sé að a.m.k. einn lax sleppi fyrir hvert tonn í framleiðslu. Veiðimálastofnun hefur staðfest það. Í Noregi var til­ kynnt um 244 þúsund stroklaxa árið 2015, en norska hafrannsóknastofn­ unin telur að fjöldinn sé fjórum til fimm sinnum meiri eða yfir milljón stroklaxar. Og laxarnir ganga upp í laxveiðiárnar og blandast villtum stofni. Það hefur reynslan áþreifan­ lega sannað í Noregi og líka á Íslandi í lönduðum eldislöxum úr ánum. Verið er að undirbúa risalaxeldi í austfirskum fjörðum upp á 75 þúsund tonn. Ef öll sú framleiðsla verður að veruleika, þá munu a.m.k. 75 þúsund laxar sleppa úr austfirskum kvíum á ári, sem er umtalsvert meira en öll heildar­ laxveiði á stöng á Íslandi. Engin ný tækni eða aðferðafræði getur breytt því, að lax sleppi úr kvíum. Þá eru slysasleppingar langtum líklegri úr kvíum í íslenskum fjörðum fyrir opnu úthafi eins og t.d. í Berufirði og Stöðvarfirði, þar sem veður eru válynd og geta valdið hamförum í sjó og rústað kvíunum á augabragði. Laxeldisiðjan ber þá enga ábyrgð á því stórtjóni sem af hlýst gagnvart lífríkinu og eignaspjöllum fólks, og ekki skylt að kaupa neinar trygg­ ingar gegn slíkri vá, enda mat trygg­ ingarfélaga á áhættunni svo hátt að slíkar tryggingar eru fokdýrar. Það er hjákátlegt að reyna við­ brögð eldismanna, þegar þeir neita staðreyndum, t.d. um úrganginn og mengunina sem af laxeldinu stafar. Mengunarvarnaeftirlit Noregs (Stat­ ens Forurensningtilsyn 2009) líkir úrgangi frá 9.000 tonna laxeldi við skolpfrárennsli frá 150 þúsund manna borg. Auk þess er umtals­ verðu magni lyfja beitt í eldinu gegn alls kyns sjúkdómum sem grassera í mergðinni í kvíunum. Eldið er eini matvælaframleiðandinn sem heimilt er að demba öllum úrgangi af framleiðslu sinni óhreinsuðum beint í sjóinn. Er slík grútarmengun í austfirskum fjörðum ásættanleg og líkleg til að styrkja ímynd fjórðungs­ ins um náttúrufegurð og hreinan sjó? Slík hegðan gæti skaðað mikla hagsmuni eins og t.d. ferðaþjónust­ una og sjávarútveginn sem státar af heilbrigðum gæðafiski á mörkuðum sínum. Svo halda eldismenn því fram, að ástand villtra laxastofna sé í góðu lagi í Noregi. Manni hrýs hugur við slíkum fullyrðingum í ljósi stað­ reynda um hrun í villta laxastofn­ inum þar í landi sem allar ábyrgar rannsóknir og stofnanir staðfesta eins og t.d. NINA (Náttúrurann­ sóknarstofnun Noregs, febrúar 2016). Prófessor Trggve T. Poppe við norska dýralæknaháskólann lýsti þeirri skoðun sinni á Alta­ráðstefn­ unni í febrúar árið 2016, að innan 5 ára yrðu allar laxveiðar í norskum ám úr sögunni, ef ekki verða gerðar róttækar ráðstafanir nú þegar. Risalaxeldi í opnum kvíum í íslenskum sjó með norskum og kynbættum laxi er meira en áhættu­ sækin útrás, fremur glapræði. Það liggur fyrir að lífríkið mun skaðast verulega og villtur laxastofn verða fyrir tjóni og líklega deyja út um síðir. Víða um heim er þess krafist að stjórnvöld bregðist við slíkri umhverfisvá með því að setja um eldið strangar kröfur og stórefla eftirlit. T.d. að eldið fari fram í lok­ uðum tjörnum á landi og allur úrgangur skilinn frá og fargað eða leitast við að nýta til farsældar. Einnig að banna að nota kynbættan fisk af erlendum uppruna í eldinu og einvörðungu leyfa með geldfiski sem útilokar erfðamengun við villta stofna. Um það var gert samkomu­ lag á milli eldis­ og stangaveiði­ manna fyrir milligöngu Veiðimála­ stofnunar á sínum tíma, en við það hefur ekki verið staðið. Á Íslandi er flest leyfilegt í laxeldinu og útlenskir fjárfestar vilja ólmir nýta sér slíkar aðstæður, enda verulega að þeim þrengt í löndum þar sem ríkir sæmileg umhverfisvitund. Meira að segja opinberu leyfin eru ókeypis á Íslandi, sömuleiðis aðgangur að sjó og landi, en kosta umtalsverðar fjár­ hæðir t.d. í Noregi. Og leyfin verða dýrmæt og ekki líður á löngu þar til nýtt kvótabrask haslar sér völl, og leyfin ganga kaupum og sölum á markaði fyrir skjótfenginn gróða. Viljum við að Austurland, Vestfirðir og Eyjafjörður verði gróðrarstía fyrir slíkt brask með óhjákvæmilegum umhverfisskaða og eignaspjöllum fyrir marga um allt land? Það er spurning sem blasir við núna, en of seint að svara innan tíðar, því þá verður ekki aftur snúið. Þöggun staðreynda Gunnlaugur Stefánsson Heydölum Og leyfin verða dýrmæt og ekki líður á löngu þar til nýtt kvótabrask haslar sér völl, og leyfin ganga kaupum og sölum á markaði fyrir skjótfenginn gróða. 1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R20 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 3 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 0 -9 A 5 8 1 A 4 0 -9 9 1 C 1 A 4 0 -9 7 E 0 1 A 4 0 -9 6 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.