Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 44
Myndbandsverk Kristjönu var frumsýnt á framhlið Hótel Bel- mond Copacabana í Ríó í Brasilíu 31. júlí en í því er flögrandi fiðr- ildum í fánalitum þátttökuland- anna á Ólympíuleikunum varpað á húsið. Síðan hefur verkið verið sýnt á hverjum degi klukkan sjö að staðartíma í tíu mínútur í senn og flögra þá fiðrildi í fánalitum þeirra landa sem hafa náð á verðlaunapall þann dag um hótelið. Fánafiðrildin eru táknræn fyrir allar þær þjóðir sem koma saman á leikunum og er ætlað að fagna fjölbreytileikanum. Mikill fjöldi fólks var viðstadd- ur frumsýninguna en síðan hefur fólk safnast saman á ströndinni fyrir framan hótelið til að virða fyrir sér verk dagsins. Þá hafa yfir tvær milljónir manna skoðað myndband af verkinu sem Krist- jana deildi á Facebook-síðu sinni í upphafi mánaðar. Belmond Copacabana hótelið í Ríó er hluti af Belmond-hótelkeðj- unni sem rekur lúxushótel um allan heim. Hótelið er þekkt kennileiti í Ríó og ein mest myndaða bygging borgarinnar. Gluggaverkin á bak- hlið hótelsins sýna hinar ýmsu stórborgir víðsvegar um heim sem hafa haldið Ólympíuleikana hingað til með augum Kristjönu. Má þar nefna London, Aþenu, Ríó og Tókýó, þar sem leikarnir verða haldnir 2020. Innandyra hanga svo verk eftir hana í móttökunni og víðar. Kristjana er fædd og uppalin á Íslandi. Hún nam teikningu og grafíska hönnun í Central St. Mart- ins í London og gegndi í kjölfarið starfi listræns stjórnanda Beyond the Valley í átta ár, en það er vett- vangur fyrir unga og upprennandi hönnuði í Bretlandi til að koma sér á framfæri. Í dag rekur hún eigið stúdíó í London og selur myndir, ýmiss konar textíl og myndskreytt húsgögn auk þess sem von er á fata- línu í haust. Verk Kristjönu hafa víða vakið athygli og hefur hún þegar unnið til fjölda verðlauna. Má þar nefna D&AD, Clio og Grand Prix verð- launin. Sumar af vörum Kristjönu fást í Kraumi. Sjá nánar á www.krist­ janaswilliams.com Fólk er kynningarblað sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umSjónarmenn efniS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Íslensk list prýðir hótel Í rÍó Verk íslensku listakonunnar Kristjönu S. Williams prýða Hótel Belmond Copacabana í Ríó í tilefni af Ólympíuleikunum. Þetta eru myndbandsverk sem varpað er á framhlið hússins, gluggalistaverk á bakhliðinni og vegglistaverk innandyra. gluggarnir á bakhlið hótelsins eru prýddir verkum eftir Kristjönu. Þau sýna hinar ýmsu stórborgir sem hafa haldið ólympíuleikana hingað til með hennar augum. Stórt verk eftir Kristjönu prýðir móttöku hótelsins. fiðrildi eftir Kristjönu í fánalitum þátttökulandanna á ólympíuleikunum flögra um framhlið hótelsins í tíu mínútur á dag. Vera einarsdóttir vera@365.is Kristjana er fædd og uppalin á Íslandi. Hún hefur starfað í london um árabil. 1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R2 F ó L k ∙ k y n n i n g A R b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n g A R b L A ð ∙ h e L g i n 1 3 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 4 0 -E E 4 8 1 A 4 0 -E D 0 C 1 A 4 0 -E B D 0 1 A 4 0 -E A 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.