Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 20
Í dag fögnum við sport ástríðunni hjá Porsche með stórsýningu.
Margt verður um glæsilega gripi. Við frumsýnum draumabílinn
718 Boxster ásamt ofursportbílnum Cayman GT4. Auk þess munum
við flagga nokkrum mögnuðum útfærslum af Porsche sem fluttir
voru til landsins sérstaklega af þessu tilefni, m.a. Porsche Cayenne
Turbo S, sem er aðeins 4,1 sek. í hundraðið.
Porsche á Íslandi | Bílabúð Benna:
Vagnhöfða 23 | 110 Reykjavík | S: 590 2000
www.benni.is | www.porsche.is
Við frumsýnum:
• 718 Boxster
• Cayman GT4
Komdu á stórsýningu Porsche í dag, laugardag og upplifðu goðsagnir sportbílanna. Opið frá kl. 12:00 til 16:00 í dag.
Stórsýning Porsche Einstakt tækifæri til að upplifa:• Cayenne GTS
• Cayenne Turbo S
• Macan GTS
• Porsche 911 C4 S
• Boxster GTS
Mögnuðustu sportbílar landsins til sýnis, laugardag
Nú hefur það gerst, að regnbogasilungur er farinn að veiðast í Stöðvará í Stöðvar
firði. Það er sleppifiskur úr fisk
eldinu í Berufirði og er dæmigert
fyrir ógnina sem af eldisiðjunni
stafar. Forystumenn eldisdrauma
eru þekktir að því að gera lítið úr
þeirri vá, eins og greinilega kom
fram í viðtölum við þá í Bænda
blaðinu fyrir stuttu, neita blákalt
fyrirliggjandi staðreyndum og reyna
af mætti að telja fólki trú um að allt
sé í fínu lagi. Enda er þöggun sam
ofin eldisiðjunni og opinbert eftir
lit í skötulíki. Reynslan er t.d. sú, að
sjaldnast tilkynna eldisiðjurnar að
fyrra bragði um sleppingar fiska úr
sínum kvíum, langtum fremur neita
svo lengi sem stætt er og gera svo
minna úr en við blasir.
Það var Veiðifélag Breiðdæla
sem upplýsti í ályktun sinni fyrr í
sumar um umtalsverðar sleppingar
af regnbogasilungi úr kvíum í Beru
firði sem höfðu verið viðvarandi um
langa tíð og var öllum kunnugt sem
vita vildu. Þá var loks gripið til við
bragða.
Uppákoman á Patreksfirði haust
ið 2013 er dæmigerð, þegar bera fór
á laxi í sjó. Laxeldisiðjan tilkynnti
þá um 200 laxa slysasleppingu, en
neyddist svo til að hækka þá tölu í
500, þegar 400 laxar höfðu veiðst
á stöng innst inni í Patreksfirði.
Öllum rannsóknum vísindamanna
og opinberum stofnunum í Noregi
ber saman um, að í laxeldisiðjunni
eru slysasleppingar óhjákvæmi
legar og meðaltalið sé að a.m.k.
einn lax sleppi fyrir hvert tonn
í framleiðslu. Veiðimálastofnun
hefur staðfest það. Í Noregi var til
kynnt um 244 þúsund stroklaxa árið
2015, en norska hafrannsóknastofn
unin telur að fjöldinn sé fjórum til
fimm sinnum meiri eða yfir milljón
stroklaxar. Og laxarnir ganga upp í
laxveiðiárnar og blandast villtum
stofni. Það hefur reynslan áþreifan
lega sannað í Noregi og líka á Íslandi
í lönduðum eldislöxum úr ánum.
Verið er að undirbúa risalaxeldi
í austfirskum fjörðum upp á 75
þúsund tonn. Ef öll sú framleiðsla
verður að veruleika, þá munu
a.m.k. 75 þúsund laxar sleppa úr
austfirskum kvíum á ári, sem er
umtalsvert meira en öll heildar
laxveiði á stöng á Íslandi. Engin ný
tækni eða aðferðafræði getur breytt
því, að lax sleppi úr kvíum. Þá eru
slysasleppingar langtum líklegri
úr kvíum í íslenskum fjörðum fyrir
opnu úthafi eins og t.d. í Berufirði
og Stöðvarfirði, þar sem veður eru
válynd og geta valdið hamförum í
sjó og rústað kvíunum á augabragði.
Laxeldisiðjan ber þá enga ábyrgð á
því stórtjóni sem af hlýst gagnvart
lífríkinu og eignaspjöllum fólks, og
ekki skylt að kaupa neinar trygg
ingar gegn slíkri vá, enda mat trygg
ingarfélaga á áhættunni svo hátt að
slíkar tryggingar eru fokdýrar.
Það er hjákátlegt að reyna við
brögð eldismanna, þegar þeir neita
staðreyndum, t.d. um úrganginn og
mengunina sem af laxeldinu stafar.
Mengunarvarnaeftirlit Noregs (Stat
ens Forurensningtilsyn 2009) líkir
úrgangi frá 9.000 tonna laxeldi við
skolpfrárennsli frá 150 þúsund
manna borg. Auk þess er umtals
verðu magni lyfja beitt í eldinu gegn
alls kyns sjúkdómum sem grassera
í mergðinni í kvíunum. Eldið er
eini matvælaframleiðandinn sem
heimilt er að demba öllum úrgangi
af framleiðslu sinni óhreinsuðum
beint í sjóinn. Er slík grútarmengun
í austfirskum fjörðum ásættanleg og
líkleg til að styrkja ímynd fjórðungs
ins um náttúrufegurð og hreinan
sjó? Slík hegðan gæti skaðað mikla
hagsmuni eins og t.d. ferðaþjónust
una og sjávarútveginn sem státar af
heilbrigðum gæðafiski á mörkuðum
sínum.
Svo halda eldismenn því fram, að
ástand villtra laxastofna sé í góðu
lagi í Noregi. Manni hrýs hugur við
slíkum fullyrðingum í ljósi stað
reynda um hrun í villta laxastofn
inum þar í landi sem allar ábyrgar
rannsóknir og stofnanir staðfesta
eins og t.d. NINA (Náttúrurann
sóknarstofnun Noregs, febrúar
2016). Prófessor Trggve T. Poppe við
norska dýralæknaháskólann lýsti
þeirri skoðun sinni á Altaráðstefn
unni í febrúar árið 2016, að innan 5
ára yrðu allar laxveiðar í norskum
ám úr sögunni, ef ekki verða gerðar
róttækar ráðstafanir nú þegar.
Risalaxeldi í opnum kvíum í
íslenskum sjó með norskum og
kynbættum laxi er meira en áhættu
sækin útrás, fremur glapræði. Það
liggur fyrir að lífríkið mun skaðast
verulega og villtur laxastofn verða
fyrir tjóni og líklega deyja út um
síðir. Víða um heim er þess krafist
að stjórnvöld bregðist við slíkri
umhverfisvá með því að setja um
eldið strangar kröfur og stórefla
eftirlit. T.d. að eldið fari fram í lok
uðum tjörnum á landi og allur
úrgangur skilinn frá og fargað eða
leitast við að nýta til farsældar.
Einnig að banna að nota kynbættan
fisk af erlendum uppruna í eldinu
og einvörðungu leyfa með geldfiski
sem útilokar erfðamengun við villta
stofna. Um það var gert samkomu
lag á milli eldis og stangaveiði
manna fyrir milligöngu Veiðimála
stofnunar á sínum tíma, en við það
hefur ekki verið staðið.
Á Íslandi er flest leyfilegt í laxeldinu
og útlenskir fjárfestar vilja ólmir nýta
sér slíkar aðstæður, enda verulega að
þeim þrengt í löndum þar sem ríkir
sæmileg umhverfisvitund. Meira að
segja opinberu leyfin eru ókeypis á
Íslandi, sömuleiðis aðgangur að sjó
og landi, en kosta umtalsverðar fjár
hæðir t.d. í Noregi. Og leyfin verða
dýrmæt og ekki líður á löngu þar
til nýtt kvótabrask haslar sér völl,
og leyfin ganga kaupum og sölum
á markaði fyrir skjótfenginn gróða.
Viljum við að Austurland, Vestfirðir
og Eyjafjörður verði gróðrarstía fyrir
slíkt brask með óhjákvæmilegum
umhverfisskaða og eignaspjöllum
fyrir marga um allt land? Það er
spurning sem blasir við núna, en
of seint að svara innan tíðar, því þá
verður ekki aftur snúið.
Þöggun staðreynda
Gunnlaugur
Stefánsson
Heydölum
Og leyfin verða
dýrmæt og
ekki líður á
löngu þar til nýtt kvótabrask
haslar sér völl, og leyfin
ganga kaupum og sölum á
markaði fyrir skjótfenginn
gróða.
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R20 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-9
A
5
8
1
A
4
0
-9
9
1
C
1
A
4
0
-9
7
E
0
1
A
4
0
-9
6
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K