Fréttablaðið - 13.08.2016, Blaðsíða 6
Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna
sem úthlutað verður árið 2017 í samræmi við
ákvæði laga nr. 57/2009.
Umsóknarfrestur er til og með 30. september, kl. 17:00.
- launasjóður hönnuða
- launasjóður myndlistarmanna
- launasjóður rithöfunda
- launasjóður sviðslistafólks
- launasjóður tónlistarflytjenda
- launasjóður tónskálda
Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka:
• Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð – eða fleiri,
falli vinnan undir fleiri en einn sjóð
• Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn
launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð
• Starfslaun fyrir sviðslistahópa – athugið að sú breyting
hefur verið gerð að sviðslistahópa-umsókn er felld inn
í atvinnuleikhópa-umsókn.
Umsókn um starfslaun, lög og reglugerðir eru á vefslóðinni
www.listamannalaun.is. Nota þarf íslykil / rafræn skilríki við
umsóknina.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn
aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu vegna fyrri
starfslauna hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna,
sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009.
Breytingar frá síðustu úthlutun
• Ekki er tekið við umsóknum um ferðastyrki
• Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum
í gegnum umsóknarkerfið. Ekki er hægt að skila gögnum
á skrifstofu Rannís
Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga
á skrifstofu Rannís, listamannalaun@rannis.is
Stjórn listamannalauna,
ágúst 2016
kosningar Guðrún Margrét Páls-
dóttir hefur ein forsetaframbjóð-
enda skilað inn uppgjöri til ríkis-
endurskoðunar um forsetaframboð
sitt samkvæmt upplýsingum frá
stofnuninni. Guðrún segir framboð
sitt hafa kostað 536 þúsund krónur.
Henni hafi verið gefnir bæklingar
að verðmæti 150 þúsund króna en
afgangurinn hafi verið fjármagn-
aður úr eigin vasa.
Hinir frambjóðendurnir hafa þó
enn tíma til að skila inn uppgjöri
eða fram til 25. september en þá
verða þrír mánuðir liðnir frá kjör-
degi. Ef kostnaður framboðs var
undir 400 þúsund krónum dugar
að senda yfirlýsingu þess efnis. Sé
kostnaðurinn meiri þarf að skila
inn uppgjöri um framboðið með
upplýsingum um kostnað og fjár-
mögnun framboðsins. Upplýsa þarf
um alla lögaðila sem styrktu fram-
boðið auk einstaklinga sem styrktu
framboðið um meira en 200 þúsund
krónur. Lögaðilar og einstaklingar
mega að hámarki styrkja framboð
um 400 þúsund krónur. Heildar-
kostnaður við framboðin mátti ekki
fara yfir 38 milljónir króna.
Sturla Jónsson og Hildur Þórðar-
dóttir segja bæði að framboð sitt
hafi kostað undir 400 þúsund krón-
um. Ekki liggur fyrir endanlegur
kostnaður við framboð Guðna Th.
Jóhannessonar, forseta Íslands, að
sögn Þorgerðar Önnu Arnardóttur,
formanns félagsins sem hélt utan
um framboð Guðna. „Nei, það er
enn í vinnslu, það eru enn að koma
síðustu reikningar," segir Þorgerður.
Guðni sagði sjálfur í kosningasjón-
varpi RÚV að kostnaður við fram-
boðið væri vel á annan tug millj-
óna króna. Andri Snær Magnason,
segir að á næstu vikum verði farið
yfir hver endanlegur kostnaður var
við framboðið. „Mitt fólk er rétt að
detta úr sumarfríi,“ segir Andri.
Þá segist Elísabet Jökulsdóttir
ekki hafa tekið saman kostnað við
framboð sitt en myndi örugglega
skila inn uppgjöri degi áður en
fresturinn rynni út. Davíð Oddsson
áætlaði í kosningasjónvarpi RÚV
að framboð hans kostaði 6-7 millj-
ónir þótt sú tala gæti hækkað. Ekki
náðist í talsmenn framboðs Davíðs,
Höllu Tómasdóttur eða Ástþórs
Magnússonar. ingvar@frettabladid.is
Einn frambjóðandi
hefur skilað uppgjöri
Guðrún Margrét Pálsdóttir, hefur ein forsetaframbjóðenda skilað inn uppgjöri
um kostnað við framboð sitt. Aðrir hafa tíma til 25. september. Upplýsa þarf um
framlög lögaðila og einstaklinga sem styrkja um meira en 200 þúsund krónur.
Kastró níræður
Á Kúbu er í dag haldið upp á níræðisafmæli Fidels Kastró, sem var þjóðhöfðingi þar í nærri hálfa öld, allt frá
byltingunni 1959 þar til hann vegna aldurs og heilsubrests eftirlét bróður sínum völdin árið 2008. Nordicphotos/AFp
Viðskipti Afkoma Landsbankans
var jákvæð um 11,3 milljarða króna
eftir skatta á fyrri helmingi ársins
2016 samanborið við 12,4 milljarða
króna hagnað á sama tímabili árið
2015.
Fram kemur í tilkynningu að
hreinar vaxtatekjur voru 17,6 millj-
arðar króna og hækkuðu um níu
prósent á milli tímabila. Hreinar
þjónustutekjur námu 3,9 millj-
örðum króna og hækkuðu um 14,7
prósent frá sama tímabili árið áður.
Virðisbreytingar hækkuðu um 0,4
milljarða króna á milli ára. Aðrar
rekstrartekjur námu 4,4 milljörðum
króna samanborið við 7,3 milljarða
króna ári fyrr og skýrist lækkunin
aðallega af minni hagnaði af hluta-
bréfum. Arðsemi eigin fjár á tíma-
bilinu var 8,6 prósent á ársgrund-
velli samanborið við 10,4 prósent á
sama tímabili 2015.
Rekstrartekjur á fyrri helmingi
ársins námu 28,2 milljörðum króna
samanborið við 28,8 milljarða
króna á sama tímabili árið 2015.
Rekstrarkostnaður hækkaði um 1,6
prósent á milli ára. Launakostnaður
hækkaði í takt við kjarasamninga
en annar rekstrarkostnaður bank-
ans lækkaði um 4,5 prósent á milli
tímabila.
Heildareignir bankans í lok júní
voru um 1.110 milljarðar króna
samanborið við 1.173 milljarða
króna ári fyrr. Eigið fé bankans var
247,3 milljarðar króna í lok júní. – sg
Hagnaður Landsbankans
hefur dregist saman
rekstrartekjur og hagnaður Landsbankans drógust saman á fyrri helmingi ársins
samanborið við árið áður. FréttAbLAðið/dANíeL rúNArssoN
Mitt fólk er rétt að
detta úr sumarfríi.
Andri Snær Magnason,
rithöfundur og for-
setaframbjóðandi
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L a U g a r D a g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
4
0
-A
4
3
8
1
A
4
0
-A
2
F
C
1
A
4
0
-A
1
C
0
1
A
4
0
-A
0
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K