Fréttablaðið - 13.08.2016, Síða 96
einna mestra vinsælda um þær
mundir, en einnig var mikil áhersla
lögð á fjölgreinakeppnir þar sem
keppt var í mörgum ólíkum frjáls-
íþróttagreinum og samanlagður
stigafjöldi réð úrslitum.
Fljótlega spurðist frægð bónda-
sonarins út úr heimahéraðinu og
hann varð eftirsóttur keppandi á
mótum um allt Írland. Slíkt var þó
ekki vandræðalaust, því afstaða
manna til atvinnumennsku í
íþróttum var blendin. Skipulagðar
íþróttakeppnir drógu til sín fjölda
áhorfenda sem voru reiðubúnir
að greiða aðgangseyri, sem þýddi
að skipuleggjendur og eigendur
íþróttavalla gátu haft vel upp úr
krafsinu, en á sama tíma vildu for-
ystumenn íþróttahreyfingarinnar
halda í heiðri áhugamennskuhug-
sjóninni. Það að þiggja greiðslur
fyrir keppni eða veita háum verð-
launum móttöku var talið saurga
hinn göfuga anda íþróttanna.
Þótt áhugamannahugsjónin væri
klædd í fallegan búning, má auð-
veldlega túlka hana á annan veg
líka. Krafan um áhugamennsku fól
í sér tilraun til að gera íþróttirnar
að einkaeign yfirstéttarinnar. Iðju-
litlir ungir menn af aðalsættum
eða úr borgarastétt gátu leyft sér að
æfa íþróttir sér til skemmtunar og
greiddu úr eigin vasa kostnað við
íþróttaferðir, jafnvel landa á milli.
Alþýðufólk átti ekki kost á slíkum
munaði. Einhvers konar atvinnu-
údókonan Majlinda Kel-
mendi tryggði sér gullverð-
laun á þriðja degi Ólympíu-
leikanna í Ríó. Þetta voru
fyrstu gullverðlaun smá-
ríkisins Kosovó, sem keppir
nú á sínum fyrstu leikum. Í
Kosovó búa ekki nema um
tvær milljónir manna, svo enn veik-
ist tilkall okkar Íslendinga til að vera
mesta íþróttaþjóð álfunnar … miðað
við höfðatölu.
Verðlaun Kosovóbúa, þegar í
upphafi íþróttasögu sinnar, hljóta
að vera salt í sár frænda þeirra og
nágranna Albana. Albanía hefur
um áratugaskeið keppt á sumar-
og vetrar ólympíuleikum en aldrei
komist á verðlaunapall. Svona er
íþróttagæfu þjóðanna misskipt.
Sagan hefur raunar að geyma
ýmis dæmi um blómaskeið
fámennra þjóða á íþróttasviðinu. Á
fyrri hluta síðustu aldar voru Finnar
til að mynda eitt mesta frjálsíþrótta-
veldi heims. Þar þurfti enga höfða-
tölureikninga, heldur var Finnland
einatt í röð þeirra ríkja sem flest
verðlaun hlutu á Ólympíuleikum.
Einkum voru það finnskir hlauparar
sem báru uppi hróður lands síns.
Á undan Finnum, um aldamótin
1900, voru Írar í sömu stöðu. Undir
lok nítjándu aldar kom fram gull-
kynslóð írskra frjálsíþróttamanna
sem vann ótrúleg afrek. Írskir
íþróttamenn áttu fjölda heimsmeta
og voru atkvæðamiklir á Ólympíu-
leikum eftir að þeir voru endurvakt-
ir, en stjórnmálaástandið á Írlandi
og sjálfstæðisbarátta landsins setti
stundum strik í reikninginn.
Einn helsti brautryðjandi þess-
arar íþróttabylgju var bóndi að
nafni Thomas Kiely. Hann er vafa-
lítið merkasti gullverðlaunahafi
Ólympíusögunnar sem aldrei
keppti á Ólympíuleikum. Víkjum
betur að þeirri þversögn síðar.
Íþróttirnar og peningarnir
Tom Kiely fæddist árið 1869 í Bally-
neale í héraðinu Tipperary, sem
flestir tengja við söngleikjaslagar-
ann sem varð einkennislag breskra
hermanna í fyrri heimsstyrjöld-
inni. Nítján ára gamall hóf hann
að keppa á frjálsíþróttamótum
heima fyrir og náði snemma góðum
árangri. Kastgreinar og hlaup nutu
J
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson
skrifar um ævaforn
íþróttaafrek.
LitLu mátti muna að
þeSSir tvennir Leikar
yrðu tiL að drePa
ÓLymPíuhreyfinguna …
Maðurinn sem varð óvart
Ólympíumeistari
ÚTSALA
RISA
ÓTRÚLEG TILBOÐ
Á HEILSURÚMUM!
AFSLÁTTUR!
20-60%
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
0
30
81
6
#2
mennska var forsenda þess að
efnalitlir menn gætu unnið afrek í
íþróttum.
Þessi gagnstæðu sjónarmið gátu
af sér siðferðislegan tvískinnung.
Skipuleggjendur íþróttamóta
voru fundvísir á leiðir til að greiða
íþróttagörpum undir borðið og
endalaus álitamál gátu komið upp.
Hvenær væru verðlaunagripir svo
verðmætir að rétt væri að líta á þá
sem launagreiðslu? Mætti íþrótta-
maður þiggja greiðslur fyrir að
koma fram í auglýsingum? Og
hvað ef íþróttamaður þægi laun
fyrir þjálfun eða sýningu í annarri
keppnis grein en sinni eigin? Oftar
en ekki komu slík ágreiningsmál
upp eftir að íþróttamenn unnu til
verðlauna og eignuðust þannig
öfundarmenn.
Íþróttaferill Kielys á Írlandi var
þessu marki brenndur. Á þrjátíu
ára ferli sínum, frá 1888 til 1908, er
áætlað að hann hafi unnið til 3.000
verðlauna, sem sjaldnast máttu vera
peningar. Þess í stað áskotnuðust
honum kynstrin öll af hvers kyns
skrautmunum, listaverkum og hús-
búnaði sem unnt var að koma í verð.
Af þessum 3.000 sigrum, voru
um sjötíu á landsmeistaramótum
á Írlandi, í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Landsmetin og heimsmetin
voru sömuleiðis fjölmörg, þótt
utanumhald um skráningu slíkra
meta hafi á þessum árum verið mun
losaralegra en síðar varð. Þá hefur
útbreiðsla metrakerfisins í íþrótta-
heiminum leikið arfleifð íþrótta-
garpsins grátt, því flest metin voru
sett í greinum sem miðuðust við
úreltar mæli- og þyngdareiningar og
því löngu aflagðar.
Írska klemman
Fyrstu nútíma Ólympíuleikarnir
voru haldnir í Aþenu árið 1896. Um
þær mundir var Tom Kiely nærri
hátindi ferils síns, 27 ára að aldri.
Ekki mætti hann til Grikklands
og raunar ekki á því von. Fyrstu
Ólympíuleikarnir vöktu takmark-
aðan áhuga fremstu íþróttamanna
síns tíma, heldur löðuðu fremur
til sín rómantíska ferðalanga sem
drukkið höfðu í sig gríska menningu
og sáu leikana því í hillingum. Sjálf
íþróttakeppnin í Aþenu var mun
lakari en á sterkustu íþróttamótum
þess tíma.
Aþenuleikarnir gáfu þó tóninn
varðandi það sem koma skyldi í
tengslum við þátttöku írskra þjóð-
ernissinna. John Pius Boland, sem
síðar varð einn af forystumönnum
írskra sjálfstæðissinna á þinginu í
Westminster, vann til tvennra gull-
verðlauna í tennis. Að hans sögn
gerði hann athugasemd við að
breski fáninn væri dreginn að húni
og uppskar afsökunarbeiðni móts-
haldara fyrir að hafa ekki haft írskan
fána til reiðu.
Erfitt er að segja til um sannleiks-
gildi sögunnar, en á seinni leikum
komu upp svipuð atvik þar sem
þjóðernissinnaðir írskir íþrótta-
garpar mótmæltu því að taka við
verðlaunum sínum undir breska
fánanum og drógu jafnvel upp írska
fána í mótmælaskyni. Að þessu leyti
minnir saga írsku íþróttamannanna
nokkuð á fyrstu skref Íslendinga á
Ólympíuleikum árin 1908 og 1912,
þar sem til deilna kom um hvort
íþróttamennirnir gengju undir
íslenskum eða dönskum merkjum
á setningarathöfninni.
Enn í dag er ríkisfang þessara
fyrstu írsku Ólympíufara viðkvæmt
mál í huga Íra, sem fengið hafa því
framgengt að alþjóðaólympíu-
nefndin skráir þá bæði sem Íra og
Breta í verðlaunabókum sínum.
Sigurför til St. Louis
Tom Kiely mætti heldur ekki til leiks
á Ólympíuleikunum í París árið
1900, vafalítið vegna þess að hann
vildi ekki keppa undir merkjum
Bretlands. Því kemur á óvart að
finna hann á lista gullverðlaunahafa
í St. Louis fjórum árum síðar, þá 34
ára að aldri.
Þar var í fyrsta og eina sinn
keppt í fjölþraut, sem var forveri
tugþrautarinnar en með nokkuð
öðrum keppnisgreinum. Greinarnar
voru tíu talsins og var keppt í þeim
öllum samdægurs. Kastgreinarnar
voru þrjár: kúluvarp, sleggjukast
og lóðkast. Hástökk, langstökk og
stangarstökk voru öll á listanum.
Hundrað yarda hlaup og 120 yarda
grindahlaup, míluhlaup og 880
yarda kappganga voru svo hlaupa-
og göngugreinarnar.
Sigur Kielys var sannfærandi, líkt
og í öðrum íþróttakeppnum hans
vestanhafs sumarið 1904. Hann
sneri aftur til Írlands og var fagnað
sem hetju við heimkomuna, en þá
sem bandarískum meistara fremur
en sigurvegara á Ólympíuleikum.
Það var raunar ekki fyrr en löngu
síðar að Tom Kiely var gerður að
Ólympíumeistara, en fátt bendir til
að hann hafi nokkru sinni litið á sig
sem slíkan.
Ólympíuleikarnir 1904 voru í
raun ekki heildstætt íþróttamót,
heldur óskipulagt samsafn stakra
íþróttaviðburða í tengslum við
heimssýningu líkt og verið hafði í
París fjórum árum fyrr. Litlu mátti
muna að þessir tvennir leikar yrðu
til að drepa Ólympíuhreyfinguna,
slíkt var skipulagsleysið og losara-
bragurinn. Keppendur á leikunum
í St. Louis voru nær einvörðungu
heimamenn, fáeinir Evrópubúar
lögðu á sig ferðalagið og raunar
var drjúgur hluti evrópsku kepp-
endanna íþróttamenn sem staddir
voru í Bandaríkjunum í öðrum
erindagjörðum.
Meistaramót Bandaríkjanna í fjöl-
þraut var haldið í St. Louis á þjóðhá-
tíðardaginn, 4. júlí og þar var Kiely
meðal þátttakenda ásamt fimm
Bandaríkjamönnum og öðrum
Íra. Keppnisdagurinn bendir til
að mótið hafi verið talinn stór-
viðburður, en boðið var upp á röð
íþróttakeppna á sýningarsvæðinu
frá júlíbyrjun og fram í lok nóvem-
ber. Sjálfir Ólympíuleikarnir voru
þó sagðir fara fram á um vikutíma
um mánaðamótin ágúst/september.
Síðar kom í hlut sagnfræðinga að
greiða úr flækjunni og í mörgum
tilvikum að ákveða eftir á hvaða
keppnisgreinar verðskulduðu að
teljast hluti Ólympíuleikanna.
Keppendur sem alla tíð höfðu talið
sig réttmæta Ólympíumeistara
fengu nöfn sín ekki skráð í meta-
bækur, en aðrir fengu óvænt verð-
launaskjal í póstinum.
Þannig varð um Tom Kiely. Þrem-
ur árum eftir dauða hans, árið 1954,
tókst hvatvísum írskum íþróttasagn-
fræðingi að fá Ólympíunefndina til
að viðurkenna fjölþrautarkeppnina
árið 1904. Í kjölfarið urðu til ósann-
færandi sögur til að skýra hvers
vegna þjóðernissinninn Kiely hafi
fengist til að keppa á leikunum,
sem flestar ganga út á að hann hafi
neitað að keppa sem Bandaríkja-
maður og Breti, heldur fengið að
teljast írskur, en svo verið svikinn af
mótshöldurum.
Allt er þetta með ólíkindabrag og
rökréttast að álykta að Kiely hafi
ekkert viljað af Ólympíuleikunum
vita, en vinsældir leikanna í seinni
tíð valda því að núna er hans helst
minnst fyrir Ólympíugullið sem
hann vann þó aldrei í alvöru, en
enginn man eftir hinum 3.000 sigr-
unum og öllum lampaskermunum,
prjónavélunum og málverkunum
sem hann uppskar á glæstum ferli.
1 3 . á g ú s t 2 0 1 6 L A U g A R D A g U R40 h e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
3
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
4
0
-C
6
C
8
1
A
4
0
-C
5
8
C
1
A
4
0
-C
4
5
0
1
A
4
0
-C
3
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K